Góður hafnfirskur sigur í danskepnni Samfés

Barnvænt sveitarfélag Fréttir

Við Hafnfirðingar áttum okkar fólk í efstu sætum í danskeppni Samfés og þremur efstu í aldursflokknum 10-12 ára.

Dansað til sigurs í Samfés

Algjörlega frábær árangur náðst þegar danskeppni Samfés fór fram í félagsmiðstöðinni Garðalundi í febrúar. Keppnin tókst einstaklega vel. Við Hafnfirðingar áttum okkar fólk í efstu sætum og þremur efstu í aldursflokknum 10-12 ára.

Mikil stemning ríkti í salnum og greinilegt að keppendur höfðu lagt mikla vinnu og metnað í atriðin sín.

Keppt var í einstaklings- og hópakeppni í aldurshópunum 10–12 ára og 13–16 ára. Atriðin voru fjölbreytt, skapandi og kraftmikil og gaman var að sjá hversu mikla dansgleði og hæfileika ungmennin sýndu á sviðinu.

Dómarar keppninnar voru Baldvin, Inga María og Eydís Gauja. Þau áttu ekki auðvelt verk fyrir höndum við að velja sigurvegara.

Sigurvegarar keppninnar voru eftirfarandi:

10–12 ára – einstaklingskeppni

🥇 – Elísabet Lea – Ásinn – HFJ

🥈 – Myrra – Vitinn – HFJ

🥉 – Bella – Vitinn – HFJ

10–12 ára – hópakeppni

🥇 – X-12 – Arnardalur

🥈 – Two jerks – Hraunið – HFJ

🥉 – Dance girls – Ekkó

13–16 ára – einstaklingskeppni

🥇 – Elena Bilic – Pegasus

🥈 – Sunneva – Fellið

🥉 – Guðrún Telma – Mosinn – HFJ

13–16 ára – hópakeppni

🥇 – Dancing Queeeens – Setrið og Ásinn – HFJ

🥈 – Spell on you – Zelsíus

🥉 – Katseye aðdáendur – Afdrep

Ábendingagátt