Leikskólinn Áshamar er staðsettur í Hamranesi í Hafnarfirði. Glæsilegur leikskóli með rekstrarleyfi fyrir 120 börn og skiptist skólinn í þrjú stig: yngsta-, mið- og elsta stig.

Áshamar býður upp á framúrskarandi aðstöðu fyrir bæði börn og starfsfólk í fallegu náttúrulegu umhverfi með fjölbreyttu gróðurfari og einstökum jarðfræðilegum sérkennum. Umhverfið er dýrmæt tækifæri til útikennslu þar sem börn fá að læra í gegnum upplifanir og reynslu í náttúrunni.

Overlay Overlay

Leiðarljós

Fjölbreytileiki

Virðing

Félagsfærni

Hugmyndafræði

Fjölbreytileiki og virðing fyrir þörfum barna: Framtíðarfólk túlkar fjölbreytileiki þannig að hver einstaklingur er einstakur og viðurkennir einstaklings mun okkar. Með því að samþætta fjölbreytileika í kennsluháttum og leikskólastarfi er tryggt að börn fái nám sem mætir þörfum þeirra á einstaklingsbundinn hátt. Þetta felur í sér að börnin fái tækifæri til að læra á sínum forsendum, í umhverfi þar sem virðing fyrir fjölbreytileika er í fyrirrúmi. Leikurinn er sú aðferð sem börn á leikskólaaldri nota til þess að læra um þá menningu og það samfélag sem þau alast upp í. Leikurinn er góð leið til þess að kenna börnum að fjölbreytileikinn sé jákvæður, fólk sé ólíkt en eigi margt sameiginlegt.

 

Hæglæti

Hæglæti í leikskólastarfi er ein af megináherslum leikskólans okkar er hæglæti sem felur í sér að skapa rólegt og yfirvegað umhverfi þar sem börnin fá nægan tíma til að upplifa, kanna og læra á eigin hraða. Í samfélagi þar sem hraði og áreiti eykst stöðugt, teljum við mikilvægt að veita börnum rými til að njóta stundarinnar og dýpka skilning sinn á umhverfin og sjálfum sér. Hæglætisnálgunin stuðlar að vellíðan og dregur úr streitu hjá börnum og starfsfólki. Hún eflir athygli, einbeitingu og sköpunargáfu barna með því að leyfa þeim að njóta leikja og verkefna án þess að vera stöðugt trufluð eða knúin áfram af tímapressu. Róleg og hlýleg stund í góðum félagsskap gefur börnum betri tækifæri til að þróa félagsfærni, tilfinningagreind og sjálfstæði.

Útikennsla

Útikennsla er eitt helsta einkennið í starfi leikskólans Áshamar. Börnin læra í náttúrulegu umhverfi þar sem þau fá tækifæri til að kanna og prófa sig áfram. Þetta nám byggir á því að börn þróa sjálfstæði, sjálfstraust og félagsfærni með því að vera virk úti í náttúrunni. Náttúruleg svæði í kringum leikskólann, svo sem hraunbreiður og fjölbreyttur gróður, verða nýtt til að efla tengsl barna við náttúruna.

Stjórnendur

Farsæld barna

Öll börn eiga rétt á að fá þá þjónustu sem þau þurfa þegar á þarf að halda. Það getur verið flókið að fá aðstoð við hæfi og vita hvert eigi að leita eftir henni. Ný farsældarlög eiga að tryggja að börn og foreldrar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum.

Þjónusta fyrir börn

Þjónusta fyrir börn er veitt á þremur þjónustustigum. Gott er að hafa í huga að þjónustan er stigskipt en ekki mál barnsins sem slíkt. Þannig geta börn fengið þjónustu á fleiri en einu þjónustustigi.

Tengiliður farsældar í Áshamri er

Hagnýtar upplýsingar

Leikskólakerfið Vala er mikilvægur hluti af leikskólastarfinu í Hafnarfirði. Þar færðu tilkynningar og fréttir frá leikskólanum um dagskrá, svefn, mat og hvernig dagurinn hefur gengið. Þú getur á einfaldan hátt tilkynnt forföll, sent skilaboð, séð matseðil og leikskóladagatalið. Einnig fara umsóknir um leikskólavist, breytingar og flutningar í gegnum Völu.

Vala er aðgengileg í vafra og í appi á snjalltækjum. Appið er á íslensku, ensku og pólsku. Það þarf rafræn skilríki til að skrá sig inn.

Þegar barn byrjar í leikskóla er mikilvægt að það gerist smám saman svo barnið verði öruggt í nýju umhverfi og njóti sín sem best. Í aðlögun kynnist barnið starfsfólki, hinum börnunum og leikskólanum. Aðlögun er líka tími fyrir foreldra og starfsfólk að kynnast og styrkja samstarf á milli heimilis og skóla.

Fyrsti dagurinn er yfirleitt stuttur, en tíminn lengist smám saman til að gefa barninu svigrúm til að venjast breyttum aðstæðum. Þetta hjálpar einnig til við að draga úr þreytu og spennu. Hversu lengi foreldrar eru með barninu í aðlögun fer eftir leikskóla og þörfum barnsins, en yfirleitt má búast við viðveru fyrstu vikuna.

Gott er að gera ráð fyrir meiri sveigjanleika í vinnu fyrst um sinn ef mögulegt er, því stundum þarf að sækja barnið með stuttum fyrirvara. Aðlögunarferlið getur í heildina tekið allt að 4–6 vikur, en ferlið er alltaf lagað að þörfum hvers barns.

Veikindi á að tilkynna leikskólanum gegnum Völu. Það er góð og gild regla að miða við að barn sé hitalaust heima í einn dag eftir veikindi. Algengt er að börn sem hefja leikskólaskólagöngu fái fjölmargar pestir fyrsta hálfa árið.

Það þarf að láta starfsfólk vita þegar komið er með barn á leikskólann og þegar barn er sótt. Þetta er mikilvægt öryggisatriði. Þegar sótt er um leikskóladvöl er skráð hverjir mega sækja barnið. Ef þarf að breyta því er hægt að tala við deildarstjóra.

Börnin fara vanalega alltaf út á hverjum degi. Þegar barn byrjar í leikskóla er gott að ræða við starfsfólk um hvað sé nauðsynlegt að taka með í skólann, til dæmis aukaföt, útiföt og skó sem henta íslensku veðri, sólaráburð, bleyjur, blautþurrkur og fleira.
Blaut og skítug föt eiga að fara með heim í lok dags en þurr föt má geyma í leikskólanum. Á föstudögum á að taka allt sem tilheyrir barninu heim. Mikilvægt er að merkja öll föt vel.

Börn fá morgunmat, hádegismat og síðdegishressingu í leikskólanum. Börnin þurfa því alla jafna ekki að koma með nesti. Ef barn getur ekki borðað einhvern mat vegna mataróþols, ofnæmis eða af trúarlegum ástæðum er mikilvægt að upplýsa leikskólastarfsfólk um það.

Venjulegir leikskóladagar eru 180 dagar á ári. Aðrir dagar þar sem leikskólinn er opinn en gætu fallið undir frí eru kallaðir skráningardagar. Á þeim dögum þarf að skrá börn sérstaklega í leikskólann, annars er litið á að þau séu í fríi. Leikskólar tilkynna skráningardaga með góðum fyrirvara og biðja um skráningu.
Skoða leikskóladagatalið 2024-2025

  • 2 dagar í október þegar vetrarfrí er í grunnskólum Hafnarfjarðar.
  • Frá og með 21. desember til og með 2. janúar.
  • 2 dagar í febrúar þegar vetrarfrí er í grunnskólum Hafnarfjarðar.
  • 3 dagar í dymbilviku fyrir páska.
  • Frá og með 10. júní til 10. ágúst.
  • Börn taka fjögurra vikna samfellt sumarfrí yfir sumartímann.

Leikskólar í Hafnarfirði eru lokaðir 5 daga á ári vegna skipulagsdaga, auk þess eru 4 skertir skóladagar yfir árið vegna skipulags skólastarfs. Leikskólarnir eru alltaf lokaðir á rauðum dögum. Þú getur séð dagatal leikskólans í Völu.

Leikskólar í Hafnarfirði eru lokaðir í 3 vikur í júlí en börn taka að lágmarki fjögurra vikna samfellt sumarleyfi. Það er ekki rukkað fyrir leikskólagjöld í sumarfríi eða þegar það er lokað.

Breytilegur dvalartími á milli daga skapar svigrúm fyrir fjölskyldur til að sníða leikskóladvöl barna að sínum þörfum. Fjölskyldur greiða bara fyrir þann tíma sem er nýttur og þannig er möguleiki á að lækka leikskólagjöldin. Lágmarksdvöl er 4 stundir á dag sem gerir að lágmarki 20 tíma dvöl á viku. Hámark er 42,5 stundir á viku (8,5 stundir á dag).

Skráning í sveigjanlega dvöl er í upphafi hverrar annar, eða í síðasta lagi:

  • 15. ágúst fyrir haustönn
  • 15. desember fyrir vorönn

Í leikskólanum er skipulögð dagskrá. Það er gott fyrir börnin að hafa ákveðna rútínu og vita hvað gerist næst, það er grundvöllur að öryggistilfinningu. Með þekktri dagskrá vita börnin að hverju þau ganga á hverjum degi og skipulagið kemur í veg fyrir óþarfa biðtíma og árekstra í samskiptum. Á haustin fá foreldrar skóladagatal fyrir veturinn þar sem fyrirkomulag hvers mánaðar er kynnt í grófum dráttum.

Leikskóladeginum skipt upp í tvennt

  • Markvisst fagstarf er frá kl. 9–15 alla virka daga.
  • Frjáls tími og leikstundir eru frá 7:30–9 og eftir kl. 15 á daginn.

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sendir út tilkynningar um veður þegar á þarf að halda, í samráði við lögreglu og fræðsluyfirvöld.
Mikilvægt er að foreldrar og forsjáraðilar fylgist vel með fréttum af veðri, veðurspám og öðrum tilmælum frá yfirvöldum sem gætu haft áhrif á skólastarf barna og bregðist við í samræmi við aðstæður hverju sinni.

Leiðbeiningar fyrir foreldra

Ábendingagátt