Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Á fundi fræðsluráðs í morgun var samþykkt að efna til samstarfs við leik-og grunnskólana í bænum um nýtt þróunarverkefni sem beinist að því að bæta námsárangur í öllum skólum bæjarins.
Þróunarverkefnið er hugsað til tveggja ára og beinist að því að efla læsi, virkni og námsáhuga á öllum námssviðum og námsgreinum, með sérstakri áherslu á íslensku og stærðfræði.
Í bókun frá ráðinu segir að það sé stefna og markmið fræðsluyfirvalda í Hafnarfirði að hafnfirskir nemendur standi a.m.k. jafnfætis nemendum nágrannasveitarfélaga hvað námsárangur varðar og er þetta verkefni mikilvægt skref í þá átt.
,,Skólar Hafnarfjarðar hafa undanfarin 5-6 ár verið undir landsmeðaltali í samræmdum könnunarprófum og talsvert undir meðaltali annarra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Það er eitthvað sem við sættum okkur ekki lengur við og leggjum mikla áherslu á að snúa við, “ segir Rósa Guðbjartsdóttir formaður fræðsluráðs Hafnarfjarðar.
Metnaðarfullt læsisverkefni hefur verið í gangi á þessu skólaári sem gengur út á að auka lestrarfærni og lesskilning í leik- og grunnskólum bæjarins. Það nýja verkefni sem nú er samþykkt að ráðast í miðar einnig að því að efla læsi og bæta námsárangur með sérstaka áherslu á íslensku og stærðfræði og munu þessi verkefni því styðja við hvort annað. Fræðsluyfirvöld leggja áherslu á innviði skólastarfs og auk þessa sem að ofan greinir verður m.a.120 milljónum króna varið til ýmissa þróunarverkefna á yfirstandandi fjárhagsári.
„Þetta þróunarverkefni sem nú hefur verið samþykkt að ráðast í er góð viðbót við það en mun leggja sérstaka áherslu á íslensku og stærðfræði. Þessi verkefni styðja því vel hvort við annað. Við höfum allt til alls hér í Hafnarfirði til að verða í fararbroddi, frábært starfsfólk, skóla og nemendur og það þarf að komast að því hvað þarf að gera til að námsárangur verði betri og bregðast strax við með því að láta verkin tala,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir formaður fræðsluráðs.
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…
Allt er að smella hjá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem úthlutar á morgun mat og gjöfum til um 300 hafnfirskra einstæðinga og…
Sóli Hólm hefur aldrei sýnt oftar í Bæjarbíói en fyrir þessi jól. Alls 41 sýning og sú síðasta á Þorláksmessu.…
„Hafnarfjarðarkortið er lykillinn að Hafnarfirði,“ segir Þóra Hrund Guðbrandsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Hafnarfjarðar um þetta glænýja hafnfirska gjafa- og inneignarkort „Þetta…