Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Hér er að finna upplýsingar um úrræði fyrir börn og fjölskyldur á vegum Hafnarfjarðarbæjar
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Hraunvallaleikskóli er staðsettur á Völlunum í Hafnarfirði í nálægð við ósnortna náttúru. Leikskólinn er í sama húsnæði og Hraunvallaskóli og samstarfið er náið. Elstu börnin heimsækja reglulega 1. bekk, nýta skólabókasafnið og borða hádegismat með grunnskólabörnum. Í leikskólanum dvelja samtímis um 105 börn á 6 deildum: Haga, Holti, Hóli, Höfða, Norðurhlíð og Suðurhlíð.
Hraunvellir byggir starf sitt á hugmyndafræði John Dewey, þar sem áhersla er lögð á fjölmenningu og virðingu fyrir öllum einstaklingum, óháð kyni, menningu eða uppruna. Markmiðið er að veita öllum börnum jöfn tækifæri til náms.
Skólinn hefur einnig unnið að þróunarverkefni um snemmtæka íhlutun og heldur áfram því góða starfi í samræmi við lög um samþættingu þjónustu til að tryggja farsæld barna.
Einkunnarorð leikskólans, Vinátta, samvinna og ábyrgð, eru leiðarljós í öllum samskiptum starfsfólks, barna og foreldra og endurspeglast í öllu starfi. Skólinn varð nýlega aðili að verkefninu Barnvænt samfélag sem byggir á Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og nýjum farsældarlögum.
Við vinnum að því að verða heilsueflandi leikskóli sem leggur áherslu á heilbrigðan lífsstíl barna og starfsfólks. Með þessum áherslum tryggjum við að börnin njóti stuðnings til að vaxa og dafna í umhverfi sem styður við heilsu, vellíðan og jafnrétti í samfélaginu.
Leikskólastjóri
Aðstoðarleikskólastjóri
Sérkennslustjóri
Deildarstjóri á Holti
Deildarstjóri á Haga
Deildarstjóri á Hóli
Deildarstjóri á Höfða
Deildarstjóri á Norðurhlíð
Deildarstjóri á Suðurhlíð
Öll börn eiga rétt á að fá þá þjónustu sem þau þurfa þegar á þarf að halda. Það getur verið flókið að fá aðstoð við hæfi og vita hvert eigi að leita eftir henni. Ný farsældarlög eiga að tryggja að börn og foreldrar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum.
Tengiliður farsældar á Hraunvallaleikskóla er Gréta Ýr Jóngeirsdóttir.
Foreldrafélag er starfandi við leikskólann. Foreldrafélagið stendur til dæmis fyrir jólaballi, sumarhátíð og vorferð. Þá hefur það séð um að jólasveinninn gefi börnunum gjafir á jólaballi og veitir styrk fyrir útskriftarferðum.
Boðið er upp á formleg foreldraviðtöl einu sinni yfir skólaárið, vanalega að hausti. Foreldrum er líka alltaf velkomið að óska eftir fundi við deildarstjóra eða leikskólastjóra. Árlega er haldinn foreldrafundur þar sem farið er yfir starfið og kosið í foreldraráð.
Í foreldraráði leikskólans eru fjórir foreldrar. Kosið er í foreldraráð að hausti. Foreldraráð
gefur umsagnir um skólanámskrá og hefur umsagnarrétt um meiri háttar breytingar á leikskólastarfi.
Í ráðinu sitja:
Leikskólakerfið Vala er mikilvægur hluti af leikskólastarfinu í Hafnarfirði. Þar færðu tilkynningar og fréttir frá leikskólanum um dagskrá, svefn, mat og hvernig dagurinn hefur gengið. Þú getur á einfaldan hátt tilkynnt forföll, sent skilaboð, séð matseðil og leikskóladagatalið. Einnig fara umsóknir um leikskólavist, breytingar og flutningar í gegnum Völu.
Vala er aðgengileg í vafra og í appi á snjalltækjum. Appið er á íslensku, ensku og pólsku. Það þarf rafræn skilríki til að skrá sig inn.
Þegar barn byrjar í leikskóla er mikilvægt að það gerist smám saman svo barnið verði öruggt í nýju umhverfi og njóti sín sem best. Í aðlögun kynnist barnið starfsfólki, hinum börnunum og leikskólanum. Aðlögun er líka tími fyrir foreldra og starfsfólk að kynnast og styrkja samstarf á milli heimilis og skóla.
Fyrsti dagurinn er yfirleitt stuttur, en tíminn lengist smám saman til að gefa barninu svigrúm til að venjast breyttum aðstæðum. Þetta hjálpar einnig til við að draga úr þreytu og spennu. Hversu lengi foreldrar eru með barninu í aðlögun fer eftir leikskóla og þörfum barnsins, en yfirleitt má búast við viðveru fyrstu vikuna.
Gott er að gera ráð fyrir meiri sveigjanleika í vinnu fyrst um sinn ef mögulegt er, því stundum þarf að sækja barnið með stuttum fyrirvara. Aðlögunarferlið getur í heildina tekið allt að 4–6 vikur, en ferlið er alltaf lagað að þörfum hvers barns.
Veikindi á að tilkynna leikskólanum gegnum Völu. Það er góð og gild regla að miða við að barn sé hitalaust heima í einn dag eftir veikindi. Algengt er að börn sem hefja leikskólaskólagöngu fái fjölmargar pestir fyrsta hálfa árið.
Það þarf að láta starfsfólk vita þegar komið er með barn á leikskólann og þegar barn er sótt. Þetta er mikilvægt öryggisatriði. Þegar sótt er um leikskóladvöl er skráð hverjir mega sækja barnið. Ef þarf að breyta því er hægt að tala við deildarstjóra.
Börnin fara vanalega alltaf út á hverjum degi. Þegar barn byrjar í leikskóla er gott að ræða við starfsfólk um hvað sé nauðsynlegt að taka með í skólann, til dæmis aukaföt, útiföt og skó sem henta íslensku veðri, sólaráburð, bleyjur, blautþurrkur og fleira. Blaut og skítug föt eiga að fara með heim í lok dags en þurr föt má geyma í leikskólanum. Á föstudögum á að taka allt sem tilheyrir barninu heim. Mikilvægt er að merkja öll föt vel.
Börn fá morgunmat, hádegismat og síðdegishressingu í leikskólanum. Börnin þurfa því alla jafna ekki að koma með nesti. Ef barn getur ekki borðað einhvern mat vegna mataróþols, ofnæmis eða af trúarlegum ástæðum er mikilvægt að upplýsa leikskólastarfsfólk um það.
Venjulegir leikskóladagar eru 180 dagar á ári. Aðrir dagar þar sem leikskólinn er opinn en gætu fallið undir frí eru kallaðir skráningardagar. Á þeim dögum þarf að skrá börn sérstaklega í leikskólann, annars er litið á að þau séu í fríi. Leikskólar tilkynna skráningardaga með góðum fyrirvara og biðja um skráningu. Skoða leikskóladagatalið 2024-2025
Leikskólar í Hafnarfirði eru lokaðir 5 daga á ári vegna skipulagsdaga, auk þess eru 4 skertir skóladagar yfir árið vegna skipulags skólastarfs. Leikskólarnir eru alltaf lokaðir á rauðum dögum. Þú getur séð dagatal leikskólans í Völu.
Leikskólar í Hafnarfirði eru lokaðir í 3 vikur í júlí en börn taka að lágmarki fjögurra vikna samfellt sumarleyfi. Það er ekki rukkað fyrir leikskólagjöld í sumarfríi eða þegar það er lokað.
Breytilegur dvalartími á milli daga skapar svigrúm fyrir fjölskyldur til að sníða leikskóladvöl barna að sínum þörfum. Fjölskyldur greiða bara fyrir þann tíma sem er nýttur og þannig er möguleiki á að lækka leikskólagjöldin. Lágmarksdvöl er 4 stundir á dag sem gerir að lágmarki 20 tíma dvöl á viku. Hámark er 42,5 stundir á viku (8,5 stundir á dag).
Skráning í sveigjanlega dvöl er í upphafi hverrar annar, eða í síðasta lagi:
Í leikskólanum er skipulögð dagskrá. Það er gott fyrir börnin að hafa ákveðna rútínu og vita hvað gerist næst, það er grundvöllur að öryggistilfinningu. Með þekktri dagskrá vita börnin að hverju þau ganga á hverjum degi og skipulagið kemur í veg fyrir óþarfa biðtíma og árekstra í samskiptum. Á haustin fá foreldrar skóladagatal fyrir veturinn þar sem fyrirkomulag hvers mánaðar er kynnt í grófum dráttum.
Leikskóladeginum skipt upp í tvennt
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sendir út tilkynningar um veður þegar á þarf að halda, í samráði við lögreglu og fræðsluyfirvöld. Mikilvægt er að foreldrar og forsjáraðilar fylgist vel með fréttum af veðri, veðurspám og öðrum tilmælum frá yfirvöldum sem gætu haft áhrif á skólastarf barna og bregðist við í samræmi við aðstæður hverju sinni.
Leiðbeiningar fyrir foreldra