Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Stella B. Kristinsdóttir hefur umsjón með og yfirsýn yfir það faglega forvarna- og frístundastarf sem er að eiga sér stað innan grunnskóla Hafnarfjarðarbæjar í starfi sínu sem fagstjóri málaflokkanna. Hún fer víða í starfi sínu og vinnur náið með deildarstjórum frístundaheimila og félagsmiðstöðva, foreldrafélögum skólanna og Foreldraráði Hafnarfjarðar, íþróttafélagunum og öllum þeim sem koma að forvörnum, forvarnafræðslu og frístundastarfi í sveitarfélaginu.
Stella B. Kristinsdóttir hefur umsjón með og yfirsýn yfir það faglega forvarna- og frístundastarf sem er að eiga sér stað innan grunnskóla Hafnarfjarðarbæjar í starfi sínu sem fagstjóri málaflokkanna. Hún fer víða í starfi sínu og vinnur náið með deildarstjórum frístundaheimila og félagsmiðstöðva, foreldrafélögum skólanna og Foreldraráði Hafnarfjarðar, íþróttafélagunum og öllum þeim sem koma að forvörnum, forvarnafræðslu og frístundastarfi sveitarfélagsins.
Stella var í hópi þeirra sem sátu í pallborði hugarflugsfundarins: Við erum Þorpið – framtíðin er björt ef við viljum það öll og haldinn var í nýliðinni viku í Bæjarbíó. Hér lengst til hægri.
Stella var nýverið með aðsenda grein í Fjarðarfréttum. Við birtum þessa grein einnig hér í tilefni af viku félagsmiðstöðva og ungmennahúsa 2024 sem nú stendur yfir.
Haustið er tíminn til að tengjast. Þetta er tíminn þar sem við hittum félagana eftir langt sumarfrí og tökum upp þráðinn þar sem frá var horfið. Það er einmitt svo mikilvægt að vera í sambandi við hvert annað og halda góðum tengslum. Já, plögga sig aftur í samband.
Þátttaka í skipulögðu tómstunda- og íþróttastarfi er verndandi þáttur í lífi barna og ungmenna. Það á við um íþróttastarf, félagsstarf í æskulýðsfélögum, tónlistarnám eða þátttöku í starfi félagsmiðstöðva. Mig langar að minna á valkostinn að njóta frítímans í skipulögðu félagsmiðstöðvastarfi. Við erum svo heppin að við höfum félagsmiðstöðvar í okkar nærsamfélagi! Hlutverk þeirra er að bjóða börnum og ungmennum á aldrinum 10-16 ára upp á frístundastarf sem hefur forvarnar-, uppeldis- og menntunargildi og tekur mið af aldri þeirra og þroska.
Í starfi félagsmiðstöðva leggur starfsfólk ríka áherslu á að skapa einstaka menningu og öruggt umhverfi með börnum og ungmennum. Þátttaka í skipulögðu starfi félagsmiðstöðva og ungmennahúsa með fagfólki hefur mikilvægt forvarnargildi og eykur líkur á því að ungt fólk kjósi heilbrigðan lífsstíl og forðist áhættuhegðun. Þar er boðið upp á afþreyingaraðstöðu og samveru jafnaldra í bland við viðburði, stóra sem smáa. Áhersla er lögð á að virkja börn og ungmenni til þátttöku í starfinu og er dagskrá fjölbreytt og unnin með ungmennum. Félagsmiðstöðvar sinna einnig vettvangsstarfi bæði í sínu nærumhverfi og svo sameiginlega í starfi Götuvitans sem er flakkandi félagsmiðstöð.
Götuvitinn sinnir vettvangsstarfi eftir lögbundinn útivistartíma í samstarfi við foreldrafélög en er einnig kominn í samstarf við önnur sveitarfélög á stórhöfuðborgarsvæðinu. Öll eru velkomin í félagsmiðstöðina og hvet ég aðstandendur til að kanna dagskrána í félagsmiðstöðinni með barninu, kíkja með þeim þangað eða hvetja þau til nýta sér hana til að hittast og hangsa. Félagsmiðstöðvar eru opnar í öllum skólum mánudaga, miðvikudaga og föstudaga seinni part dags og fram á kvöld, einnig er HHH hinsegin félagsmiðstöðin opin á fimmtudögum og Músík og mótor alla virka daga 17-22.
Kynnið ykkur starf félagsmiðstöðvanna
Takk Stella og allt þitt góða fólk!
Við erum þorpið: Framtíðin er björt ef við viljum það öll
Félagsmiðstöðva- og ungmennahúsavikan 2024 stendur yfir dagana 14. – 18. október. Foreldrar, forsjáraðilar, systkini og önnur áhugasöm eru hvött til að kynna sér starfsemi félagsmiðstöðva og ungmennahúsa í Hafnarfirði og hvetja börn sín og ungmenni til virkrar þátttöku.
„Þetta hefur verið draumur hjá mér síðan ég var krakki,“ segir Knútur Hreiðarsson matreiðslumaður sem hefur ásamt eigendum Sydhavn blásið…
Yfir fimmtíu þúsund hafa nú stigið inn á Thorsplan og notið Jólaþorpsins með okkur. Nú hefst sjötta og síðasta helgi…
Félagsskapur Karla í skúrum hefur vaxið og dafnað allt frá því hann var stofnaður 2018 – fyrst hér í Hafnarfirði.…
Stór dagur var hjá Miðstöð vinnu og virkni í gær. Þórdís Rúriksdóttir, forstöðumaður Miðstöðvarinnar, segir að þótt dagurinn hafi verið…
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.