Leikskóladagurinn

Nýtt skipulag  fyrir leikskóladaginn

Nýtt skipulag  fyrir leikskóladaginn í Hafnarfirði tekur gildi frá og með 1. september 2024. Starfsemi innan leikskóladagsins verður tvíþætt með fagstarfi og frjálsum tíma, leikskólagjöld lægri í takti við styttri og sveigjanlegan dvalartíma, leikskóladagatalið verður 180 dagar og aðrir dagar verða sérstakir skráningardagar.  

Leikskóladeginum skipt upp – tvíþætt starfsemi innan dagsins  

Markvisst fagstarf fer fram frá kl. 9-15 á daginn alla virka daga. Frjáls tími og leikstundir frá 7:30-9 og eftir kl. 15 á daginn. 

Leikskóladagatal – skráningardagar  

Breytingar verða gerðar á leikskóladagatali. Leikskóladagar verða að jafnaði 180 dagar á ári. Aðrir dagar eru svokallaðir skráningardagar. Á þessum dögum þarf að skrá börn sérstaklega í leikskólann að öðrum kosti er litið svo á að þau séu í fríi. Skráning fer fram í Völu á þessum sérstöku skráningardögum og er á ábyrgð foreldra. Leikskólar tilkynna skráningardaga sérstaklega áður en til þeirra kemur.

Skoða leikskóladagatalið 2024-2025

Skráningardagar eru eftirfarandi:  

  • Tveir dagar í október þegar vetrarfrí er í grunnskólum Hafnarfjarðar  
  • Frá og með 21. desember til og með 2. janúar   
  • Tveir  dagar í febrúar þegar vetrarfrí er í grunnskólum Hafnarfjarðar  
  • Þrír dagar í dymbilviku fyrir páska  
  • Frá og með 10. júní – 10. ágúst 
  • Börn taka fjögurra vikna samfellt í sumarfrí yfir sumartímann  

Lækkun leikskólagjalda

Leikskólagjöld fyrir 30 stunda dvöl og skemur á viku lækka umtalsvert eða allt að 30%. Gjöld fyrir 40 klukkustunda dvöl á viku verða óbreytt. Dæmi: Frá og með 1. september 2024 verða mánaðargjöld fyrir 40 stundir á viku kr. 41.042.- og fyrir 30 stundir á viku kr. 19.962.-  Munurinn er kr. 21.080.- á mánuði eða kr. 231.880.- á ári miðað við ellefu mánuði og einn mánuð í sumarfrí. Eftir því sem dvalarstundum fækkar þá lækka gjöldin eins og sjá má á meðfylgjandi töflu sem sýnir gjöld með fæðisgjaldi.

 

Dvalarstundir 01.05.2024 01.09.2024
4.0 24.133 kr 14.890 kr
4.5 25.937 kr 15.539 kr
5.0 27.741 kr 16.188 kr
5.5 29.545 kr 16.836 kr
6.0 33.826 kr 19.962 kr
6.5 35.630 kr 23.212 kr
7.0 37.434 kr 26.462 kr
7.5 39.238 kr 33.752 kr
8.0 41.042 kr 41.042 kr
8.5 45.605 kr 45.605 kr

Sveigjanlegur dvalartími  

Breytilegur dvalartími skapar svigrúm fyrir fjölskyldur til að sníða leikskóladvöl barna að þörfum fjölskyldunnar.  Með breytilegum dvalartíma greiða fjölskyldur einungis fyrir þann tíma sem er nýttur og möguleiki verður á að lækka leikskólagjöld. Breytilegur dvalartími milli daga stendur öllum leikskólabörnum til boða, að lágmarki 20 tíma dvöl á viku þar sem lágmarksdvöl eru 4 stundir á dag alla virka daga. Foreldrum/forsjáraðilum gefst kostur á að skrá börn sín í sveigjanlega dvöl í upphafi hverrar annar eða eigi síðar en 15. ágúst fyrir haustönn og 15. desember fyrir vorönn. Hægt verður að haga skráningum þannig að dvölin sé mismunandi eftir dögum en þó aldrei meira en 42,5 tímar á viku.  

Jákvæð áhrif á starfsaðstæður í leikskóla að stytta dvalartíma barns  

Styttri dvalartími á leikskóla hefur jákvæð áhrif á skólastarfið sem og börnin sem dvelja í leikskólanum. Styttingin er til þess fallin að minnka álag á börn og starfsfólk, styrkja faglegt starf og auðvelda mönnun. Ef foreldrar stytta dvalartíma, eins og kostur er, lækka leikskólagjöld í samræmi við það.   

Fyrirspurnum um breytingarnar skal beina til viðeigandi leikskóla

Spurt og svarað vegna breytinganna

Uppfærð reiknivél leikskólagjalda verður aðgengileg frá og með 1. ágúst 2024. Hægt verður að nota reiknivélina til þess að skoða hvernig leikskólagjöld reiknast miðað við daglegan dvalartíma barns. Vakin er sérstök athygli á því að hægt er að hafa mismunandi dvalartíma milli daga en lágmarksdvöl á dag eru fjórar klukkustundir alla virka daga vikunnar.  Öll stytting á dvalartíma kemur til lækkunar á leikskólagjöldum. Í reiknivélinni er einnig hægt að setja inn afslætti eftir því sem við á.  

Foreldrar/forsjáraðilar skrá beiðni um dvalartíma inn í Völuna. Skráning dvalartíma hleypur á 15, 30, 45 og 60 mínútum. Hægt verður að sækja um breytingar á vistunartíma einu sinni á önn. Fyrir haustönn er síðasti dagur skráningar í breytilega leikskóladvöl 15. ágúst og fyrir vorönn 15. desember.  Leikskólastjóri þarf að samþykkja beiðni um dvalartíma hverju sinni.   

Skráningu fyrir skráningardaga lýkur 20. dag mánaðarins á undan. Þannig greiðist gjaldið fyrir sérstaka skráningardaga með reikningi fyrir þann mánuð sem skráningardagarnir eru í.  Dæmi: Skráningu fyrir skráningardaga í desember lýkur 20. nóvember. Gjaldið fyrir skráningardaga í desember greiðist með desemberreikningi. Leikskólagjöld hvers mánaðar taka þannig mið af fjölda skráningardaga hverju sinni.   

Já, skráður dvalartími getur ekki hafist seinna en kl. 9 á hverjum degi. Lágmarksdvalartími er 4 klukkustundir á dag, hvern virkan dag vikunnar. Dvalartími getur verið sveigjanlegur umfram 4 klukkustundir á dag.  

Já, hægt er að hafa mismunandi dvalartíma milli daga en lágmarksdvöl á dag eru 4 klukkustundir. Breytingar á dvalartíma eru gerðar í Völunni að hámarki einu sinni á önn.  Hægt er að sækja um breytingu á dvalartíma fyrir barn einu sinni á önn. Fyrir haustönn fyrir 15. ágúst og fyrir vorönn fyrir 15. desember  

Dæmi 1: Hægt er að skrá börn í 8 tíma dvöl þrjá daga vikunnar og 6 tíma tvo daga. Samtals 36 tíma á viku og leikskólagjöld taka mið af því.  

Dæmi 2: Hægt er að skrá barn í 7,5 tíma fjóra daga vikunnar og 4 tíma einn dag, samtals 34 tíma á viku og taka leikskólagjöld mið af því.  

Stytting viðveru barns getur haft jákvæð áhrif á leikskólastarfið í heild sinni. Færri börn í rými hefur m.a þau áhrif að minnka streitu hjá börnum og álag sem skapast af stærð hópa, styrkir möguleika á faglegu einstaklingsmiðaðra starfi og auðveldar mönnun. Styttri dvalartími ætti að leiða til jákvæðra áhrifa bæði á börnin sjálf  sem og starfsemi og skipulag leikskóladagsins.