Leikskólinn Tjarnarás hóf starfsemi sína í september 2001. Leikskólinn er staðsettur í Áslandinu þar sem stutt er í ósnortna náttúru. Í leikskólanum dvelja samtímis 80 börn á fjórum deildum: Kærleiksheimum, Glaðheimum, Ljósheimum og Stjörnuheimum.

Tjarnarás Overlay Overlay

Leiðarljós

Virðing

Ábyrgð

Hugmyndafræði

Á Tjarnarási byggir leikskólastarfið á hugmyndum heimspekingsins John Dewey um leikinn sem mikilvægustu námsleið barnsins. Við leggjum áherslu á þátttöku, frumkvæði og sköpun þar sem frjáls leikur er í fyrirrúmi. Börnin eru virkir þátttakendur í eigin námi, og hlutverk leikskólans er að skapa öruggt og lærdómsríkt samfélag þar sem þau fá að njóta sín. Við viljum að börnin hafi áhrif á umhverfi sitt og hvetjum til þess með örvandi og hvetjandi kennsluaðferðum.

Sýn okkar á börn er að þau séu fróðleiksfús, forvitin og virk í eigin lífi. Markmið okkar er að styðja við þarfir og sérstöðu hvers og eins, óháð getu, reynslu eða þroska. Góður kennari þarf að vita hvenær hann á gefa börnunum frið og hvenær hann á að vekja áhuga þeirra með spennandi og fjölbreyttum verkefnum.

Allt miðar þetta að því að búa börnunum öruggt og lýðræðislegt lærdómssamfélag þar sem siðgæðisvitund þeirra er efld og grunnur lagður að því að þau verði sjálfstæð, hugsandi, skapandi, og virkir og ábyrgir þátttakendur í lýðræðisþjóðfélagi.

 

Eygló Sif Halldórsdóttir

Leikskólastjóri

Anna Svanhildur Daníelsdóttir

Aðstoðarleikskólastjóri

Dagbjört Erla Ásgeirsdóttir

Sérkennslustjóri - Tengiliður farsældar

Lísabet Ósk Jónsdóttir

Deildarstjóri á Glaðheimum

Unnur Bryndís Daníelsdóttir

Deildarstjóri á Stjörnuheimum

Hanna Rósa Sæmundsdóttir

Deildarstjóri á Ljósheimum

Auður Ósk Hlynsdóttir

Deildarstjóri á Kærleiksheimum

Farsæld barna

Öll börn eiga rétt á að fá þá þjónustu sem þau þurfa þegar á þarf að halda. Það getur verið flókið að fá aðstoð við hæfi og vita hvert eigi að leita eftir henni. Ný farsældarlög eiga að tryggja að börn og foreldrar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum.

Þjónusta fyrir börn er veitt á þremur þjónustustigum. Gott er að hafa í huga að þjónustan er stigskipt en ekki mál barnsins sem slíkt. Þannig geta börn fengið þjónustu á fleiri en einu þjónustustigi.

Tengiliður farsældar í Tjarnarási er Dagbjört Erla Ásgeirsdóttir.

 

Foreldrasamvinna

Boðið er upp á formleg foreldraviðtöl tvisvar yfir skólaárið. Foreldrum er einnig velkomið að óska eftir fundi við deildarstjóra eða leikskólastjóra eftir þörfum.

Foreldrafélag

Í Foreldrafélagi Tjarnaráss sitja 4 foreldrar. Foreldrafélagið stendur fyrir afþreyingu fyrir börnin, eins og vorhátíð með skipulagðri dagskrá.

Foreldraráð

Í foreldraráði leikskólans eru að lágmarki þrír foreldrar og kosið er í ráðið að hausti. Foreldraráð gefur umsagnir um skólanámskrá og aðrar áætlanir varðandi starfsemi leikskólans, fylgist með framkvæmd þeirra og kynningu fyrir foreldrum. Ráðið hefur einnig umsagnarrétt um skóladagatal og meiri háttar breytingar á skólastarfinu.

Í ráðinu sitja: 

  • Arnþrúður Þórarinsdóttir
  • Valgerður María Sigurðardóttir
  • Vilhelm Már Bjarnason

 

Hagnýtar upplýsingar

Leikskólakerfið Vala er mikilvægur hluti af leikskólastarfinu í Hafnarfirði. Þar færðu tilkynningar og fréttir frá leikskólanum um dagskrá, svefn, mat og hvernig dagurinn hefur gengið. Þú getur á einfaldan hátt tilkynnt forföll, sent skilaboð, séð matseðil og leikskóladagatalið. Einnig fara umsóknir um leikskólavist, breytingar og flutningar í gegnum Völu.

Vala er aðgengileg í vafra og í appi á snjalltækjum. Appið er á íslensku, ensku og pólsku. Það þarf rafræn skilríki til að skrá sig inn.

Þegar barn byrjar í leikskóla er mikilvægt að það gerist smám saman svo barnið verði öruggt í nýju umhverfi og njóti sín sem best. Í aðlögun kynnist barnið starfsfólki, hinum börnunum og leikskólanum. Aðlögun er líka tími fyrir foreldra og starfsfólk að kynnast og styrkja samstarf á milli heimilis og skóla.

Fyrsti dagurinn er yfirleitt stuttur, en tíminn lengist smám saman til að gefa barninu svigrúm til að venjast breyttum aðstæðum. Þetta hjálpar einnig til við að draga úr þreytu og spennu. Hversu lengi foreldrar eru með barninu í aðlögun fer eftir leikskóla og þörfum barnsins, en yfirleitt má búast við viðveru fyrstu vikuna.

Gott er að gera ráð fyrir meiri sveigjanleika í vinnu fyrst um sinn ef mögulegt er, því stundum þarf að sækja barnið með stuttum fyrirvara. Aðlögunarferlið getur í heildina tekið allt að 4–6 vikur, en ferlið er alltaf lagað að þörfum hvers barns.

Veikindi á að tilkynna leikskólanum gegnum Völu. Það er góð og gild regla að miða við að barn sé hitalaust heima í einn dag eftir veikindi. Algengt er að börn sem hefja leikskólaskólagöngu fái fjölmargar pestir fyrsta hálfa árið.

Það þarf að láta starfsfólk vita þegar komið er með barn á leikskólann og þegar barn er sótt. Þetta er mikilvægt öryggisatriði. Þegar sótt er um leikskóladvöl er skráð hverjir mega sækja barnið. Ef þarf að breyta því er hægt að tala við deildarstjóra.

Börnin fara vanalega alltaf út á hverjum degi. Þegar barn byrjar í leikskóla er gott að ræða við starfsfólk um hvað sé nauðsynlegt að taka með í skólann, til dæmis aukaföt, útiföt og skó sem henta íslensku veðri, sólaráburð, bleyjur, blautþurrkur og fleira.
Blaut og skítug föt eiga að fara með heim í lok dags en þurr föt má geyma í leikskólanum. Á föstudögum á að taka allt sem tilheyrir barninu heim. Mikilvægt er að merkja öll föt vel.

Börn fá morgunmat, hádegismat og síðdegishressingu í leikskólanum. Börnin þurfa því alla jafna ekki að koma með nesti. Ef barn getur ekki borðað einhvern mat vegna mataróþols, ofnæmis eða af trúarlegum ástæðum er mikilvægt að upplýsa leikskólastarfsfólk um það.

Venjulegir leikskóladagar eru 180 dagar á ári. Aðrir dagar þar sem leikskólinn er opinn en gætu fallið undir frí eru kallaðir skráningardagar. Á þeim dögum þarf að skrá börn sérstaklega í leikskólann, annars er litið á að þau séu í fríi. Leikskólar tilkynna skráningardaga með góðum fyrirvara og biðja um skráningu.
Skoða leikskóladagatalið 2024-2025

  • 2 dagar í október þegar vetrarfrí er í grunnskólum Hafnarfjarðar.
  • Frá og með 21. desember til og með 2. janúar.
  • 2 dagar í febrúar þegar vetrarfrí er í grunnskólum Hafnarfjarðar.
  • 3 dagar í dymbilviku fyrir páska.
  • Frá og með 10. júní til 10. ágúst.
  • Börn taka fjögurra vikna samfellt sumarfrí yfir sumartímann.

Leikskólar í Hafnarfirði eru lokaðir 5 daga á ári vegna skipulagsdaga, auk þess eru 4 skertir skóladagar yfir árið vegna skipulags skólastarfs. Leikskólarnir eru alltaf lokaðir á rauðum dögum. Þú getur séð dagatal leikskólans í Völu.

Leikskólar í Hafnarfirði eru lokaðir í 3 vikur í júlí en börn taka að lágmarki fjögurra vikna samfellt sumarleyfi. Það er ekki rukkað fyrir leikskólagjöld í sumarfríi eða þegar það er lokað.

Breytilegur dvalartími á milli daga skapar svigrúm fyrir fjölskyldur til að sníða leikskóladvöl barna að sínum þörfum. Fjölskyldur greiða bara fyrir þann tíma sem er nýttur og þannig er möguleiki á að lækka leikskólagjöldin. Lágmarksdvöl er 4 stundir á dag sem gerir að lágmarki 20 tíma dvöl á viku. Hámark er 42,5 stundir á viku (8,5 stundir á dag).

Skráning í sveigjanlega dvöl er í upphafi hverrar annar, eða í síðasta lagi:

  • 15. ágúst fyrir haustönn
  • 15. desember fyrir vorönn

Í leikskólanum er skipulögð dagskrá. Það er gott fyrir börnin að hafa ákveðna rútínu og vita hvað gerist næst, það er grundvöllur að öryggistilfinningu. Með þekktri dagskrá vita börnin að hverju þau ganga á hverjum degi og skipulagið kemur í veg fyrir óþarfa biðtíma og árekstra í samskiptum. Á haustin fá foreldrar skóladagatal fyrir veturinn þar sem fyrirkomulag hvers mánaðar er kynnt í grófum dráttum.

Leikskóladeginum skipt upp í tvennt

  • Markvisst fagstarf er frá kl. 9–15 alla virka daga.
  • Frjáls tími og leikstundir eru frá 7:30–9 og eftir kl. 15 á daginn.

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sendir út tilkynningar um veður þegar á þarf að halda, í samráði við lögreglu og fræðsluyfirvöld.
Mikilvægt er að foreldrar og forsjáraðilar fylgist vel með fréttum af veðri, veðurspám og öðrum tilmælum frá yfirvöldum sem gætu haft áhrif á skólastarf barna og bregðist við í samræmi við aðstæður hverju sinni.

Leiðbeiningar fyrir foreldra

Ábendingagátt