Samið um Hjarta Hafnarfjarðar til ársins 2030
Hafnarfjarðarbær sendur þétt við bakið á bæjarhátíðinni Hjarta Hafnarfjarðar, í höndum rekstraraðila Bæjarbíós, allt til ársins 2030. Bærinn hefur einnig samið um rekstur Bæjarbíós til 2029
Hjarta Hafnarfjarðar lífgar upp bæinn
Hafnarfjarðarbær sendur þétt við bakið á bæjarhátíðinni Hjarta Hafnarfjarðar, í höndum rekstraraðila Bæjarbíós, allt til ársins 2030. Þessi sex vikna tónlistarveisla hefur slegið í gegn. 65 þúsund sóttu hana síðasta sumar.
„Þetta gefur okkur tækifæri til að halda áfram á þeirri braut sem við höfum verið í síðustu tíu ár. Við ætlum að efla hátíðina og styrkja fram á við svo hún sé bænum áfram til sóma,“ segir Páll Eyjólfsson, rekstrarstjóri Bæjarbíós. Jafnframt hefur bærinn samið um að rekstur Bæjarbíós verði áfram í höndum Páls og félaga til 30. nóvember 2029. Fyrst var samið við Pál árið 2016.
Vöxtur hátíðarinnar aðdáunarverður
Valdimar Víðisson bæjarstjóri segir að reynslan og þekkingin sem hafi skapast í höndum þessara rekstraraðila Bæjarbíós sé mikils virði.
„Það hefur verið aðdáunarvert að fylgjast með vexti hátíðarinnar sem og straumnum sem liggur viku eftir viku í Bæjarbíó. Þetta menningarhús er mikil lyftistöng í bænum,“ segir hann.
„Við sjáum líka á þjónustukönnun Gallup fyrir sveitarfélögin að bæjarbúar kunna að meta menningarlífið hér. Við trónum þar á toppnum með þessu öfluga tónlistarstarfi og söfnunum okkar.“
Breyttur bær á sumrin
Hátíðin Hjarta Hafnarfjarðar hefur breytt bænum yfir sumartímann. Hún fer fram á baklóð Bæjarbíós, á Mathiesen-torgi og á bílastæðum við húsið frá fimmtudegi til og með laugardegi í júlí fram í ágústmánuð.
Hjarta Hafnarfjarðar var fyrst haldin árið 2017. Hátíðin hefur vaxið hratt. Fjöldi gesta hefur farið úr um 1.500 í allt að 65.000. Markmiðið er að lífga upp á miðbæinn og styrkja ímynd Hafnarfjarðar sem lifandi menningarbæjar. Tónlist og menningarviðburðir eru í forgrunni og aðgangur að útisvæðinu er ókeypis.
Bæjarfyrirtækin taki þátt
Samkvæmt samningnum mun Bæjarbíó tryggja öryggi gesta, standa fyrir fjölbreyttri dagskrá og bjóða hafnfirskum fyrirtækjum að taka þátt með sölu og þjónustu. Einnig verður lögð áhersla á fjölskylduviðburði yfir daginn og samstarf við fyrirtæki og stofnanir í bænum.
Páll segir að án bakbeins bæjarins væri engin hátíð. „Þetta er bæjarhátíð og aðkoma fyrirtækjanna í bænum skiptir gríðarlegu máli. Þetta er ekki handtak örfárra aðila heldur samstarfsverkefni okkar allra. Þess vegna hefur hátíðin gengið svona vel og hún vaxið og dafnað.“
Árlegur stuðningur við hátíðina
Hafnarfjarðarbær styður verkefnið með árlegu framlagi upp á 12 milljónir króna. Auk þess leggur bærinn til búnað, þjónustu og vinnuframlag að verðmæti allt að 6 milljónum króna á ári.
Hátíðin Hjarta Hafnarfjarðar hefur á undanförnum árum orðið einn stærsti sumarviðburður bæjarins og markmiðið er að festa hana enn frekar í sessi í miðbænum.