Hamingjudagar í Hafnarfirði í september
Hittu hamingjuna í Hafnarfirði í september. Fjöldi viðburða sem efla andann, bæta líðan okkar og hvetja okkur til að auka lífsgæðin. Hópur fólks sem bíður eftir þér.
Hittu hamingjuna í Hafnarfirði
Sjóbað, dáleiðsla, samvera — Allt sem kveikir á hamingjunni bíður þín á Hamingjudögum í Hafnarfirði. Gæðastundir með góðu fólki í heilsubænum Hafnarfirði.
Hamingjudagar eru nú haldnir í annað sinn. Hugmyndin kviknaði í fyrra til að bregðast við ákveðnum vísbendingum um að hamingjustuðull landsmanna fari dvínandi. Nú breytum við því og setjum mark okkar á hamingjuna – Njótum hennar hér í Hafnarfirði.
Heilsusamlegur lífsstíll og jákvætt viðhorf stuðlar að betri andlegri og líkamlegri líðan og eykur hamingju okkar.
Heilsubærinn Hafnarfjörður stendur fyrir ýmsum viðburðum sem tengjast heilsu og hamingju allan septembermánuð!
Já, hittu hamingjuna í Hafnarfirði. Viðburðirnir eru fyrir okkur öll.
Viðburðir á dagskrá
- Þriðji september. HamingjuHlaup með Krissa
- Fimmti september. Opið hús í Lífsgæðasetri St. Jó
- Ellefti september. HamingjuDáleiðsla í St. Jó
- Tólfti september. HamingjuGong við Hvaleyravatn
- Fjórtándi september. HamingjuGanga með Jónatani Garðars á Selhöfða
- Sextándi september. Hamingjustund í Helli við Helgafell
- Sautjándi september. HamingjuStund í Bæjarbíó
- Átjandi september. HamingjuSjóbað við Langeyrarmalir
- Tuttugasti og fjórði september. HamingjuStund í Bæjarbíó
- Tuttugasti og sjötti september. HamingjuPlöntuganga við Ástjörn
- Þrítugasti september. HamingjuSöngur með Guðrúnu Árný