Ný sýning um álfa í Hellisgerði
Hellisgerði, lystigarður Hafnarfjarðar, tekur gesti nú á ævintýralega ferð í heim álfa og huldufólks með nýrri sýningu sem opnuð var nýverið. Sýningin varpar ljósi á ríka þjóðsagnahefð sem tengist Hafnarfirði og þeirri trú að í bænum sé ein fjölmennasta álfabyggð landsins.
Það sem augað ekki sér

Sýningin býður gestum að kynnast sagnahefð sem hefur lifað í gegnum aldirnar og vekur áhuga á náttúru og menningu sem er sérstök fyrir Hafnarfjörð. Með lifandi sögum og skemmtilegum upplifunum er hægt að sjá hvernig álfaheimurinn hefur mótað hugmyndir, list og andrúmsloft í garðinum. “Hellisgerði er einstakur staður þar sem saga og náttúra mætast. Sýningin gefur gestum tækifæri til að ganga um garðinn og í leiðinni kynna sér álfasagnir sem tengjast Hafnarfirði,“ segir Svanhvít Tryggvadóttir sérfræðingur á Byggðasafni Hafnarfjarðar.
Ævintýri og þjóðsögur lifna við
Gestir eru hvattir til að ganga um garðinn, skoða sýninguna og upplifa álfaheiminn með öllum skynfærum – því sagan segir að álfar séu mjög hlédrægir gestir, en líflegir og forvitnir fyrir þá sem gefa gaum. Á hverju skilti er QR kóði sem gestir og gangandi eru hvattir til að skanna inn í símann sinn. QR kóðinn felur í sér upplýsingar um hvaðan í Hafnarfirði sagan er og auðvelt að taka sér göngutúr að hýbýlum álfanna.