Innritun í grunnskóla frestað til 19. mars

Fréttir

Innritun í grunnskóla Hafnarfjarðar hefst 19. mars. Þegar hefur verið opnað fyrir innritun á frístundaheimilin og er sótt um þau í gegnum Völu  í gegnum Mínar síður á vef bæjarins.

Já, það er líka gaman í grunnskóla

Stefnt er að því að opnað fyrir innritun barna í 1. bekk grunnskóla í Hafnarfirði 19. mars næstkomandi. Innrituninni hefur seinkað vegna vandkvæða við yfirfærslu í miðlægt kerfi á landsvísu. Við biðjumst velvirðingar á seinkuninni, sem snertir öll stóru sveitarfélögin.

Þegar hefur verið opnað fyrir skráningu nemenda í frístund á frístundaheimili hvers og eins skóla. Sótt er um frístundaheimili í gegnum Völu en um skólavist í gegnum Mínar síður á vef bæjarins.

Hafnarfjörður er eitt skólaumdæmi skipt í skólahverfi

Grunnskólar Hafnarfjarðarbæjar eru opnir öllum börnum óháð búsetu í bænum. Foreldrar eru hvattir til að kynna sér starfsemi skólanna. Hafnarfjörður er eitt skólaumdæmi skipt upp í skólahverfi og ræður lögheimili nemenda því í hvaða hverfisskóla þeir eiga vísa skólavist. Við vekjum athygli ykkar á því að yngsta stig Skarðshlíðarskóla er fullsetið.

Athugið að umsóknir um aðra grunnskóla í sveitarfélaginu og í grunnskóla í öðrum sveitarfélögum þurfa að berast beint til viðkomandi skóla og ef/þegar sú skólavist er samþykkt þarf að sækja um greiðsluþátttöku Hafnarfjarðarbæjar vegna skólavistarinnar. Sótt er um rafrænt í gegnum Mínar síður undir:

Ítarlegri upplýsingar sendar frá skóla þegar nær dregur

Sá skóli þar sem barn fær skólavist sendir foreldrum/forsjáraðilum allar mikilvægar upplýsingar um skólastarfið þegar nær dregur vori. Sendar verða upplýsingar m.a. um mataráskrift og sérstök leikjanámskeið sem haldin eru í ágúst ár hvert fyrir 6 ára nemendur. Það undirbýr þau áður en grunnskólinn hefst.

Skráning á 6 ára námskeið fer fram á vormánuðum og er auglýst sérstaklega.

 

 

Ábendingagátt