Opinn tími í dag – Sundballettinn Eilífðin slær lokahnykkinn á árinu
Systurnar Margrét Erla Maack og Vigdís Perla leiða opinn sundballetttíma í Sundhöll Hafnarfjarðar í dag kl. 18. Öll velkomin.
Sundballettinn Eilífðin í Sundhöllinni okkar
Þokkafullar hreyfingar, mjúkar og einhverjar jafnvel kannski örlítið klaufskar munu prýða Sundballettinn Eilífðina í Suðurbæjarlaug í í dag kl. 18. Systurnar Margrét Erla Maack og Vigdís Perla leiða þennan opna tíma. Öll velkomin. Margrét sagði frá framtaki systranna í jólablaði Hafnarfjarðarbæjar.
„Fólk tekur þátt í þessu, þetta er ekki sýning,“ segir Margrét Erla og rekur söguna þegar þær systur stofnuðu sundballettinn. „Við systir mín vorum í Barcelona með mömmu og þegar mamma er í sólarlöndum er hún leðurtaskan á bakkanum. Við systur þurfum útrás,“ lýsir Margrét Erla.
„Við vorum á miðlungshóteli. Þar var ekkert gym og allt of heitt til að fara út að labba eða hlaupa. Við fórum því að leika okkur í sundinu, kasta hvor annarri upp í loft. Og þarna erum við ekki börn, ég 33 ára og systir mín 24 ára,“ segir hún.
„Við keyptum okkur samstæða kúta og gerðum rútínur. Krakkarnir á hótelinu fóru að taka þátt í þessu og svo fullorðnir. Við fengum spurninguna: Hvenær er næsta sýning? Sundballettinn sló algjörlega í gegn.“ Kærasti Vigdísar tók svo á móti þeim mæðgum í Leifsstöð með skiltinu: Sundballettinn Eilífðin.
Sundballettinn varð svo að vinnu í Covid. „Allt sem ég geri var þá bannað en sundlaugarnar voru opnar. Pabbi spyr: Ætlið þið ekki að sækja um styrk fyrir sundballettinn? Við gerðum það.“ Sundballettinn hafi þar með komist á flot.
Margrét bendir á að sundlaugarnar séu orðnar eini staðurinn þar sem ekki sé stöðug símaáreitni. „Við getum öll sleppt fram af okkur beislinu,“ segir hún og hvetur öll sem geta til að koma.
Þetta er ótrúlega góð alhliða hreyfing þótt við leggjum upp úr fíflagangi. Þetta hentar fólki með alls konar vesen því vatnið hjálpar svo mikið til. Það styður við og veitir heiðarlega mótstöðu,“ segir hún.
„Svo erum við með góða tónlist, gerum rútínur og förum í leiki sem reyna á rýmisgreind og jafnvægi.“ Margrét Erla heldur ekki í hefðbundnar jólahefðir og fjölskyldumeðlimir hafa komið hver öðrum á óvart með ýmsum framandi réttum þegar kemur að sundballettinum.
„Jólin hafa mjög lengi snúist um að fela mat í frystikistu nágrannanna til að fólk fatti ekki hvað verður í jólamatinn. Það er okkar hefð.“
- Jólasundballett – opinn tími – þriðjudaginn 30. desember kl. 18 í Sundhöllinni í Hafnarfirði.
Jólablað Hafnarfjarðar 2025 – vefútgáfa: