Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Hamarinn ungmennahús Hafnarfjarðar fékk Hvatningarverðlaun Samfés fyrir verkefnið sitt ,,Liggur þér eitthvað á hjarta?“ sem snýst um að veita ungu hafnfirsku fólki greiða og skjóta þjónustu að ráðgjöfum frá Berginu headspace og Samtökunum 78 og sálfræðiþjónustu.
Hamarinn ungmennahús Hafnarfjarðar fékk Hvatningarverðlaun Samfés fyrir verkefnið sitt ,,Liggur þér eitthvað á hjarta?“ sem snýst um að veita ungu hafnfirsku fólki greiða og skjóta þjónustu að ráðgjöfum frá Berginu headspace, Samtökunum 78 og sálfræðiþjónustu. Sex verkefni voru valin úr miklum fjölda frábærra verkefna og tilnefninga. Verkefni Hamarsins var eitt þeirra og þykir verkefnið vera öðrum til eftirbreytni og hvatning til góðra verka.
Frá og með 1. febrúar á þessu ári hefur Bergið headspace verið með um 40 viðtöl í Hamrinum og sálfræðingar Hamarsins verið vel nýttir. Oftar en ekki þá hittir unga fólkið ráðgjafann frá Berginu fyrst sem svo leiðir þau áfram í frekari úrræði eins og Stígamót eða til sálfræðinga Hamarsins. Hægt er að bóka viðtöl á www.bergid.is og www.samtokin.is og taka fram í athugasemdum þá ósk að fá ráðgjöfina í Hamrinum. Ef óskað er eftir að hitta sálfræðing beint þá er haft samband við Möggu Gauju á netfangið mgm@hafnarfjordur.is, DM á FB eða insta eða í síma 664-5551.
Hamarinn er ungmennahús fyrir ungt fólk á aldrinum 16-25 ára í gömlu skattstofunni að Suðurgötu 14 sem starfar eftir gildum jafnréttis, vináttu og vellíðunar. Í Hamrinum er mjög góð aðstaða fyrir viðburði og er ungt fólk hvatt til að halda tónleika, myndlistasýningar, stunda hugleiðslu og íhugun eða að spila Dungeons og Dragons langt fram á kvöld í húsnæðinu á þeirra eigin forsendum. Í Hamrinum er alltaf kósý stemning og tilvalið að kíkja í pool, horfa á þætti, tefla, grípa í gítar, spila eða bara vera til og spjalla. Hamarinn er í virku samstarfi við Rauða krossinn og er með skipulagt félagsstarf fyrir ungt fólk á flótta og ungt fólk af erlendu bergi brotnu. Í Hamarinn er allt ungt fólk velkomið og er starfsfólk boðið og búið til aðstoðar með allt það sem liggur ungu fólki Hafnarfjarðar á hjarta, bæði á íslensku og ensku.
Hvatningarverðlaun Samfés eru veitt á aðalfundi samtakanna ár hvert. Markmið þeirra er að hvetja og vekja athygli á því öfluga starfi sem fer fram í félagsmiðstöðvum og ungmennahúsum um land allt. Við val er haft til hliðsjónar að verkefnið sé öðrum til eftirbreytni og hvatning til góðra verka. Mikill fjöldi frábærra verkefna var tilnefndur til hvatningarverðlauna 2021.
Félagsskapur Karla í skúrnum hefur vaxið og dafnað allt frá því hann var stofnaður 2018 – fyrst hér í Hafnarfirði.…
Stór dagur var hjá Miðstöð vinnu og virkni í gær. Þórdís Rúriksdóttir, forstöðumaður Miðstöðvarinnar, segir að þótt dagurinn hafi verið…
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…
Allt er að smella hjá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem úthlutar á morgun mat og gjöfum til um 300 hafnfirskra einstæðinga og…