Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Til þess að einfalda vinnu sveitarfélaga við að greina og leysa þær krísur sem upp koma á Íslandi hafa Almannavarnir útbúið vefgátt þar sem haldið er utan um samræmda greiningu í hverju sveitafélagi. Í vefgáttinni er hægt að nálgast leiðbeiningar almannavarna fyrir greiningu á áhættu og áfallaþoli. Leiðbeiningarnar eru gerðar til að einfalda vinnu sveitarfélaga og ekki síst að hjálpa til við að greina og draga fram þá vá og/eða verkefni sem upp geta komið.
Á síðustu vikum hafa Almannavarnir kynnt þetta verkefni með ýmsum hætti. M.a. var haldið málþing fyrir ráðuneytin og í kjölfarið á því samráð við þau um leiðbeiningar og skjöl sem þau varða. Einnig hafa verið haldnir kynningarfundir fyrir ráðgjafa og leiðbeinendur sem kenna á námskeiðum sem tengjast verkefninu. Í lok apríl var svo haldin ráðstefnan „Við erum öll almannavarnir“.
Í vefgáttinni er einnig hægt að nálgast mælaborð með yfirliti yfir niðurstöður sem hægt er að fylgjast með. Þar geta t.d. íbúar hvers sveitarfélags fyrir sig séð hver staðan er í sínu sveitarfélagi. Vefgáttin er búin að vera í virk í nokkrar vikur og nú þegar hafa mörg sveitarfélög nýtt þennan sameiginlega vettvang. Vefgáttin gefur ekki bara notendum auðveldan aðgang að greina áhættu og áfallaþoli á sínum stað heldur gefur gáttin Almannavörnum einnig tækifæri að fá yfirsýn yfir stöðu áhættugreininga hjá öllum þeim sem þurfa að gera þær. Sveitarfélög gegna aðalhlutverki í vinnu við að tryggja öryggi borgara og viðbúnað. Þau fara með almannavarnir í héraði sem gerir kröfu til þess að sveitarfélag vinni heildstætt og kerfisbundið að því að tryggja öryggi borgaranna og viðbúnað. Þetta undirstrikar hið mikilvæga hlutverk sem sveitarfélag hefur sem samræmingaraðili og drifkraftur í almannavarnastarfi.
Verkefnið á upptök sín í stefnuverkefni um könnun á áfallaþoli ráðuneyta, ríkisstofnana og sveitafélaga sem aftur tengist stefnu stjórnvalda í almannavarna- og öryggismálum en þar er eitt áhersluatriði greining á áhættu og áfallaþoli hjá framangreindum aðilum. Vinnan við vefgáttina hefur staðið yfir á annað ár. Sú sem hefur leitt vinnuna fyrir hönd Almannavarna er Elísabet Pálmadóttir verkefnastjóri, henni til aðstoðar var Hjördís Guðmundsdóttir, samskiptastjóri Almannavarna sem hefur haldið utan um kynningu á verkefninu gagnvart hagsmunaaðilum og haldið utan um vinnu Hvíta hússins sem hefur séð um útlitshönnunina: Þá var það Magga Dóra Ragnarsdóttir hjá Mennsk sem hélt utan um starf ráðgjafanna sem sáu um vefhönnun í verkefninu sem voru auk Mennsk, Ozio og Metadata.
Frétt á vef Almannavarna.
Félagsskapur Karla í skúrnum hefur vaxið og dafnað allt frá því hann var stofnaður 2018 – fyrst hér í Hafnarfirði.…
Stór dagur var hjá Miðstöð vinnu og virkni í gær. Þórdís Rúriksdóttir, forstöðumaður Miðstöðvarinnar, segir að þótt dagurinn hafi verið…
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…
Allt er að smella hjá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem úthlutar á morgun mat og gjöfum til um 300 hafnfirskra einstæðinga og…