Nýtt sorpílát heim til þín

Fréttir

Við erum á leiðinni heim til þín með nýja sorpílátið. Dreifing í Hafnarfirði hefst mánudaginn 22. maí á Hvaleyrarholti og lýkur föstudaginn 14. júlí á Völlunum. Dreifingaáætlun gerir ráð fyrir að það taki um það bil eina viku að dreifa nýjum ílátum í hverju hverfi. Þeir íbúar sem eru með símanúmer sitt skráð hjá 1819.is fá send SMS smáskilaboð um afhendinguna.  

Dreifing á nýjum sorpílátum hefst 22. maí og lýkur 14. júlí

Við erum á leiðinni heim til þín með nýja sorpílátið. Dreifing í Hafnarfirði hefst mánudaginn 22. maí á Hvaleyrarholti og lýkur föstudaginn 14. júlí á Völlunum. Dreifingaáætlun gerir ráð fyrir að það taki um það bil eina viku að dreifa nýjum ílátum í hverju hverfi. Þeir íbúar sem eru með símanúmer sitt skráð hjá 1819.is fá send SMS smáskilaboð um afhendinguna.  

Dreifingaráætlun í Hafnarfirði  

  • Vika 2122/5-26/5Hvaleyrarholt – Hverfi 1
  • Vika 22 – 30/5-2/6Miðbær+Vesturbær – Hverfi 8 
  • Vika 23 – 5/6-9/6 – Ásland+Norðurbakki – Hverfi 3 og 6 
  • Vika 24 – 12/6-16/6 – Suðurbær – Hverfi 7 
  • Vika 25 – 19/6-23/6Norðurbær – Hverfi 5 
  • Vika 26 – 26/6-30/6Setberg+Suðurbær (Kinnar+Öldur) – Hverfi 4 
  • Vika 27 – 3/7-7/7HraunHverfi 6 
  • Vika 28 – 10/7-14/7Vellir, Skarðshlíð og Hamranes – Hverfi 2 

Eitt nýtt tvískipt ílát við sérbýli  

Sérbýli (ein-, tví- og þríbýli) fá afhent til eignar 240L tvískipt ílát fyrir matarleifar og blandaðan úrgang fyrir hvert fastanúmer, Við sérbýli bætist við ný tunna og verður meginreglan þrjár tunnur við hvert sérbýli. Þær tunnur sem fyrir eru verða endurmerktar fyrir plast annarsvegar og pappír hinsvegar.  

Nýtt ílát fyrir matarleifar við fjölbýli 

Öll fjölbýli fá afhent til eignar 240L brún ílát fyrir matarleifar og fjöldi íláta er sérsniðinn að þörfum hvers fjölbýlis. Grátunnur verða endurmerktar fyrir blandaðan úrgang og plast og blátunnur verða endurmerktar fyrir pappír.  

Karfa og bréfpokar á öll heimili  

Samhliða dreifingu á nýjum ílátum munu öll hafnfirsk heimili fá plastkörfu og bréfpoka undir söfnun matarleifa innan heimila. Karfan sér til þess að það lofti um bréfpokann þannig að hann haldist þurr. Bréfpokarnir skipta lykilmáli til að hægt sé að vinna nothæfa moltu úr matarleifunum. Gott er að tæma bréfpokana reglulega í nýja tunnu undir matarleifar.  

Óskir um sérlausnir teknar til skoðunar frá og með hausti 

Íbúar eru hvattir til að prófa nýtt fyrirkomulag og fjölda tunna í sumar og fram á haustið til að fá sem besta tilfinningu fyrir þörf heimilisins og þá ekki síst að þeirri flokkun sem snýr að pappír og plasti. Sorphirðutíðni mun áfram vera sú sama, á 28 daga fresti fyrir plast og pappír og 14 daga fresti fyrir matarleifar og blandaðan úrgang. Með haustinu þegar dreifingu lýkur verður hægt að kaupa annað tvískipt 240L sorpílát fyrir plast og pappír og skipta út fyrir 240L plastílát og 240L pappírsílát. 

Takk fyrir að flokka! 

Ábendingagátt