Leikskólinn Hlíðarberg er í Setbergshverfi í Hafnarfirði og tók til starfa 25. mars 1993. Þar dvelja að jafnaði 94 börn á aldrinum 1–6 ára og starfa 30 starfsmenn. Leikskólinn er með 5 deildir í tveimur húsum: Dvergahlíð, Hamrahlíð, Álfahlíð, Klettahlíð og Tröllahlíð.

Overlay Overlay

Leiðarljós

Hreyfing

Sköpun

Vellíðan

Hugmyndafræði

Einkunnarorð Hlíðarbergs, hreyfing, sköpun og vellíðan, fléttast inn í alla þætti daglegs starfs. Börnin fá fjölbreytt tækifæri til að hreyfa sig, bæði í skipulögðum hreyfistundum, frjálsum leik og útiveru, sem stuðlar að vellíðan þeirra. Okkur þykir mikilvægt að börnin finni fyrir ró, sátt og yfirvegun í daglegri iðju. Þess vegna vinnum við markvisst með næringu, hvíld og samskipti til að tryggja andlega og líkamlega vellíðan.

Leikurinn er kjarninn í kennsluaðferðum okkar. Börnin fá að læra á eigin forsendum og þróa þekkingu sínu í frjálsum leik með öðrum börnum. Við beitum könnunarleik, könnunaraðferðum og stöðvavinnu sem hluta af náminu. Reggio Emilia-hugmyndafræðin er innblásturinn þar sem skapandi hugsun er lykilatriði og endurnýtanlegur efniviður notaður í leik og sköpun.

Lýðræði, virðing fyrir mannréttindum barna og viðurkenning á hæfileikum þeirra er grundvöllur menntunar. Við vinnum markvisst að því að efla sjálfsmynd barna, stuðla að gagnrýnni hugsun og virku samstarfi við foreldra og samfélagið.

Stjórnendur

Ólafía Guðmundsdóttir

Leikskólastjóri

Jóna Rut Jónsdóttir

Aðstoðarleikskólastjóri

Ágústa María Jónsdóttir

Sérkennslustjóri

Sigríður Auðunsdóttir

Deildarstjóri á Álfahlíð

Lilja Rún Kristbjörnsdóttir

Deildarstjóri á Klettahlíð

Edda Ýr Pimenta Glaeser

Deildarstjóri á Hamrahlíð

Særún Hrund Ragnarsdóttir

Deildarstjóri á Dvergahlíð

Hólmfríður Sjöfn Jónsdóttir

Deildarstjóri á Tröllahlíð

Farsæld barna

Öll börn eiga rétt á að fá þá þjónustu sem þau þurfa þegar á þarf að halda. Það getur verið flókið að fá aðstoð við hæfi og vita hvert eigi að leita eftir henni. Ný farsældarlög eiga að tryggja að börn og foreldrar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum.

 

Þjónusta fyrir börn

Þjónusta fyrir börn er veitt á þremur þjónustustigum. Gott er að hafa í huga að þjónustan er stigskipt en ekki mál barnsins sem slíkt. Þannig geta börn fengið þjónustu á fleiri en einu þjónustustigi.

Tengiliður farsældar í Hlíðarbergi er Ágústa María Jónsdóttir.

 

Foreldrasamvinna

Boðið er upp á formleg foreldraviðtöl einu sinni á skólaári, en foreldrar geta fengið samtal oftar ef þeir þurfa. Þá eru haldnir foreldrafundir á hverju hausti þar sem hver deild kynnir starfsemi vetrarins og það sem fram undan er.

Foreldrafélag

Foreldrafélag er starfandi við leikskólann Hlíðarberg. Aðalfundur félagsins er haldinn að hausti ár hvert og þar er kosin ný stjórn. Félagið stendur meðal annars fyrir fjölskylduferðum, skemmtiatriðum og leiksýningum, bæði fyrir jól og á sumarhátíð barnanna, sem og að fá jólasvein á jólaball leikskólans. Þá hefur félagið nýtt rekstrarafgang til kaupa á leikföngum fyrir leikskólann.

Foreldraráð

3 fulltrúar foreldra ásamt leikskólastjóra sitja í foreldraráði Hlíðarbergs. Hlutverk foreldraráðs er að gefa umsagnir um skóladagatal, skólanámskrá og aðrar áætlanir sem varða starfsemi leikskólans.

Í ráðinu sitja:

  • Sólrún Heiðarsdóttir
  • Lísbet Guðný Þórarinsdóttir
  • Agnes Gústafsdóttir

Hagnýtar upplýsingar

Leikskólakerfið Vala er mikilvægur hluti af leikskólastarfinu í Hafnarfirði. Þar færðu tilkynningar og fréttir frá leikskólanum um dagskrá, svefn, mat og hvernig dagurinn hefur gengið. Þú getur á einfaldan hátt tilkynnt forföll, sent skilaboð, séð matseðil og leikskóladagatalið. Einnig fara umsóknir um leikskólavist, breytingar og flutningar í gegnum Völu.

Vala er aðgengileg í vafra og í appi á snjalltækjum. Appið er á íslensku, ensku og pólsku. Það þarf rafræn skilríki til að skrá sig inn.

Þegar barn byrjar í leikskóla er mikilvægt að það gerist smám saman svo barnið verði öruggt í nýju umhverfi og njóti sín sem best. Í aðlögun kynnist barnið starfsfólki, hinum börnunum og leikskólanum. Aðlögun er líka tími fyrir foreldra og starfsfólk að kynnast og styrkja samstarf á milli heimilis og skóla.

Fyrsti dagurinn er yfirleitt stuttur, en tíminn lengist smám saman til að gefa barninu svigrúm til að venjast breyttum aðstæðum. Þetta hjálpar einnig til við að draga úr þreytu og spennu. Hversu lengi foreldrar eru með barninu í aðlögun fer eftir leikskóla og þörfum barnsins, en yfirleitt má búast við viðveru fyrstu vikuna.

Gott er að gera ráð fyrir meiri sveigjanleika í vinnu fyrst um sinn ef mögulegt er, því stundum þarf að sækja barnið með stuttum fyrirvara. Aðlögunarferlið getur í heildina tekið allt að 4–6 vikur, en ferlið er alltaf lagað að þörfum hvers barns.

Veikindi á að tilkynna leikskólanum gegnum Völu. Það er góð og gild regla að miða við að barn sé hitalaust heima í einn dag eftir veikindi. Algengt er að börn sem hefja leikskólaskólagöngu fái fjölmargar pestir fyrsta hálfa árið.

Það þarf að láta starfsfólk vita þegar komið er með barn á leikskólann og þegar barn er sótt. Þetta er mikilvægt öryggisatriði. Þegar sótt er um leikskóladvöl er skráð hverjir mega sækja barnið. Ef þarf að breyta því er hægt að tala við deildarstjóra.

Börnin fara vanalega alltaf út á hverjum degi. Þegar barn byrjar í leikskóla er gott að ræða við starfsfólk um hvað sé nauðsynlegt að taka með í skólann, til dæmis aukaföt, útiföt og skó sem henta íslensku veðri, sólaráburð, bleyjur, blautþurrkur og fleira.
Blaut og skítug föt eiga að fara með heim í lok dags en þurr föt má geyma í leikskólanum. Á föstudögum á að taka allt sem tilheyrir barninu heim. Mikilvægt er að merkja öll föt vel.

Börn fá morgunmat, hádegismat og síðdegishressingu í leikskólanum. Börnin þurfa því alla jafna ekki að koma með nesti. Ef barn getur ekki borðað einhvern mat vegna mataróþols, ofnæmis eða af trúarlegum ástæðum er mikilvægt að upplýsa leikskólastarfsfólk um það.

Venjulegir leikskóladagar eru 180 dagar á ári. Aðrir dagar þar sem leikskólinn er opinn en gætu fallið undir frí eru kallaðir skráningardagar. Á þeim dögum þarf að skrá börn sérstaklega í leikskólann, annars er litið á að þau séu í fríi. Leikskólar tilkynna skráningardaga með góðum fyrirvara og biðja um skráningu.
Skoða leikskóladagatalið 2024-2025

  • 2 dagar í október þegar vetrarfrí er í grunnskólum Hafnarfjarðar.
  • Frá og með 21. desember til og með 2. janúar.
  • 2 dagar í febrúar þegar vetrarfrí er í grunnskólum Hafnarfjarðar.
  • 3 dagar í dymbilviku fyrir páska.
  • Frá og með 10. júní til 10. ágúst.
  • Börn taka fjögurra vikna samfellt sumarfrí yfir sumartímann.

Leikskólar í Hafnarfirði eru lokaðir 5 daga á ári vegna skipulagsdaga, auk þess eru 4 skertir skóladagar yfir árið vegna skipulags skólastarfs. Leikskólarnir eru alltaf lokaðir á rauðum dögum. Þú getur séð dagatal leikskólans í Völu.

Leikskólar í Hafnarfirði eru lokaðir í 3 vikur í júlí en börn taka að lágmarki fjögurra vikna samfellt sumarleyfi. Það er ekki rukkað fyrir leikskólagjöld í sumarfríi eða þegar það er lokað.

Breytilegur dvalartími á milli daga skapar svigrúm fyrir fjölskyldur til að sníða leikskóladvöl barna að sínum þörfum. Fjölskyldur greiða bara fyrir þann tíma sem er nýttur og þannig er möguleiki á að lækka leikskólagjöldin. Lágmarksdvöl er 4 stundir á dag sem gerir að lágmarki 20 tíma dvöl á viku. Hámark er 42,5 stundir á viku (8,5 stundir á dag).

Skráning í sveigjanlega dvöl er í upphafi hverrar annar, eða í síðasta lagi:

  • 15. ágúst fyrir haustönn
  • 15. desember fyrir vorönn

Í leikskólanum er skipulögð dagskrá. Það er gott fyrir börnin að hafa ákveðna rútínu og vita hvað gerist næst, það er grundvöllur að öryggistilfinningu. Með þekktri dagskrá vita börnin að hverju þau ganga á hverjum degi og skipulagið kemur í veg fyrir óþarfa biðtíma og árekstra í samskiptum. Á haustin fá foreldrar skóladagatal fyrir veturinn þar sem fyrirkomulag hvers mánaðar er kynnt í grófum dráttum.

Leikskóladeginum skipt upp í tvennt

  • Markvisst fagstarf er frá kl. 9–15 alla virka daga.
  • Frjáls tími og leikstundir eru frá 7:30–9 og eftir kl. 15 á daginn.

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sendir út tilkynningar um veður þegar á þarf að halda, í samráði við lögreglu og fræðsluyfirvöld.
Mikilvægt er að foreldrar og forsjáraðilar fylgist vel með fréttum af veðri, veðurspám og öðrum tilmælum frá yfirvöldum sem gætu haft áhrif á skólastarf barna og bregðist við í samræmi við aðstæður hverju sinni.

Leiðbeiningar fyrir foreldra

Ábendingagátt