Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Nokkuð sterk jarðskjálftahrina hefur gengið yfir á Reykjanesi síðustu daga og viku. Af því tilefni er almenningur hvattur til þess að kynna sér varnir og viðbúnað vegna jarðskjálfta þannig að sem flestir og helst allir séu meðvitaðir um rétt viðbrögð. Áhersla er lögð á að undirbúa fólk undir það sem mögulega gæti gerst.
Nokkuð sterk jarðskjálftahrina hefur gengið yfir á Reykjanesi síðustu daga og viku. Af því tilefni er almenningur hvattur til þess að kynna sér varnir og viðbúnað vegna jarðskjálfta þannig að sem flestir og helst allir séu meðvitaðir um rétt viðbrögð. Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu, lögreglustjórann á Suðurnesjum og Veðurstofu Íslands, lýstu í síðustu viku yfir hættustigi almannavarna vegna jarðskjálftahrinunnar og er það gert til að samhæfa aðgerðir og verklag ýmissa verklagsaðila og stofnana og hefur ekki áhrif á almenning. Áhersla er lögð á að undirbúa fólk undir það sem mögulega gæti gerst.
Ítarlegar upplýsingar um viðbrögð við og eftir jarðskjálfta er að finna á vef almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra ásamt upplýsingum um varnir og viðbúnað vegna skjálfta.
Húsgögn:Festið skápa, hillur og þunga muni í gólf eða vegg. Hafið hjól sem eru á húsgögnum alltaf í læstri stöðu. Ef engin læsing er á hjólunum, setjið þá ramma utan um hjólin til að koma í veg fyrir að húsgögnin fari af stað í jarðskjálfta. Munið hins vegar að rammi eða læsing á hjólum kemur ekki í veg fyrir að húsgögn velti. Festið létta skrautmuni með kennaratyggjó.
Lausir munir og skrautmunir:Stillið þungum munum ekki ofarlega í hillur eða á veggi án þess að festa þá tryggilega. Hægt er að nota kennaratyggjó til að tryggja að léttari munir færist ekki úr stað við jarðskjálfta. Þungur borðbúnaður og hlutir eru best geymdir í neðri skápum, helst lokuðum.
Kynditæki og ofnar:Festið kynditæki og ofna. Kynnið ykkur staðsetningu og lokun á vatnsinntaki og rafmagnstöflu. Festið hitaveituofna tryggilega. Leki getur valdið miklu tjóni ef ekki er lokað strax fyrir vatnið. Sama gildir um frágang á þvottavélum og uppþvottavélum.
Myndir, ljósakrónur:Festið myndir og ljósakrónur í lokaðar lykkjur.
Skápahurðir:Geymið þungan borðbúnað í neðri skápum / skúffum og setjið öryggislæsingar / barnalæsingar á skápahurðir til varnar að innihald þeirra falli út úr þeim.
Svefnstaðir:Fyrirbyggið að skápar, málverk, brothættir og þungir munir geti fallið á svefnstaði. Varist að hafa rúm við stóra glugga og hlaðna milliveggi.
Loft og gólf:Gangið vel frá niðurhengdum loftum og upphækkuðum gólfum.
Rúður:Byrgið fyrir glugga eða setjið öryggisfilmu á rúður til að koma í veg fyrir skæðadrífu glerbrota ef rúða brotnar. Látið rúm ekki standa undir gluggum ef hætta er á jarðskjálftum.
Tryggingar:Bætur Náttúruhamfaratryggingar Íslands á fasteignum eru miðaðar við brunatryggingar, sem eru skyldutryggingar.
Útvarp og tilkynningar:Hlustið á tilkynningar og fyrirmæli sem gefin eru í útvarpi. Gott er að hafa útvarp með langbylgju ef FM sendar detta út. Þá er hægt að hlusta á útvarp í bílum.
Símar:Farsímar duga skammt ef rafmagn dettur út í lengri tíma. Þá getur verið gott að eiga hleðslutæki til að hafa í bifreið eða hleðslubanka til að hlaða farsíma. Sendu SMS til þinna nánustu í stað þess að hringja (sérstaklega eftir stóran jarðskjálfta) til að minnka álag á símkerfi í hamförum.
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…
Allt er að smella hjá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem úthlutar á morgun mat og gjöfum til um 300 hafnfirskra einstæðinga og…
Sóli Hólm hefur aldrei sýnt oftar í Bæjarbíói en fyrir þessi jól. Alls 41 sýning og sú síðasta á Þorláksmessu.…
„Hafnarfjarðarkortið er lykillinn að Hafnarfirði,“ segir Þóra Hrund Guðbrandsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Hafnarfjarðar um þetta glænýja hafnfirska gjafa- og inneignarkort „Þetta…