Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Hér er að finna upplýsingar um úrræði fyrir börn og fjölskyldur á vegum Hafnarfjarðarbæjar
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Snjallmennið Auður hefur hafist handa á vef Hafnarfjarðarbæjar. Hafnarfjarðarbær er eitt allra fyrsta sveitarfélagið, ef ekki fyrst, til að fara þessa leið.
Snjallmennið Auður hefur hafist handa á vef Hafnarfjarðarbæjar. Auður er tilbúinn til aðstoða alla þá sem þurfa upplýsingar um þjónustu sveitarfélagsins.
Auður setur bæjarfélagið í fremsta flokk á Íslandi á þessu sviði. Þetta þjónustuform ný nálgun á netspjalli, sem styttir biðtíma og þjónustar samdægurs. En hvað er ólíkt með Auði og öðrum spjallmennum? Jú, hann styðst alfarið við gervigreind og hefur ekki verið mataður af þeim upplýsingum sem hann á að veita.
Ávinningur af Auði
Ávinningurinn af Auði á eftir að vaxa. Þess er vænst að hann fækki fyrirspurnum til þjónustuvers bæði síma, tölvupósti og heimsóknum. Hann á einnig að koma sterkur inn í upplýsingaleit starfsfólksins sjálfs.
Hvar má finna Auð?
Auður er mávurinn sem situr í hægra horni heimasíðu Hafnarfjarðar og þegar pikkað er í hann opnast möguleiki á að leita að svörum.
Af hverju er hann mávur? Jú, mávurinn fylgir okkur Hafnfirðingum. Þá finnum við á höfninni og við sjóinn í bænum okkar fagra.
Samþætting á vefsíðu Auður er aðgengileg af öllum síðum í gegnum spjallglugga eða tákn á hafnarfjordur.is. Auður safnar ekki persónulegum upplýsingum um einstaka notendur en hún geymir spjall þess sem hún spjallaði við á tækinu sjálfu í ákveðinn tíma svo það sé aftur aðgengilegt.
Samskipti notenda Notendur geta spurt spurninga um þjónustu, upplýsingar eða sérstök málefni sem tengjast Hafnarfirði, svo sem viðburði, leyfi, opinbera þjónustu eða samfélagið. Auk þess kann Auður nokkra brandara til að létta fólki lífið.
Skönnun efnis / Crawling Auður er knúin áfram af kerfi sem skannar og skrásetur reglulega efni af hafnarfjordur.is. Þetta tryggir að það hafi nýjustu upplýsingar til að veita réttar og nákvæmar svör. Einnig skrásetur Auður viðbrögð notenda við svörum og gefur sjálfum sér endurgjöf á eigin svörun.
Skjót svör Þegar notandi spyr spurningar leitar spjallmennið í skráðu efninu og skilar hnitmiðuðum og viðeigandi svörum samstundis. Ef þörf er á frekari upplýsingum getur það veitt tengla á viðeigandi síður. Einnig getur Auður endurskoðað svör sín ef notandinn er ekki sáttur og aftur skráð það til lærdóms.
Viðbrögð við flóknum fyrirspurnum Ef spjallmennið getur ekki svarað spurningu getur það vísað notendum á tengiliðaupplýsingar, símanúmer eða á ákveðnar deildir. Einnig er Auður með stillingar og reglur til að forðast „tilbúning“ eða „gisk“ og þannig heldur hún sér aðeins við efni sem vefurinn veitir henni. Það sem þarf að hafa í huga hér er að rangt efni á vef eykur líkur á röngum svörum.
Stöðugur lærdómur Spjallmennið bætir sig með tímanum með því að læra af samskiptum, sem tryggir betri og nákvæmari svör með hverri notkun. Einnig höfum við möguleika á að þjálfa Auði hvernig skuli svara tengt ákveðnum viðfangsefnum.
Stafrænt teymi Hafnarfjarðarbæjar vann að uppsetningu Auðs. Vinnuna leiddu Garðar Rafn Eyjólfsson og Ingvar Högni Ragnarsson í samstarfi við Avista. Hafnarfjarðarbær er eitt allra fyrsta sveitarfélagið, ef ekki fyrst, til að fara þessa leið.
Já, Auður er sannkallaður auður inn í framtíðina.
Á síðasta ári höfum við markvisst stafvætt byggingaleyfaferilinn og unnið hefur verið ávinningsmat á verkefninu. Í stuttu máli hefur stafvæðingin…
Í lok síðasta árs urðu töluverðar breytingar á stafrænni þjónustu leikskóla Hafnarfjarðarbæjar. Nýr hugbúnaður var tekinn í notkun – Vala…
Skýrsla um umferð á vef Hafnarfjarðar fyrir árið 2023 hefur verið birt. Aldrei hafa áður jafn margir sótt vefinn á…
Stafrænt vinnuafl hefur tekið til starfa hjá Hafnarfjarðarbæ. Það líkir eftir aðgerðum starfsfólks, vinnur með núverandi kerfum bæjarins og losar…
Algjör umbreyting hefur orðið á vinnubrögðum í launa- og mannauðsmálum á síðustu árum hjá Hafnarfjarðarbæ. Stærstan þátt í þeim breytingum…
Vefur Hafnarfjarðarbæjar hafnarfjordur.is er tilnefndur til íslensku vefverðlaunanna sem opinberi vefur ársins 2022 ásamt fjórum öðrum vefjum. Eldri vefur þjónaði…
Nýr vefur Hafnarfjarðarbæjar fór í loftið 10. nóvember 2022. Verkefnið átti sér talsverðan aðdraganda og vandað var til alls undirbúnings.…
Hafnarfjarðarbær efndi til ráðstefnu þann 10. nóvember 2022 um stafræna umbreytingu í sveitarfélaginu frá september 2019 til nóvember 2022 eða…
Við höfum talið mikilvægt hjá Hafnarfjarðarbæ að ýta reglulega út nýjum lausnum, stórum sem smáum, og ein þeirra fór út…
Ný útgáfa af ábendingagátt Hafnarfjarðarbæjar fór í loftið 7. febrúar á þessu ári og síðan þá hafa borist 1200 ábendingar…