Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Öll börn sem fædd eru í maí 2023 og eldri hafa fengið pláss á leikskólum Hafnarfjarðarbæjar í haust. Stöður í leikskólum bæjarins eru nær fullmannaðar. Haustið fer vel af stað með breyttum leikskóladegi.
Góð staða er í leikskólum Hafnarfjarðarbæjar fyrir veturinn og standa þeir nú svo gott sem fullmannaðir fyrir veturinn. Öll börn fædd í maí 2023 og eldri hafa fengið pláss á leikskólum Hafnarfjarðarbæjar í haust.
Hafnarfjarðarbær hefur innleitt breytingar á leikskóladegi barnanna sem gefa færi á styttri viðveru en um leið sömu umönnun og kennslu. Foreldrar geta lækkað leikskólagjöldin um allt að 30%. Enn sem fyrr geta þó foreldrar fengið pláss fyrir börnin sín fullan leikskóladag þurfi þeir þess – án þess að gjöld hækki frá því sem var.
Nýtt skipulag fyrir leikskóladaginn í Hafnarfirði tók gildi frá og með 1. september 2024. Starfsemi innan leikskóladagsins verður nú tvíþætt með fagstarfi og frjálsum tíma. Markvisst fagstarf fer fram frá kl. 9-15 á daginn alla virka daga. Frjáls tími og leikstundir frá 7:30-9 og eftir kl. 15 á daginn.
Leikskóladagatalið verður 180 dagar og aðrir dagar verða sérstakir skráningardagar.
Skráningardagar eru eftirfarandi:
Breytingarnar á leikskóladeginum eru hentugar fjölskyldum og hjálpa sveitarfélaginu að halda öflugu fagfólki í starfi og fá fleiri fagmenntuð til starfa. Með skipulagðri skiptingu á leikskóladeginum er enn líklegra að starfkraftar fagfólks í leikskólum nýtist betur með börnum. Ljóst er að þessar breytingar hafa orðið til þess að störf innan leikskólanna þykja eftirsóknarverðari og ráðningar hafa gengið betur en oft áður.
Leikskólagjöld fyrir 30 stunda dvöl og skemur á viku lækka umtalsvert eða allt að 30%. Gjöld fyrir 40 klukkustunda dvöl á viku verða óbreytt.
Dæmi: Frá og með 1. september 2024 verða mánaðargjöld fyrir 40 stundir á viku kr. 41.042.- og fyrir 30 stundir á viku kr. 19.962.- Munurinn er kr. 21.080.- á mánuði eða kr. 231.880.- á ári miðað við ellefu mánuði og einn mánuð í sumarfrí. Eftir því sem dvalarstundum fækkar þá lækka gjöldin eins og sjá má á meðfylgjandi töflu sem sýnir gjöld með fæðisgjaldi.
Afsláttur er í boði. Systkinaafsláttur, tekjutengdur afsláttur og afsláttur vegna andláts maka eða skyndilegrar örorku. Sjá nánar hér
Já, það er leikur að læra, lifa og njóta í leikskólum Hafnarfjarðar!
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…
Allt er að smella hjá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem úthlutar á morgun mat og gjöfum til um 300 hafnfirskra einstæðinga og…
Sóli Hólm hefur aldrei sýnt oftar í Bæjarbíói en fyrir þessi jól. Alls 41 sýning og sú síðasta á Þorláksmessu.…
„Hafnarfjarðarkortið er lykillinn að Hafnarfirði,“ segir Þóra Hrund Guðbrandsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Hafnarfjarðar um þetta glænýja hafnfirska gjafa- og inneignarkort „Þetta…