Malbikun – Fjarðarhraun

Framkvæmdir Tilkynningar

Vegna vegaframkvæmda (malbikun) verður Fjarðarhraun lokað á milli Hafnarfjarðarvegar og Reykjanesbrautar, frá 7.júní kl.19:00 til 8.júní kl.06:00. Hjáleið verður um Reykjavíkurveg og Fjarðargötu.

Nánar:

„Vegagerðin hefur gefið heimild til eftirtalinna verka ef veður leyfir kvöldið 7.júní og aðfaranótt 8.júní.“

„Malbikun í Fjarðarhrauni ásamt hringtorgi. Framkvæmdirnar munu standa yfir frá kl.19:00 til kl.06:00 aðfaranótt 8.júní. Kaflinn er 540m langur ásamt FH hringtorgi.“

„Fjarðarhrauni verður lokað á milli Hafnarfjarðarvegar og Reykjanesbrautar á meðan framkvæmdum stendur. Hjáleið verður um Reykjavíkurveg og Fjarðargötu.“

„Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.“

Sjá yfirlitsmynd.

Fyrirfram þakkir fyrir sýndan skilning!

Ábendingagátt