Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Hér er að finna upplýsingar um úrræði fyrir börn og fjölskyldur á vegum Hafnarfjarðarbæjar
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Aukin áhersla er nú lögð á að pappír, pappi, tau og klæði fari í endurvinnslufarveg í stað urðunar. Aðeins er tekið við úrgangi í glærum pokum sem auðvelda flokkun og draga úr úrgangi til urðunar
Frá og með byrjun febrúar hefur áhersla verið lögð á að pappír, pappi, tau og klæði fari í endurvinnslufarveg í stað urðunar. Ekki er lengur leyfilegt að henda svörtum ruslapokum í pressugáminn og aðeins tekið við úrgangi í glærum pokum. Glær poki auðveldar starfsmönnum að leiðbeina viðskiptavinum við flokkun og draga þannig úr úrgangi til urðunar.
Á hverju ári er framkvæmd rannsókn á þeim úrgangi sem fer til urðunar hjá SORPU með það fyrir augum að skoða hvar hægt sé að ná betri árangri, hvar hægt er að auka endurvinnslu og hvar tækifæri liggja til að draga úr kostnaði samfélagsins vegna úrgangsmeðhöndlunar. Sýni eru m.a. tekin úr blönduðum úrgangi frá heimilum og hlutfall mismunandi efnistegunda metið.
Á undanförnum árum hefur umtalsverðum árangri verið náð í að minnka pappírsúrgang til urðunar. Pappírsefni hafa farið úr því að vera um 30% af innihaldi gráu heimilistunnunnar árið 2007 í að vera aðeins um 11% árið 2015. Bláa tunnan, sem nú stendur öllum íbúum á höfuðborgarsvæðinu til boða undir pappírsefni, er þar stærsti áhrifavaldurinn. Á milli áranna 2014 og 2015 jókst endurvinnsla á pappírsefnum um rúm 5%. Enn fara þó tæplega 17 kg af pappírsefnum á hvern íbúa í gráu tunnuna árlega, svo tækifæri er til að gera töluvert betur og draga enn frekar úr sóun.
Minna magn fari í urðun frá endurvinnslustöðvum
Á endurvinnslustöðvum fer árlega fram greining á sýnum úr gámi nr. 66, sem er fyrir pressanlegan úrgang til urðunar. Þar er hlutfall pappírsefna enn hærra en í gráu heimilistunnunni, eða um 18%. Fatnaður og ýmiskonar vefnaðarvara er einnig stór hluti þess sem berst í gám nr. 66 á endurvinnslustöðvum, eða um 15%. Markmið ársins 2016 er að draga úr urðun á vefnaðarvöru og pappírsefnum frá endurvinnslustöðvum. Urðun á þessum efnum felur í sér sóun á hráefnum, auk þess sem förgun þeirra kostar samfélagið meira en ef þau færu í endurvinnslu. Til þess að ná þessu markmiði hefur verkefnið „minna í urðun frá endurvinnslustöðvum“ verið sett af stað en það felur í sér innleiðingu glærra poka og að hætt verður að taka við vefnaðarvöru og pappírsefnum til urðunar.
Í því skyni að auðvelda starfsmönnum endurvinnslustöðva að leiðbeina við flokkun og auka endurnýtingu er mælst til þess að viðskiptavinir hætti notkun svartra plastpoka undir blandaðan úrgang og noti þess í stað glæra poka fyrir úrgang sem nauðsynlega þarf að vera í poka. SORPA mun í upphafi árs gefa viðskiptavinum endurvinnslustöðva 100% endurunninn glæran poka í kynningarskyni. Í framhaldinu sjá viðskiptavinir svo sjálfir um að útvega sér glæra poka.
Vefnaðarvara og pappírsefni sem fóru til urðunar í gegnum gráu heimilistunnuna og í gám 66 á endurvinnslustöðvum árið 2015 voru samanlagt um 7000 tonn eða yfir 30 kg á hvern íbúa á höfuðborgarsvæðinu. Á öllum endurvinnslustöðvum eru gámar frá Rauða krossi Íslands fyrir föt og hvers konar klæði. Rauði krossinn getur tekið við allri vefnaðarvöru, hvort sem um er að ræða heilan fatnað eða slitinn, handklæði, rúmföt eða annað þess háttar. Það sem ekki er hægt að endurnota fer í endurvinnslu og er þá hráefni í tuskur, teppi og fleira. Pappír og pappi sem flokkaður er til endurvinnslu fer til Svíþjóðar þar sem hann er hráefni í framleiðslu á dagblaðapappír, pappaumbúðum, bréfþurrkum og ýmsu nytsamlegu. Endurnýting þessara efna sparar orku, vatn og aðrar náttúrulegar auðlindir, auk þess sem dregið er úr losun gróðurhúsalofttegunda og mengandi efna. Samfélagsleg ábyrgð okkar allra liggur því í að flokka þessi efni og skila til endurnýtingar.
Síðasta Jólaþorps-helgin er nú hafin. Fjölmargt að sjá og gera. Yndislegt er að stækka enn upplifunina með því að kíkja…
Ný skammtímadvöl fyrir fötluð börn, sem tók til starfa í Hafnarfirði í haust, var formlega opnuð í vikunni þegar starfsfólk…
Rósa Guðbjartsdóttir sat sinn síðasta bæjarstjórnarfund sem bæjarstjóri á miðvikudag. Ráðningasamningur við nýjan bæjarstjóra var undirritaður á fundinum. Rósu voru…
Hátt í sjötíu voru samankomin í undirgöngunum við Hörðuvelli á föstudagseftirmiðdag þegar Byggðasafn Hafnarfjarðar opnaði sýninguna sína Köldu ljósin. Sýningin…
Gleði, eftirvænting, friður, minningar og endurfundir eru hugtök sem eiga við dæmigerð íslensk jól, ritar Arnór Bjarki Blomsterberg, sóknarprestur í…
Söfn og stofnanir bæjarins verða opin á eftirfarandi dögum og tímum yfir hátíðarnar. Löng útlán á DVD myndum gilda á…
Bestu stundirnar um jólin leynast oft í stundlaugum bæjarins. Sundlaugar Hafnarfjarðar verða opnar um jól og áramót sem hér segir.
„Við systkinin erum öll orðin svo gott sem fullorðin og tvö komin á fertugsaldur, en öll viljum við hvergi annars…
Nýr sex deilda leikskóli verður tekinn í notkun í Hamranesi á árinu 2025 sem og nýtt knatthús að Ásvöllum og…
Hvað er betra en að kynnast sögunni á hlaupum? Nú eru aðeins tveir dagar í Kaldárhlaupið, 10 km hlaup í…