Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Hafnarfjarðarbær óskaði á haustmánuðum 2019 eftir áhugasömum þróunaraðilum til þátttöku í uppbyggingu byggðar á fjórum lóðum í fyrsta áfanga Hamraness í Hafnarfirði. Lóðunum var úthlutað til fjögurra hópa m.a. arkitekta, hönnuða og byggingaraðila sem hafa tekið höndum saman við mótun áhugaverðra hugmynda fyrir svæðið. Gert er ráð fyrir að fyrstu íbúðirnar fari í sölu innan tveggja ára.
,,viðtökur lóðaúthlutunar afar jákvæðar fréttir inn í hafnfirskt samfélag“ segir bæjarstjóri.
Hafnarfjarðarbær óskaði á haustmánuðum 2019 eftir áhugasömum þróunaraðilum til þátttöku í uppbyggingu byggðar á fjórum reitum í fyrsta áfanga Hamraness í Hafnarfirði. Alls bárust 11 umsóknir. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar staðfesti, á fundi sínum sl. miðvikudag, tillögu bæjarráðs um úthlutun reitanna til fjögurra hópa sem samsettir eru af arkitektum, hönnuðum og byggingaraðilum og tekið hafa höndum saman við mótun áhugaverðra hugmynda fyrir svæðið. Gert er ráð fyrir að fyrstu íbúðirnar fari í sölu innan tveggja ára.
Bregðast við þörf á markaði
Ákveðið var að fara óhefðbundna leið við úthlutun fyrstu reita á þessu nýja 25 hektara byggingarsvæði sem stendur við uppland Hafnarfjarðar. Þannig var óskað eftir umsóknum frá samstarfshópum um þróun fyrstu reitanna í fyrsta áfanga svæðisins með það fyrir augum að bregðast við þörf á markaði og sjónarmiðum. Fyrirkomulagið og framkvæmdin skapar samstarfsvettvang fyrir hugmyndir um minni íbúðir, byggingakostnað, sjálfbærni, endurvinnslu, ferðakostnað og breytt búsetuform. „Hugmyndin er að skipulag þessa svæðis endurspegli þörf á markaði. Það er mikil eftirspurn eftir fallegum íbúðum á góðu verði. Við viljum mæta þessari eftirspurn á einu fallegasta og fjölskylduvænasta byggingarsvæði höfuðborgarsvæðisins,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar. ,,Það er ákaflega ánægjulegt að finna fyrir þessum mikla áhuga á svæðinu. Viðtökurnar eru afar jákvæðar fréttir inn í hafnfirskt samfélag, ekki síst á þessum tímum sem við erum að ganga í gegnum.“
Hóparnir fjórir sem fengu úthlutun voru 1) Arkís, Verkís og Circular solutions með reit fyrir 75 íbúðir, 2) Verkland, VSÓ ráðgjöf, Tendra og Klinka með reit fyrir 50 íbúðir, 3) Prospectus með reit fyrir 75 íbúðir og 4) GP arkitektar, X-JB ehf og VSÓ ráðgjöf ehf með reit fyrir 110-130 íbúðir. Skipulagsvinna í Hamranesi er komin vel á veg og er gert ráð fyrir að fleiri lóðum í 1. áfanga svæðisins verði úthlutað á næstu vikum. Þrjár lóðir í 1. áfanga eru ætlaðar íbúðafélaginu Bjargi og er þar gert ráð fyrir uppbyggingu um 150 íbúða. Skarðshlíðarhverfi sem liggur við að Hamranesi rís hratt þessa dagana. Frumbyggjar fluttu inn í hverfið síðasta sumar og rekstur leik- og grunnskóla í hverfinu kominn á fullt. Íþróttahús og útibú tónlistarskóla verða afhent í sumar.
Mynd sem fylgir frétt er hluti af þeim hugmyndum sem bárust frá umsóknaraðilum. Hér mynd frá GP arkitektum.
Sjá fundargerð bæjarstjórnar frá 1. apríl 2020 – liður 4
Yfir fimmtíu þúsund hafa nú stigið inn á Thorsplan og notið Jólaþorpsins með okkur. Nú hefst sjötta og síðasta helgi…
Félagsskapur Karla í skúrum hefur vaxið og dafnað allt frá því hann var stofnaður 2018 – fyrst hér í Hafnarfirði.…
Stór dagur var hjá Miðstöð vinnu og virkni í gær. Þórdís Rúriksdóttir, forstöðumaður Miðstöðvarinnar, segir að þótt dagurinn hafi verið…
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…