Netkönnun um ábendingagáttina okkar

Fréttir

Hvernig upplifir þú ábendingagátt Hafnarfjarðarbæjar? Hvernig getum við bætt gáttina? Við leitum eftir skoðun þinni og höfum sett í loftið stutta netkönnum sem gefur okkur tækifæri til að sníða ábendingagáttina okkar enn betur að þér. Tekið er á móti svörum til og með 22. mars nk.

Ábendingar þínar skipta máli

Hvert er þitt viðhorf og hver er þín notkun?

Undirbúningsvinna er í gangi fyrir smíði á nýrri ábendingagátt Hafnarfjarðarbæjar. Ábendingagáttin er farvegur fyrir íbúa og aðra til að koma á framfæri ábendingum um það sem betur má fara eða laga þarf í umhverfi eða þjónustu bæjarins. Í þessari könnun viljum við kanna viðhorf og notkun íbúa á núverandi ábendingagátt

Með því að svara hjálpar þú okkur að hanna ábendingagátt sem gerir þér auðveldara að hafa áhrif á þitt nærumhverfi og þjónustu bæjarins.

Það tekur um 3-5 mínútur að svara könnuninni.

Svara könnun

Ábendingagátt