Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Hér er að finna upplýsingar um úrræði fyrir börn og fjölskyldur á vegum Hafnarfjarðarbæjar
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Fjöldi skemmdarverka hafa átt sér stað víða í bænum í kringum áramót og í janúar. Bæjarblaðið Hafnfirðingur tók þetta saman, samkvæmt upplýsingum frá Hafnarfjarðarbæ, í þeirri von um að foreldrar brýni fyrir börnum sínum á ýmsum aldri að svona iðja getur verið stórhættuleg og kostnaður við viðgerðir mikill.
Björn Bögeskov Hilmarsson, forstöðumaður Þjónustumiðstöðvar Hafnarfjarðarbæjar, segir í raun mildi að enginn hafi stórslasaði sig í skemmdarfýsninni sem hefur verið óvenju áberandi á mörgum stöðum í bænum að undanförnu. „Það gleymist oft að það varðar við lög að skemma eignir annarra og það á líka við um sameiginlegar eignir bæjarfélagsins okkar. Það fjármagn sem Hafnarfjarðarbær þarf að leggja til sökum skemmdarverka eins og þessara væri sannarlega betur varið í einhverja betri og skemmtilegri málaflokka, eins og t.d. til kaupa á leiktækjum á opna leikvelli eða eitthvað sem skiptir okkur máli og er til að bæta okkar samfélag en ekki að letja það og skemma.“
Björn vill taka fram að þó að hlutir séu skráðir skemmdir þá eru þeir í raun ónýtir og verður að skipta út. „Áætlaður kostnaður við að kaupa ný ílát er um 1,6 – 1,7 milljónir króna og síðan bætist við vinna við hreinsun og förgun. Ofan á það bætist við vinna við að sækja ný ílát, festa þau niður með jarðfestingu og staurafestingum og líklegt að kostnaðurinn við það sé allavega í kringum 150 þúsund, þannig að heildarkostnaður við lagfæringar fer langt í 2 milljónir.“
Einnig vilji gleymast sú hætta sem í raun skapist við þessi skemmdarverk og ótrúleg mildi í einhverjum tilfella að ekki hafi orðið slys á fólki og/eða bifreiðum eða öðrum eignum. „Við vitum ekki hverjir gerðu þetta og á hvaða aldri. Ég vil bara gjarnan að foreldrar og/eða forráðamenn barna og unglinga ræði við börnin sín um að það hversu hættuleg þessi iðja er og fyrir afleiðingum af eignaspjöllum. Vonandi hugsa þau sig tvisvar um í framhaldinu. Þetta getur t.d. líka haft slæm áhrif á ferilskrána þeirra,“ segir Björn vongóður um betri umgengni.
Í almennum hegningarlögum er skýrt kveðið á um bæði skilgreiningu á eignaspjöllum og refsiviðurlög við þeim. Í 257. gr. segir orðrétt: „Hver, sem ónýtir eða skemmir eigur annars manns eða sviptir hann þeim, skal sæta sektum eða fangelsi allt að 2 árum.“
Viðtal við Björn var birt í Hafnfirðingi 27. janúar
Fuglaflensa hefur greinst á höfuðborgarsvæðinu. Heilbrigðiseftirlit sveitarfélagsins hefur samið við Dýraþjónustu Reykjavíkur um að fjarlæga dauða fugla. Meindýraeyðar þurfa staðsetningu…
Drög að nýrri umhverfis- og auðlindastefnu fyrir Hafnarfjörð liggja fyrir. Kallað er eftir þátttöku íbúa í rýni á drögum og…
Ákveðið hefur verið að setja upp tvo nýja ærslabelgi í Hafnarfirði á árinu 2025 á völdum opnum svæðum í bænum…
Alls voru 524 nýjar íbúðir fullbúnar í Hafnarfirði í fyrra. Þær bættust í hóp 11 þúsund íbúða í bæjarfélaginu. Nýjum…
FH, Hafnarfjarðarbær og Íþróttabandalag Hafnarfjarðar (ÍBH) hafa tekið höndum saman og bjóða frá 15. janúar fótboltaæfingar fyrir börn í 1.-10.…
Tafir hafa orðið á sorphirðu nú á nýju ári. Ljóst er að tunnurnar verða tæmdar viku á eftir áætlun. Unnið…
Algjörar skvísur verður sú fimmtánda í haustsýningarröð Hafnarborgar. Verkefnið hefur það að markmiði að gefa breiðu sviði sýningarstjóra kost á…
Alls sátu 100 foreldrar PMTO-foreldrafærninámskeið hjá Hafnarfjarðarbæ í fyrra. Foreldrarnir fá kennslu og eru þjálfaðir í styðjandi leiðum í uppeldishlutverki…
Nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Valdimar Víðisson, er með opna viðtalstíma alla þriðjudaga frá kl. 9:30 – 11:30. Viðtalstímar eru bókaðir í…
Hafnarfjarðarbær auglýsir eftir umsóknum um styrki úr húsverndarsjóði Hafnarfjarðar. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að varðveislu og viðhaldi eldri húsa…