Lagnavinna við Hlíðarbraut

Tilkynningar

Framkvæmdir við lagnavinnu eru að hefjast við Hlíðarbraut í Hafnarfirði. Reiknað er með að verkið hefjist mánudaginn 24. apríl og eru áætluð verklok 1. júní 2023.

 

Framkvæmdir við lagnavinnu við Hlíðarbraut

Framkvæmdin felst í að koma nýjum heimtaugum, fráveitu og neysluvatni ásamt öðrum veitulögnum að fjórum nýjum lóðum við Hlíðarbraut 10-16 í Hafnarfirði. Framkvæmdin mun hafa tímabundnar takmarkanir á umferð. Reiknað er með að verkið hefjist mánudaginn 24. apríl og eru áætluð verklok 1. júní 2023. Verktaki er Verktækni ehf.

 

 

Ábendingagátt