Kjörstaðir í Hafnarfirði vegna forsetakosninga

Fréttir

Kjörfundur í Hafnarfirði vegna forsetakosninganna 1. júní 2024 hefst kl. 9 og lýkur kl. 22. Kjörstaðir í Hafnarfirði eru Lækjarskóli, Sólvangsvegi 4 og Ásvellir, íþróttamiðstöð.

Hvar kýst þú?

Kjörfundur í Hafnarfirði vegna forsetakosninganna 1. júní 2024 hefst kl. 9 og lýkur kl. 22. Kjörstaðir í Hafnarfirði eru Lækjarskóli, Sólvangsvegi 4 og Ásvellir, íþróttamiðstöð.

Smelltu hér til að finna þína kjördeild

Hjá Þjóðskrá geta kjósendur kannað hvar þeir eru á kjörskrá í forsetakosningunum 1. júní 2024. Þegar slegin er inn kennitala kemur upp nafn, lögheimili og sveitarfélag. Yfirleitt birtast einnig upplýsingar um kjörstað og kjördeild. Viðmiðunardagur kjörskrár er 24. apríl. Flutningur lögheimilis eftir uppgefinn tíma breytir ekki skráningu á kjörskrá. Kjósendum ber að framvísa persónuskilríki á kjörstað. Kjósendum er einnig bent á kosningavefinn www.kosning.is

Yfirkjörstjórn Hafnarfjarðar

Yfirkjörstjórn Hafnarfjarðar skipa þau Þórdís Bjarnadóttir, Hildur Helga Gísladóttir og Helena Mjöll Jóhannsdóttir. Yfirkjörstjórn hefur aðsetur í Lækjarskóla á kjördag á meðan á kjörfundi stendur. Símanúmer á kjörstöðum er: 555 0585 í Lækjarskóla og 525 8700 á Ásvöllum.

Ábendingagátt