Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Umhverfis- og skipulagssvið Hafnarfjarðar hefur eftirlit með öllum greftri og framkvæmdum í landi bæjarins.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Samkvæmt nýrri þjónustukönnun Gallup eru níu af hverjum tíu íbúum ánægðir með Hafnarfjörð sem búsetustað eða 91%. Talan hækkar milli ára. Hafnfirðingar eru afar ánægðir með aðstöðu til íþróttaiðkunar. Einnig hvernig bærinn sinnir menningarmálum. Þar trónir bærinn á toppi 20 stærstu sveitarfélaganna.
Hafnarfjarðarbær skorar hæst allra sveitarfélaga í þjónustukönnun Gallup litið til þess hvernig sveitarfélagið sinnir menningarmálum. Allir tólf þjónustuþættirnir sem Gallup mældi fyrir Hafnarfjarðarbæ hækka milli ára utan eins sem stendur í stað.
Ljóst er að Hafnfirðingar elska bæinn sinn, því hæst er skorið þegar spurt er hversu ánægðir eða óánægðir þeir séu með sveitarfélagið sem stað til að búa á. Hafnarfjarðarbær er einnig ofan við meðaltal í öllum þáttunum.
„Þetta eru skýr skilaboð frá íbúum. Að 91% séu ánægð með Hafnarfjörð sem stað til að búa á segir okkur að við erum á réttri leið. Það er hvatning til okkar að halda áfram að bæta þjónustuna dag frá degi,“ segir Valdimar Víðisson bæjarstjóri.
Sjá má á tölunum að ánægja Hafnfirðinga með bæinn sinn sem búsetustað eykst ár frá ári. Alls voru mjög ánægðir 42% árið 2021, en 49% árið 2023. Nú í ár eru þeir 55%.
„Það er mjög ánægjulegt að sjá ánægjuna aukast ár frá ári. Þetta sýnir að umbætur í þjónustu og innviðum eru að skila sér. Líka að Hafnfirðingar eru stoltir af bænum sínum og samfélaginu,“ segir Valdimar.
Skipulagsmál sækja einnig á. Mjög ánægðum með þau fjölgar úr 9% í 12% milli ára. Mjög óánægðum fækkar úr 7% í 5%. Ljóst er að 60% eru ánægð eða mjög ánægð með skipulagsmálin.
Ánægja Hafnfirðinga með þjónustu grunnskóla eykst. Mjög ánægðum fjölgaði um 16 prósent milli ára og er nú 21%. Nú eru 72% mjög ánægð eða frekar ánægð. Ánægja með leikskóla dalar lítillega milli ára og eru nú 25% mjög ánægð í stað 29% áður.
„Breytingar taka oft á og við gerðum miklar breytingar á fyrirkomulagi leikskóladagsins. Það hefur því jafnvel áhrif hér á meðan fólk kynnist breyttum leikskóladegi,“ segir Valdimar.
Ánægja með aðstöðuna til íþróttaiðkunar í Hafnafirði mælist enn mjög há. 86% eru mjög eða frekar ánægð með hana. „Við viljum að fólk á öllum aldri eigi auðvelt með að hreyfa sig og vera með í öflugu íþrótta- og tómstundastarfi. Það hefur verið gert vel í þessum málaflokki undanfarin ár og ætlum að halda áfram á þeirri vegferð,“ segir Valdimar.
Alls eru 64% mjög eða frekar ánægð með þjónustu við eldri borgara og 60% við fatlað fólk í sveitarfélaginu. „Það er jákvætt að Hafnarfjörður mælist ofan við meðaltal í þjónustu við eldra fólk og fatlað fólk. Í þessum málaflokkum, sem og öðrum, eru tækifæri til úrbóta. Við ætlum að rýna niðurstöðurnar og sjá hvar við getum gert betur,“ segir Valdimar.
Skoðun íbúa á sorphirðunni stendur í stað milli ára, þar sem 64% eru frekar eða mjög ánægðir en 19% frekar eða mjög óánægð.
Hafnarfjarðarbær situr í 2.-3. sætis tuttugu stærstu sveitarfélaganna, rétt ofan við fjögur næstu sem skora öll það sama.
Gallup gerir árlega þjónustukönnun meðal tuttugu stærstu sveitarfélaga landsins þar sem spurt er um viðhorf til þjónustu sveitarfélaganna í ýmsum málaflokkum bæði út frá reynslu og áliti.
Könnunin var gerð 17. nóvember 2025 til 13. janúar 2026. Alls svöruðu 438 sem eru 18 ára og eldri könnuninni hér í Hafnarfiðri, lagskipt tilviljunarúrtak 18 ára og eldri úr viðhorfahópi Gallup.
Niðurstöður gefa hugmynd um ánægju íbúa með ákveðna þjónustuþætti óháð því hvort viðkomandi nýti sér þjónustuna eða ekki. Samhliða fást upplýsingar um þjónustuþætti sem gott væri að rýna betur. Niðurstöðurnar þjónustukönnunar voru birtar á fundi bæjarráðs í morgun.
Hafnfirski leikskólinn Álfasteinn fær Orðsporið 2026 á Degi leikskólans, sem er í dag, 6. febrúar. Hefðbundið er að veita Orðsporið,…
Lítið vatn er í Hamarskotslæknum vegna viðgerða á fráveitulögn sem liggur í honum. Lækurinn verður aftur stíflaður á morgun og…
Samkvæmt nýrri þjónustukönnun Gallup eru níu af hverjum tíu íbúum ánægðir með Hafnarfjörð sem búsetustað eða 91%. Talan hækkar milli…
Fyrsta vinnustofan af fjórum um lýðræðisþátttöku íbúa af erlendum uppruna verður haldin í Nýsköpunarsetrinu næsta laugardag.
Margt er í boði á Vetrarhátíð 2026. Rýndu í dagskrána og fáðu innblástur við uppröðunina. Þannig verður helgin frábær.
Leikararnir Bjarni og Gúa Margrét, jazzband og Sundhöllin okkar leika aðalhlutverkið þegar kvikmyndin When Harry met Sally lifnar við hér…
Hvernig upplifðir þú Jólaþorpið? Hvernig getum við bætt það? Tjáðu skoðun þína í stuttri netkönnum sem gefur okkur tækifæri til…
Byggðasafn Hafnarfjarðar hlaut 5,9 milljónir króna í styrki við aðalúthlutun safnasjóðs Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins.
„Vika6 er kynfræðsla í sinni víðustu mynd,“ segir Kristín Blöndal Ragnarsdóttir kynfræðslukennari en þemað í þessari sjöttu viku ársins í…
Tæpum 15 milljónum af 34 milljón króna veltu Hafnarfjarðarkortsins hefur verið varið í vörur og þjónustu hafnfirskra fyrirtækja frá því…