Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Nú í september verður boðið upp á bólusetningu nr. 2 gegn COVID-19 fyrir börn á aldrinum 12-15 ára. Forráðamaður þarf að fylgja barni í bólusetninguna eða senda staðgengil 18 ára eða eldri með umboð.
Nú í september verður boðið upp á bólusetningu nr. 2 gegn COVID-19 fyrir börn á aldrinum 12-15 ára. Forráðamaður þarf að fylgja barni í bólusetninguna eða senda staðgengil 18 ára eða eldri með umboð. Börnum í 7. bekk sem verða 12 ára eftir 1. september býðst bólusetning síðar í haust.
Á höfuðborgarsvæðinu verður bólusett í Laugardalshöll og forráðamenn beðnir að koma með börn sín samkvæmt eftirfarandi skipulagi:
2006 árgangur:
2008 árgangur:
2009 árgangur:
Bóluefnið sem verður notað er frá Pfizer/BioNTech og er það bóluefni sem fyrst fékk markaðsleyfi, bæði fyrir fullorðna og síðar fyrir börn á þessum aldri. Það er komin töluverð reynsla á notkun þess fyrir þennan aldurshóp erlendis og hefur gengið mjög vel.
Eins og við aðrar bólusetningar eru algengustu aukaverkanir óþægindi þar sem stungan var gerð og slappleiki/þreyta, hiti og verkir (höfuðverkur eða vöðva- og liðverkir) fyrsta sólarhringinn eftir bólusetninguna, stundum í nokkra daga. Það má nota parasetamól eða íbúprófen í skömmtum skv. fylgiseðli við þessum aukaverkunum.
Það eru líka til sjaldgæfar aukaverkanir þar sem kemur fram bólga í gollurshúsi (poki utan um hjartað) eða í hjartavöðvanum sjálfum, 2-3 vikum eftir bólusetninguna, oftast eftir seinni skammt og algengara hjá piltum en stúlkum. Þótt þessar aukaverkanir geti verið óþægilegar og jafnvel uggvekjandi, þá jafnar ástandið sig oftast með hvíld og bólgueyðandi verkjalyfjum. Ef barn fær brjóstverk, talar um skrítinn hjartslátt eða virðist andstutt í hvíld eftir bólusetninguna þarf að leita til læknis.
Það er verið að skoða hvort breytingar á tíðahring, bæði litlar eða miklar blæðingar, hafi tengsl við bólusetningu með þessu bóluefni. Stúlkur á aldrinum 12-15 ára hafa sumar þegar byrjað á blæðingum en aðrar ekki. Það er ekki víst að allar stúlkur á þessum aldri átti sig á því ef breytingar verða þar sem blæðingar eru yfirleitt óreglulegar fyrsta árið eftir að þær hefjast. Eins finnst þeim mörgum óþægilegt að ræða um slíkt og láta ekki endilega vita ef eitthvað er öðruvísi en áður. Það er því mikilvægt að þær fái upplýsingar um að það sé rétt að ræða þetta og hafi tækifæri til að gera það, ef ekki heima þá mögulega við skólahjúkrunarfræðing eða annan heilbrigðisstarfsmann.
Yfir 4.000 gestir mættu á búninga- og leikjasamkomuna Heimar og Himingeimar í Hafnarfirði um helgina. Bókasafn bæjarins stóð að samkomunni…
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Jólaþorpið á Thorsplani í Hafnarfirði 2024. Sem fyrr vill Jólaþorpið fá til liðs við…
Hittu hamingjuna í Hafnarfirði í september. Fjöldi viðburða sem efla andann, bæta líðan okkar og hvetja okkur til að auka…
Búist er við fjölda gesta á búninga- og leikjasamkomunni Heimar og Himingeimar í Hafnarfirði um helgina. Hátíðin hefst kl. 17.…
Hafnarfjarðarbær hefur gengið frá kaupum á nýju húsnæði fyrir Bókasafn Hafnarfjarðar í verslunarmiðstöðinni Firði. Nútímavæða á 102 ára gamla bókasafn…
Hafnarfjarðarbær vekur athygli á möguleika fatlaðs fólks sem þarfnast sértæks stuðnings vegna fötlunar sinnar til að sækja um styrki skv.…
Það var sannkallað stuð fyrir alla fjölskylduna í brakandi blíðu á glæsilegri hátíð í Hellisgerði í gær. Þar mátti heyra…
Búninga- og leikjasamkoman Heimar og himingeimar verður haldin á Bókasafni Hafnarfjarðar 30. ágúst til 1. september. Þar munu ævintýrin gerast.
Báðir álfar en þó ekki bræður, Íþróttaálfurinn og Benedikt búálfur, verða meðal þeirra sem verða á kreiki í Hellisgerði sunnudaginn…
Nýtt skólaár innan grunnskóla Hafnarfjarðarbæjar hefst á morgun og munu um 4.100 börn og ungmenni setjast á skólabekk þetta haustið.…