Umsóknarfrestur

Kosningar: Framboðsfrestur rennur út 10. apríl

Fréttir

Minnum á að framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninga í Hafnarfirði sem fram fara laugardaginn 16. maí 2026 rennur út föstudaginn 10. apríl nk., kl. 12.00.

Sveitarstjórnarkosningar 16. maí 2026

Minnum á að framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninga í Hafnarfirði sem fram fara laugardaginn 16. maí 2026 rennur út föstudaginn 10. apríl nk., kl. 12.00.

Yfirkjörstjórn mun þann dag hafa aðsetur í fundarsal bæjarráðs Hafnarfjarðar, Strandgötu 6, 2. hæð frá kl. 10:00 – 12:00 og veita framboðslistum viðtöku.

Tilkynningu um framboð er einnig hægt að skila rafrænt fyrir ofangreindan tímafrest á netfangið yfirkjorstjorn@hafnarfjordur.is

Yfirkjörstjórn mun á sama stað halda fund laugardaginn 11. apríl nk., kl. 12:00 til þess að úrskurða um framboð og listabókstafi að viðstöddum umboðsmönnum framboðslista.

  • Nánari upplýsingar og leiðbeiningar má nálgast á vefnum:  www.kosning.is

 

Hafnarfirði 30. mars 2026

Yfirkjörstjórn Hafnarfjarðar,

Þórdís Bjarnadóttir

Helena Mjöll Jóhannsdóttir

Hildur Helga Gísladóttir

 

Ábendingagátt