Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Síðasta vetrardag gengu Styrktar- og líknarsjóður Oddfellowa (StLO) og Hafnarfjarðarbær frá samkomulagi um framkvæmdir við dagdeildir Alzheimer- og Parkinsonsamtakanna á 3. hæð á Lífsgæðasetri St. Jó við Suðurgötu 41 í Hafnarfirði.
Styrktar- og líknarsjóður Oddfellowa og Hafnarfjarðarbær undirrita samkomulag um framkvæmdir við dagdeildir Alzheimer- og Parkinsonsamtakanna í St. Jó
Síðasta vetrardag gengu Styrktar- og líknarsjóður Oddfellowa (StLO) og Hafnarfjarðarbær frá samkomulagi um framkvæmdir við dagdeildir Alzheimer- og Parkinsonsamtakanna á 3. hæð á Lífsgæðasetri St. Jó við Suðurgötu 41 í Hafnarfirði. Unnið hefur verið að útfærslu samkomulagsins á síðustu vikum en það felur í sér að StLO sjái alfarið um framkvæmdir á 3. hæð og beri kostnað vegna þeirra gegn því að Hafnarfjarðarbær geri leigusamninga við Alzheimer- og Parkinsonsamtökin til 15 ára.
Undirritun samkomulagsins. Vilborg Jónsdóttir formaður Parkinsonsamtakanna, Steindór Gunnlaugsson formaður StLo, Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar og Árni Sverrisson formaður Alzheimersamtakanna.
Alzheimer- og Parkinsonsamtökin munu á 3. hæð Lífsgæðasetursins setja á fót dagdeildir fyrir einstaklinga sem nýlega hafa greinst með heilabilun eða Parkinson. Dagdeildunum er ætlað að vinna markvisst að því að viðhalda lífsgæðum þeirra sem veikjast með alhliða þjálfun og ráðgjöf ásamt því sem aðstandendur þeirra fá fræðslu og stuðning.
„Það er einstaklega ánægjulegt að ganga frá samkomulagi um þetta mikilvæga verkefni. Hafnarfjarðarbær er heilsueflandi samfélag og liður í því er að endurvekja gamla St. Jósefsspítalann og glæða hann lífi með starfsemi sem hefur að markmiði að viðhalda og efla lífsgæði fólks. Starfsemi Alzheimer- og Parkinsonsamtakanna á 3. hæð hússins til næstu 15 ára er mikilvæg kjölfesta í starfsemi þess til framtíðar. Hafnarfjörður er jafnframt heilavinabær sem felur í sér að við höfum skuldbundið okkur til þess að þróa samfélag sem er vinveitt, styðjandi og meðvitað um þarfir fólks með heilabilun og aðstandendur þess. Þetta verkefni er klárlega stórt skref í þá átt“ segir Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar.
Aðstandendur samkomulagsins. Steindór Gunnlaugsson formaður StLo, Vilborg Jónsdóttir formaður Parkinsonsamtakanna, Magnús Sædal byggingarstjóri StLo, Ragnheiður Agnarsdóttir verkefnisstjóri Lífsgæðaseturs St. Jó, Ólöf Pálsdóttir gjaldkeri StLo, Árni Sverrisson formaður Alzheimersamtakanna, Ágúst Bjarni Garðarsson formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar og Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar.
Félagsskapur Karla í skúrnum hefur vaxið og dafnað allt frá því hann var stofnaður 2018 – fyrst hér í Hafnarfirði.…
Stór dagur var hjá Miðstöð vinnu og virkni í gær. Þórdís Rúriksdóttir, forstöðumaður Miðstöðvarinnar, segir að þótt dagurinn hafi verið…
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…
Allt er að smella hjá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem úthlutar á morgun mat og gjöfum til um 300 hafnfirskra einstæðinga og…