Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Hér er að finna upplýsingar um úrræði fyrir börn og fjölskyldur á vegum Hafnarfjarðarbæjar
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Rekstrarniðurstaða Hafnarfjarðarbæjar fyrri hluta ársins var jákvæð um 483 milljónir króna en áætlun gerði ráð fyrir að rekstrarafgangur yrði 134 milljónir króna. Greining á heildarrekstri og fjármálum sveitarfélagsins og þær aðgerðir sem gripið var til eru farnar að skila væntum árangri.
Rekstrarniðurstaða Hafnarfjarðarbæjar fyrri hluta ársins var jákvæð um 483 milljónir króna en áætlun gerði ráð fyrir að rekstrarafgangur yrði 134 milljónir króna. Jákvæður viðsnúningur hefur átt sér stað í rekstri milli ára en árshlutareikningur síðasta árs hljóðaði upp á halla um 389 milljónir króna. Greining á heildarrekstri og fjármálum sveitarfélagsins og þær aðgerðir sem gripið var til í framhaldinu eru farnar að skila væntum árangri.
Veltufé frá rekstri fyrri hluta árs 2016 nam um 1.651 milljón króna sem er um 15% af heildartekjum á meðan veltufé frá rekstri var um 293 milljónir króna á fyrri árshelmingi 2015 eða um 3% af heildartekjum. Helstu frávik í rekstrarniðurstöðu árshlutareiknings 2016 eru að tekjur vegna staðgreiðslu eru umfram áætlun um 147 milljónir króna og fjármagnskostnaður um 282 milljónum króna lægri en áætlun gerði ráð fyrir vegna lægri verðbóta. Tekjur námu alls 11.129 milljónum króna sem er 153 milljónir umfram áætlun. Laun og launatengd gjöld eru, líkt og áður, stærstu útgjaldaliðir sveitarfélagsins og námu þau 5.236 milljónum króna sem er 92 milljónum krónum hærra en áætlun gerði ráð fyrir. Annar kostnaður var 3.667 milljónir sem er 46 milljónum króna undir áætlun. Rekstrarniðurstaða fyrir afskriftir var jákvæð sem nam 1.738 milljónum króna, afskriftir voru 446 milljónir króna og fjármagnsliðir 809 milljónir króna. „Áhersla hefur verið lögð á að þær aðgerðir sem gripið hefur verið til í kjölfar rekstrarúttektar bitni ekki á þjónustu sveitarfélagins við íbúa og fyrirtæki heldur er hér um að ræða endurhugsun á þeim grunni sem rekstur sveitarfélagins byggir á samhliða breytingu á forgangsröðun og verkefnum með það að markmiði að bæta reksturinn og auka þjónustu. Ef við höldum rétt á spilunum, líkt og við höfum gert síðustu mánuði, þá munum við ná að borga niður óhagstæðar skuldir, auka þjónustu, huga frekar að viðhaldi og fara að framkvæma enn meira fyrir eigið fé á næstu misserum. Ég er ákaflega stoltur af mínu fólki og þessum árangri“ segir Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri.
Rekstur málaflokka í takt við áætlanir
Rekstur málaflokka gekk vel og var í takt við áætlanir. Stærsti málaflokkurinn er sem fyrr fræðslu- og uppeldismál en til hans var varið um 5.004 milljónum króna á tímabilinu, til félagsþjónustu um 1.434 milljónum króna og til æskulýðs- og íþróttamála um 917 milljónum króna. Mikill viðsnúningur hefur orðið í rekstri sveitarfélagsins milli ára sem sést best þegar samanburður er gerður á rekstrarafgangi. Halli fyrstu 6 mánaða 2015 var um 389 milljónir króna, samanborið við 483 milljóna króna rekstrarafgang nú í ár. ,,Rekstur Hafnarfjarðarbæjar gengur vel. Árshlutauppgjörið sýnir glögglega hve mikill viðsnúningur hefur orðið á rekstrinum, sem einkum skýrist af markvissum hagræðingaraðgerðum núverandi meirihluta. Þessi jákvæða niðurstaða ber með sér að framundan er hvoru tveggja í senn, efling innviða og lækkun skulda bæjarsjóðs“ segir Rósa Guðbjartsdóttir, formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar.
Heildareignir í júnílok námu samtals 49.023 milljónum króna og höfðu þær hækkað um 543 milljónir á tímabilinu. Heildarskuldir og -skuldbindingar námu samtals 40.243 milljónum króna. Áætlanir gera ráð fyrir áframhaldandi niðurgreiðslu á skuldum á árinu og að skuldaviðmið verði komið niður fyrir 150% um mitt ár 2017. „Það er mjög ánægjulegt að sjá grundvöll og jafnvægi rekstrarins styrkjast, enda hefur viðsnúningur í fjárhag bæjarins orðið að vera í algjörum forgangi hjá okkur undanfarin misseri. Þessi árangur gefur okkur ástæðu til bjartsýni á framhaldið“ segir Guðlaug Kristjánsdóttir, forseti bæjarstjórnar Hafnarfjarðarbæjar.
Árshlutareikningur Hafnarfjarðarbæjar fyrir árið 2016 var lagður fram í bæjarráði í dag og er hann nú aðgengilegur hér
Bæjarstjórn og starfsfólk Hafnarfjarðarbæjar sendir íbúum og gestum heilsubæjarins Hafnarfjarðar hugheilar hátíðarkveðjur með hjartans þökk fyrir samstarf og samveru á…
Hér má sjá hvernær sundlaugarnar okkar, bókasafnið, byggðasafnið, þjónustuver og Hafnarborg eru opnar yfir hátíðarnar. Einnig má hér finna hagnýtar…
Síðasta Jólaþorps-helgin er nú hafin. Fjölmargt að sjá og gera. Yndislegt er að stækka enn upplifunina með því að kíkja…
Ný skammtímadvöl fyrir fötluð börn, sem tók til starfa í Hafnarfirði í haust, var formlega opnuð í vikunni þegar starfsfólk…
Rósa Guðbjartsdóttir sat sinn síðasta bæjarstjórnarfund sem bæjarstjóri á miðvikudag. Ráðningasamningur við nýjan bæjarstjóra var undirritaður á fundinum. Rósu voru…
Hátt í sjötíu voru samankomin í undirgöngunum við Hörðuvelli á föstudagseftirmiðdag þegar Byggðasafn Hafnarfjarðar opnaði sýninguna sína Köldu ljósin. Sýningin…
Gleði, eftirvænting, friður, minningar og endurfundir eru hugtök sem eiga við dæmigerð íslensk jól, ritar Arnór Bjarki Blomsterberg, sóknarprestur í…
Söfn og stofnanir bæjarins verða opin á eftirfarandi dögum og tímum yfir hátíðarnar. Löng útlán á DVD myndum gilda á…
Bestu stundirnar um jólin leynast oft í stundlaugum bæjarins. Sundlaugar Hafnarfjarðar verða opnar um jól og áramót sem hér segir.
„Við systkinin erum öll orðin svo gott sem fullorðin og tvö komin á fertugsaldur, en öll viljum við hvergi annars…