Göngum í skólann hefst á morgun

Fréttir

Á morgun miðvikudaginn 6. september hefst verkefnið Göngum í skólann í ellefta sinn hér á landi. Verkefnið verður sett  og lýkur því formlega með alþjóðlega Göngum í skólann deginum. Verkefnið stendur í tæpan mánuð og eða til  4. október. Markmið verkefnisins er að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni.

Ein einfaldasta leiðin til að auka hreyfingu í daglegu lífi er að velja virkan ferðamáta, svo sem göngu, hjólreiðar, hlaup, línuskauta, hjólabretti eða annað. Ávinningurinn er ekki aðeins bundinn við andlega og líkamlega vellíðan heldur er þetta einnig umhverfisvæn og hagkvæm leið til að komast á milli staða.

Á hverju ári taka milljónir barna í yfir 40 löndum víðs vegar um heiminn þátt í Göngum í skólann með einum eða öðrum hætti. Hér á landi hefur þátttakan vaxið jafnt og þétt en fyrsta árið voru þátttökuskólarnir 26 en alls 67 skólar skráðu sig til leiks árið 2016.

Á heimasíðu Göngum í skólann  eru allar nánari upplýsingar um verkefnið en þar má meðal annars finna skemmtilegar útfærslur nokkurra skóla á Íslandi á verkefninu auk ýmiss annars efnis frá þátttökuskólunum. 

 

Ábendingagátt