Hamingjudagar í Hafnarfirði 2026
Hamingjudagar í Hafnarfirði Sjóbað, zumba, svefn og samvera — Allt sem kveikir á hamingjunni bíður þín á Hamingjudögum í Hafnarfirði.…
HamingjuPlöntuganga við Ástjörn
Fimmtudaginn 26. september kl. 17:30, gengið frá Ásvöllum (aðalinngangur).
Líffræðilegur fjölbreytileiki í þéttbýli
Komdu með okkur í klukkutímalanga gönguferð með leiðsögn þar sem mikilvægi þess að varðveita græn svæði fyrir bæði plöntu- og fuglasamfélög , sem og fyrir velferð mannsins verður kannað.
Í göngunni munu þátttakendur fræðast um:
– Mikilvægi þess að viðhalda neti grænna svæða um alla borg.
– Ætar plöntur sem auðvelt er að þekkja og nota ásamt ráðleggingum um hvenær og hvernig á að safna þeim í þéttbýli.
– Stjórnun „vandræða“ plantna.
– Borgarfuglar og búsvæði þeirra.
Gangan fer fram að mestu á ensku. Hvort sem þú ert vanur náttúruunnandi eða bara forvitinn um umhverfið þitt, þá býður þessi viðburður upp á eitthvað fyrir alla.
Mariana Tamayo, dósent við Háskóla Íslands, Mervi Luoma plöntufræðingur og Rebecca Thompson borgarfuglafræðingur í samstarfi við Heilsubæinn Hafnarfjörð, leiða HamingjuPlöntugöngu í Hafnarfirði.