Leikskólar

Leikskólinn er fyrsta skólastigið. Þar er hlúð að börnum með skapandi og hvetjandi starfi.

Leikskólar

Farsæld barna

Farsæld barna

Margs konar stoðþjónusta er fyrir hendi í leikskólum, til dæmis sérkennsla, snemmtæk íhlutun, greiningar, ráðgjöf og námskeið. Á vefsíðum hvers leikskóla er hægt að sjá úrræði sem eru í boði í þeim skóla.

Farsæld barna

Á Íslandi hafa ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna tekið gildi. Þau eiga að sjá til þess að börn og for­eldrar hafi greiðan aðgang að þeirri þjónustu sem þau þurfa og fái rétta aðstoð á réttum tíma, frá réttum aðilum.

Öll börn undir 18 ára aldri og fjölskyldur þeirra skulu hafa aðgang að tengilið þjónustu í þágu farsældar barns eftir því sem þörf krefur. Tengiliður farsældar er fyrsti snertiflötur foreldra og stuðningur. Hlutverk hans er að hafa hag barnsins í forgrunni og vinna með barni og foreldrum.

  • Hlustar á þig og veitir upplýsingar um þá þjónustu sem er í boði.
  • Skipuleggur stuðninginn í samráði við þig og barnið.
  • Hjálpar þér að koma málinu af stað og fá mat á þörfum barnsins.

Þegar barn er  við nám í leik-, grunn-, eða framhaldsskóla er tengiliður þjónustu í þágu farsældar barns starfsmaður skólans þar sem barnið er við nám eða leik.

Sérkennsla

Markmiðið með sérkennslu í leikskólum er að tryggja að börn njóti leikskóladvalarinnar og fái fjölbreytilega kennslu sem taki mið af þörfum barnsins. Leikskólar bera ábyrgð á að börn sem þess þurfa hljóti sérkennslu.

Í hverjum leikskóla starfar sérkennslustjóri sem er faglegur umsjónarmaður sérkennslu skólans. Sérkennslu- og kennsluráðgjafar starfa sem tengiliðir barna.

Í einhverjum tilvikum getur barn þurft að sækja stuðning utan leikskóla, til dæmis iðjuþjálfun, sjúkraþjálfun eða talþjálfun. Umsækjendur senda beiðni til deildarstjóra greiningar- og ráðgjafadeildar.

Sálfræðiþjónusta

Sálfræðingar leikskóla gera athuganir á leikskólabörnum og veita starfsfólki leikskóla og foreldrum ráðgjöf. Beiðnir um sálfræðiþjónustu þurfa að berast til sérkennslustjóra leikskóla á þar til gerðu eyðublaði, sem útfyllt er í samstarfi foreldra og leikskóla. Samþykki foreldra fyrir beiðni þarf alltaf að liggja fyrir.

Talmeinaþjónusta

Talmeinafræðingar gera athuganir á leikskólabörnum og veita starfsfólki leikskóla og foreldrum ráðgjöf. Beiðnir um athugun talmeinafræðings þurfa að berast til sérkennslustjóra leikskóla á þar til gerðu eyðublaði, sem útfyllt er í samstarfi foreldra og leikskóla. Samþykki foreldra fyrir beiðni þarf alltaf að liggja fyrir.

Uppeldi – PMTO foreldrafærni og SMT skólafærni

PMTO stendur fyrir „Parent Management Training – Oregon aðferð“, sem er aðferð fyrir foreldra og aðra sem koma að uppeldi. PMTO er gagnreynd aðferð sem dregur úr hegðunarerfiðleikum barna og unglinga og eflir foreldra í hlutverki sínu. Fjölbreytt úrræði, námskeið og ráðgjöf er í boði fyrir foreldra.

SMT-skólafærni er hliðstæð aðferð og PMTO þar sem lögð er áhersla á að koma í veg fyrir og draga úr hegðunarvanda.