Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Þjónustuver Hafnarfjarðarbæjar opnar að Strandgötu 8-10 stundvíslega kl. 8 þann 18. júní. Opið hús verður milli kl. 13-17 á þjóðhátíðardaginn og heitt á könnunni.
Stakkaskipti verða um miðjan mánuðinn þegar nýtt og uppfært þjónustuver Hafnarfjarðar verður opnað til að þjónusta íbúa bæjarins enn betur. Þjónustuverið færist til innan ráðhússins og verður þar sem Íslandsbanki er nú. Já, það flytur frá Strandgötu 6 að Strandgötu 8-10. Bankinn verður einnig enn á sínum stað og inngangurinn milli þjónustuvers og Íslandsbanka sameiginlegur á horni Strandgötu og Linnetstígs. Formleg opnun þjónustuversins verður 17. júní milli kl. 13-17.
„Við tökum við á móti bæjarbúum og sýnum þeim nýju starfsstöðina,“ segir Anna Bára Gunnarsdóttir, deildarstjóri þjónustuversins. Kaffi og kleinur í boði.
„ Við erum að stækka aðstöðuna og bæta alla þjónustuna enn frekar við íbúa,“ segir Anna Bára. Núverandi þjónustuver, sem hafi verið starfrækt frá 2003, hafi verið orðið of lítið.
„Stærri móttaka. Fundarrými betri. Öll viðtalsherbergi verða aðgengilegri. Þetta er líka bætt vinnuaðstaða sem við fögnum,“ segir Anna Bára. „Símaverið verður aðskilið frá almennri aðstöðu í nýja þjónustuverinu. Það skapar meira næði sem er afar ákjósanlegt. Húsnæðið er orðið bæði glæsilegt og fallegt og nýtist næstu áratugi.“
Anna Bára bendir á að á þeim rúmu 20 árum síðan þjónustuverið hafi verið opnað hafi margt breyst í Hafnarfirði. Íbúum hafi til að mynda fjölgað mikið eða um 52%, úr 20.720 í 31.525.
„Þjónustan hefur breyst og við fögnum því að geta þjónustað íbúa sem allra best í þessari góðu aðstöðu. Við tökum fagnandi á móti ykkur íbúum og leggjum okkur fram um að leysa málin sem upp koma vel.“ Já, sama húsið, sama góða starfsfólkið nýr inngangur og glæsilegt nýtt rými.
„Við verðum í hátíðarskapi 17. júní. Öll velkomin.“
Sóli Hólm hefur aldrei sýnt oftar í Bæjarbíói en fyrir þessi jól. Alls 41 sýning og sú síðasta á Þorláksmessu.…
„Hafnarfjarðarkortið er lykillinn að Hafnarfirði,“ segir Þóra Hrund Guðbrandsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Hafnarfjarðar um þetta glænýja hafnfirska gjafa- og inneignarkort „Þetta…
Fjórða helgin okkar í Jólaþorpinu verður yndisleg. Veðrið mun leika við gesti en fyrst og fremst munu allar þær gersemar…
Börn fá frístundastyrk frá þriggja ára aldri. 10,6 milljarðar verða settir í fjárfestingar. Einnig verður sett fjármagn í uppbyggingu nýs…
Hjörtu okkar Hafnarfjarðar skarta fjólubláum lit í dag á alþjóðadegi fatlaðs fólks. Dagurinn er 3. desember ár hvert til að…
Menntastefna Hafnarfjarðarbæjar var kynnt á starfsdegi astarfsfólks frístundar-, grunnskóla- og leikskóla Hafnarfjarðarbæjar þann 14. nóvember. Þátttakendur gátu valið um ólíka…
Ný stefna um móttöku skemmtiferðaskipa í Hafnarfirði hefur verið samþykkt af bæjarráði. Stefnan gildir til 2035.
Um 30 útskrifuðust úr Leiðtogaskóla Hafnarfjarðarbæjar á dögunum. Nú hafa 90 stjórnendur bæjarins útskrifast. Kennslan eflir bæjarbraginn.
Mæðgurnar Lára Alda Alexandersdóttir og Silja Þórðardóttir lærðu saman að verða gusumeistarar. Þær nota kraftana í Herjólfsgufunni við Langeyrarmalir.
„Ég finn að Hafnfirðingar eru stoltir af Jólabænum og Jólaþorpinu á Thorsplani,“ segir Sunna Magnúsdóttir, verkefnastjóri Jólaþorpsins sem orðið er…