Komdu og upplifðu Hafnarfjörð!

Fréttir

Hafnarfjörður er einstakur bær. Þar eru ævintýri og djúp saga við hvert fótmál, miðbærinn er fullur af lífi og hafnarsvæðið heillandi.

<img height=”1″ width=”1″ src=”https://www.facebook.com/tr?id=516144258555826&ev=PageView&noscript=1″/>

Hafnarfjörður er einstakur bær. Þar eru ævintýri og djúp saga við hvert fótmál, miðbærinn er fullur af lífi og hafnarsvæðið heillandi.

Hafnarborg1

Áhugaverð sýning um sýn átta samtímaljósmyndara á Hafnarfjörð stendur nú yfir í Hafnarborg.

Á síðustu árum hefur sprottið upp um allan bæ fjölbreytt verslun og þjónusta, veitingastaðir og kaffihús sem íbúar og vinir Hafnarfjarðar nýta sér óspart. Þannig geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi. Hvort sem það er útivist í upplandi Hafnarfjarðar á Helgafelli, við Hvaleyrarvatn eða Ásfjallið, leikur og fjör á Víðistaðatúni og í Hellisgerði eða menningarleg upplifun í miðbæ Hafnarfjarðar þar sem finna má hvort tveggja Byggðasafn Hafnarfjarðar , sem er með sýningar í fimm húsum og á Strandstíg, og listasafnið Hafnarborg .

Frítt á öll söfn

Menningarbærinn Hafnarfjörður tekur vel á móti listunnendum og áhugasömum um sögu Fjarðarins og fólksins sem hann byggði. Þannig hefur list og menning frá upphafi spilað mikilvægt hlutverk í hafnfirsku samfélagi. Frítt er inn á öll söfn Hafnarfjarðar. Því er tilvalið að njóta dagsins á rölti um miðbæinn, drekka í sig söguna og menninguna og upplifa á sama tíma allt það sem miðbær Hafnarfjarðar hefur upp á að bjóða.

Hafnarborg, menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar, er opin frá kl. 12 til 17 alla daga vikunnar nema á þriðjudögum þegar safnið er lokað. Frá 1. júní til 31. ágúst er Byggðasafn Hafnarfjarðar opið alla daga frá kl. 11 til 17.

Starfsmenn

Mannauður safna Hafnarfjarðar er mikill. Hér má sjá Rósu Karen Borgþórsdóttur, safnvörð á Byggðasafni, og Nínu Friðriksdóttur, afgreiðslufulltrúa í Hafnarborg.

Hafnfirðingar og aðrir Íslendingar eru duglegir að heimsækja söfnin í Hafnarfirði en erlendir ferðamenn eru líka farnir að gera það í auknum mæli. Fólk er farið að sjá hve greitt aðgengið er að hafnfirskri menningu og sögu. Fjölbreytileiki sýninga, viðburða og hvers kyns skemmtana er gríðarlega mikill.

Hið náttúrulega umhverfi árið 2019

Þessa dagana stendur meðal annars yfir í Hafnarborg áhugaverð sýning átta samtímaljósmyndara sem endurspeglar sýn þeirra á Hafnarfjörð. Sýningarstjóri er Kirsten Simonsen og listamennirnir eru Daniel Reuter, Marino Thorlacius, Pamela Perez, Pétur Thomsen, Spessi, Staś Zawada, Stuart Richardson og Svala Ragnars. Öll eiga þau það sameiginlegt að hafa unnið að ljósmyndaverkefnum í Hafnarfirði og umhverfis bæinn á árunum 2006 til 2019. Verkin á sýningunni varpa ljósi á tímahvörf bæjarins. Þau gefa innsýn í hið nýja og oft á tíðum flókna bæjarfélag sem er að myndast, hið náttúrulega umhverfi í Hafnarfirði árið 2019. Áherslur og nálgun listamannanna er mjög ólík. Þeir hafa reikað um götur Hafnarfjarðar, meðal annars með barnavagn, séð heilu hverfin taka á sig mynd í útjaðri bæjarins, heimsótt iðnaðarhverfi sem þarfnast endurbóta og fundið merki um huldufólk. Listamennirnir hafa upplifað óspillta fegurð og einstæð augnablik í umhverfinu og samfélaginu sem oft falla í skuggann. Myndir þeirra fanga á sama tíma ferskleika, hlýju og fábrotin sérkenni sem gera Hafnarfjörð einstakan og öðruvísi. 

Sýningarskrá Hafnarborgar er fjölbreytt en að jafnaði eru í safninu haldnar 10–12 myndlistarsýningar á ári, þar sem finna má verk er spanna íslenska listasögu allt frá þjóðargersemum frumkvöðlanna til tilraunakenndra verka samtímalistamanna. Fyrirlestrar og málþing í tengslum við sýningar safnsins eru fastur liður í dagskránni.

Áhersla er lögð á að bjóða upp á samtal gesta við listamenn og sýningarstjóra og stuðla þannig að áhugaverðari upplifun af sýningum. Listasmiðjur og leiðsagnir fyrir börn eru einnig reglulegir viðburðir. Yfir veturinn eru hádegistónleikar haldnir mánaðarlega og er þar lögð áhersla á klassíska tónlist, auk þess sem samtímatónleikaröðin Hljóðön skipar veglegan sess í dagskránni.

Ábendingagátt