Netkönnun fyrir vinnustofu um Jólaþorpið

Fréttir Jólabærinn

Hvernig upplifðir þú Jólaþorpið? Hvernig getum við bætt það? Tjáðu skoðun þína í stuttri netkönnum sem gefur okkur tækifæri til að sníða þorpið enn betur að íbúum.

Jólaþorpið í stöðugri þróun

Hvernig upplifðir þú Jólaþorpið? Hvernig getum við bætt það? Við leitum eftir skoðun þinni og höfum sett í loftið stutta netkönnum sem gefur okkur tækifæri til að sníða þorpið enn betur að þér.

Jólaþorp Hafnarfjarðar hefur verið árlegur viðburður frá árinu 2003. Um að ræða verkefni sem við Hafnfirðingar getum verið afar stoltir af. „Jólaþorpið hefur með árunum vaxið og dafnað, fest sig rækilega í sessi meðal Hafnfirðinga. Það hefur haft jákvæð áhrif á bæjar- og viðskiptalífið. Bæjarbúar og gestir á öllum aldri hafa notið aðventunnar á einstakan hátt,“ segir Sunna Magnúsdóttir, verkefnastjóri menningar- og ferðamála.

„Jafnan hefur verið boðið upp á fjölbreytta menningarlega viðburði og uppákomur sem tengjast okkar dýrmætu jólahefðum og rík áhersla lögð á það að skapa vettvang og umhverfi þar sem allir geta notið og fundið eitthvað við sitt hæfi.“

Nú er að hefjast vinna við að rýna umgjörð, viðburði og það hvernig hægt er að efla enn frekar það sem er í boði í Jólaþorpinu okkar.

„Við viljum byggja undir styrkar stoðirnar og tryggja að íbúar og gestir á öllum aldri njóti samverunnar í aðdraganda jóla. Við viljum halda áfram að gera Jólaþorpið að skemmtilegum viðburði sem við getum öll verið stolt af. Við horfum til næstu ára hvernig við viljum þétta og betrumbæta enn frekar svo Jólaþorpið sé hér til langrar framtíðar,“ segir hún.

Áfram Jólaþorpið okkar!

Ábendingagátt