Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Hér er að finna upplýsingar um úrræði fyrir börn og fjölskyldur á vegum Hafnarfjarðarbæjar
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Á tímum Covid19 hefur reynt duglega á fjölmennan hóp sem skipar framvarðasveit í menntamálum hér í Hafnarfirði. Þriðja bylgja smita og sóttvarnaaðgerða stendur nú sem hæst. Grunnskólar hafa ekki þurft að loka en starfsfólk skiptist í hólf á kaffistofum eftir námsstigum og foreldrar mega ekki fara inn í skólana.
Bæjarblaðið Hafnfirðingur ræddi við fulltrúa allra þriggja skólastiganna í Lækjarskóla, sem rifjuðu upp helstu áskoranir í lausnamiðuðu skólastarfi og hvaða ótrúlega jákvæðu áhrif það hefur haft. Það eru þau Hulda Björnsdóttir, Ásbjörn Friðriksson og Tinna Ósk Þorvaldsdóttir.
Síða heimaskóla Lækjarskóla, sem auðvelt er að finna sem undirsíðu skólans.
Könnun var gerð meðal kennara í Lækjarskóla eftir að foreldrasamtölum lauk fyrir skömmu, en þau fóru fram með gjörbreyttu sniði, vegna covid19. Þeir kennarar sem svöruðu könnuninni voru sammála um að þessi gerð samtala fékk nemendur til að taka meiri ábyrgð og sjálfstraust þeirra efldist. Viðmælendur Hafnfirðings taka undir þetta og segjast hafa orðið vör við ýmis önnur jákvæð áhrif breyttra áherslna, bæði í vor og um þessar mundir.
Hulda kennir 2. bekk og segir nemendur hafa mætt ótrúlega hugaða í námssamtölin, án forráðamanna, í fyrsta sinn á skólagöngunni. „Við fengum yndislega aðstoð hjá starfsfólki Lækjarsels með að senda þau á réttum tíma til okkar og svo hringdu forráðamenn í okkur á Facetime eða „speaker“, ýmist að heiman eða úr vinnunni. Þetta gekk alveg með eindæmum vel.“ Þó svo að fyrirkomulagið hafi verið óhefðbundið var margt jákvætt við það, en það er nokkuð ljóst að námssamtölin hefðu ekki gengið svona vel nema með mikilli skipulagningu að hálfu starfsfólks skólans og foreldra.
„Það var svo gaman að sjá hvað þau voru örugg en mörg þeirra klesstu sér upp við mig að spenningi við að sjá mömmu og pabba á skjánum eða heyra í þeim í símanum. Margskonar skemmtilegar uppákomur komu á óvart en aðalmálið var gefandi og gott samstarf allra sem komu að,“ segir Hulda. Hún viðurkennir að ástandið hafi verið einkar erfitt s.l. vor, þegar ekið var með námsefni heim til nemenda sem komust ekki í skólann, það hengt á hurðarhúna, bílflautur þeyttar og kallast á í gegnum opna glugga. „Við söknuðum þeirra svo mikið en finnum eftir aukin samskipti við foreldra á þessum tímum, hversu allir eru reiðubúnir að takast á við þessar krefjandi aðstæður sem við búum við í dag, reynslunni ríkari. Það er ákveðin auðmýkt og þakklæti fyrir það sem við þó höfum og getum gert.“
Áskoranir nemenda á heimaskólasíðunni tengdust einnig heilsunni, sem er mikilvægust á svona tímum.
Ásbjörn kennir stærðfræði í 7. til 10. bekk. Hann segir eftirminnilegustu áskoranirnar á tímum Covid19 hafa verið foreldraviðtölin, en þau hafi þó gengið mjög vel. „Það voru nánast engin tæknileg vandamál. Nemendur mættu til okkar og svo notuðum við bara Google Meet, þar sem foreldrar tóku þátt með því að smella á hlekk sem veitti þeim aðgang þegar þeirra tími var kominn. Ég vil taka fram að foreldrarnir eiga hrós skilið fyrir sinn hlut og hvað þeir tóku vel í þetta og sýndu engin merki um stress.“ Nemendurnir hafi mætt einir í skólann og Ásbjörn náði spjalli með hverjum og einum í nokkrar mínútur áður en foreldrarnir komu inn í samtalið.
„Nemandinn stýrði samtalinu út frá eigin forsendum og í daglegu starfi kennara er oft erfitt að gefa sér tíma til að spjalla við hvern og einn nemanda, í viðurvist 30-40 annarra andlita. Þarna gafst gott tækifæri til þess, svo að þetta fyrirkomulag er bara alls ekki svo galið yfirleitt.“ Ásbirni fannst erfiðast í vor þegar aðeins mátti hitta umsjónarnemendur, þrátt fyrir að kenna miklu fleirum. „Það þurfti að útbúa kennslumyndbönd, ítarlegar upplýsingar og treysta á að foreldrar gætu hjálpað til. Reyndar voru margir nemendur sem nýttu þennan tíma vel og höfðu kannski dálítið gott af því að hafa ekki stanslaust aðgengi að kennara. Fín æfing fyrir þau og óvæntar vangaveltur sem komu frá þeim í kjölfarið. Það þyrfti að skapa oftar slíkar aðstæður fyrir nemendur, án Covid19. Láta þau taka ábyrgð og fylgja áætlun. Þá verður stökkið í framhaldsskólann eflaust ekki eins mikið.“Skjáskot úr myndbandinu með nemendum syngjandi lag eftir Daða og Gagnamagnið.
Tinna kennir 5. bekk en kenndi í vor á spjaldtölvur, tölvur og 10. bekkingum fjármálalæsi, auk þess að sjá um Mentor forritið. Hún segir ástandið hafa aukið notkun spjaldtölva mjög mikið, sem og fjarfundabúnaðar og Google Classroom. „Í vor var ég í stjórnendarýminu sem mætti á undan öllu öðru starfsfólki og fór heim eftir að aðrir voru farnir. Ég aðstoðaði m.a. kennara við að ná tökum á Google Meet og þegar allir voru með það á hreinu hafði ég minna að gera og og bjó til heimaskóla – í formi heimasíðu, fyrir öll námsstig. Núna er þessi síða til og hægt að nota ef við þurfum að skipta yfir í heimakennslu.“Tinna bætir við að ekki hafi endilega þurft að finna upp hjólið og ýmislegt hafi verið nýtt sem áður var til og aðrir höfðu gert. „Mikilli þekkingu var deilt á milli skóla í Hafnarfirði og líka á milli sveitarfélaga. Við vorum og erum öll í sama hernum í sama stríðinu. Allir til staðar til að hjálpa á mismunandi hátt.“ Eftirminnilegast finnst henni þó myndband sem hún, skólastjóri og tónmenntakennarinn fengu fjölda nemenda til að taka þátt í, með því að senda myndskeið af sér syngja lag með Daða og Gagnamagninu. „Við vorum öll hvert á sínum stað en úr varð virkilega skemmtileg samvinna og þátttakan kom á óvart. Svo var gaman að vita til þess að nemendur tóku upp á því að nýta sér fjartæknina og hjálpast að við heimalærdóminn.“
Forsíðumynd/OBÞ: Hulda Björnsdóttir, Ásbjörn Friðriksson og Tinna Ósk Þorvaldsdóttir.
Viðtal við þríeykið í Lækjarskóla birtist í Hafnfirðingi 25. október 2020.
Alls voru 524 nýjar íbúðir fullbúnar í Hafnarfirði í fyrra. Þær bættust í hóp 11 þúsund íbúða í bæjarfélaginu. Nýjum…
FH, Hafnarfjarðarbær og Íþróttabandalag Hafnarfjarðar (ÍBH) hafa tekið höndum saman og bjóða frá 15. janúar fótboltaæfingar fyrir börn í 1.-10.…
Tafir hafa orðið á sorphirðu nú á nýju ári. Ljóst er að tunnurnar verða tæmdar viku á eftir áætlun. Unnið…
Algjörar skvísur verður sú fimmtánda í haustsýningarröð Hafnarborgar. Verkefnið hefur það að markmiði að gefa breiðu sviði sýningarstjóra kost á…
Alls sátu 100 foreldrar PMTO-foreldrafærninámskeið hjá Hafnarfjarðarbæ í fyrra. Foreldrarnir fá kennslu og eru þjálfaðir í styðjandi leiðum í uppeldishlutverki…
Nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Valdimar Víðisson, er með opna viðtalstíma alla þriðjudaga frá kl. 9:30 – 11:30. Viðtalstímar eru bókaðir í…
Hafnarfjarðarbær auglýsir eftir umsóknum um styrki úr húsverndarsjóði Hafnarfjarðar. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að varðveislu og viðhaldi eldri húsa…
Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna, viðburða og samstarfssamninga á sviði menningar og lista í…
Hafnarfjarðarbær mun á síðasta vetrardag, miðvikudaginn 23. apríl, útnefna bæjarlistamann Hafnarfjarðar fyrir árið 2025. Óskað er eftir umsóknum eða rökstuddum…
Hafnarfjarðarbær hefur svo gott sem lokið við LED-ljósavæðingu götulýsingar bæjarfélagsins. 95% ljósastaura nota LED-lýsingu. Víða í stofnunum bæjarins hefur LED-lýsing…