Sjómannadagurinn engum líkur í Hafnarfirði
Sunnudaginn 1. júní verður Sjómannadagurinn haldinn hátíðlegur í Hafnarfirði með fjölbreyttri dagskrá sem heiðrar sjómenn og tengsl bæjarins við sjóinn.
Sjómannadagurinn 2025
Hafnarfjarðarbær hefur skorað á hvert hverfi fyrir sig að taka þátt í kappróðrinum þetta árið. Hvaða hverfi býr yfir öflugustu ræðurunum? Hvaða skipstjóri kemur fleygi sínu fyrst í höfn?
Já, sunnudaginn 1. júní verður Sjómannadagurinn haldinn hátíðlegur í Hafnarfirði með fjölbreyttri dagskrá sem heiðrar sjómenn og tengsl bæjarins við sjóinn.
Sjómannadagurinn er hlaðinn kræsingum þetta árið sem fyrr:
- Kaffihlaðborð Kænunnar milli 13-17
- Opið hús í Íshúsi Hafnarfjarðar og Ægi 220
- Fjör verður við ævintýrahöfnina milli 13-17
- Keppt verður um hver er sterkasti maður Íslands á höfninni
Já, það er margt í boði og vert að skipuleggja sig svo dagurinn verði fullkominn:
Morgunviðburðir
- 8:00 – Fánar dregnir að húni á hátíðarsvæði við höfnina.
- 10:00 – Lúðrasveit Hafnarfjarðar leikur við Hrafnistu.
- 10:30 – Blómsveigur lagður að minnisvarða sjómanna við Víðistaðakirkju.
- 11:00 – Sjómannadagsmessa í Víðistaðakirkju
Skemmtidagskrá á Sjómannasviðinu frá kl. 13 – 16:30
- Kl. 13:00 – 🎸 DAS-bandið
- Kl. 13:30 – 🎺 Lúðrasveit Hafnarfjarðar
- Kl. 14:00 – 🧑✈️ Setning hátíðarinnar og heiðrun Sjómanna
- Kl. 14:15 – 🎤 Hreimur tekur lagið
- Kl. 14:30 – 🏆 Verðlaunaafhending í kappróðri
- Kl. 14:45 – 💃 Dans Brynju Péturs!
- Kl. 15:00 – 🎙️ Soffía Björg
- Kl. 15:20 – 🎭 Ungleikhúsið syngur
- Kl. 15:45 – 🌊 VÆB
- Kl. 16:15 – 👑 Prinsessur 7, 9 og 13
Dagskrá við höfnina milli kl. 13:00–17:00
- Kappróður – Spennandi keppni á höfninni frá kl. 13:00 til 14:00.
- Sterkasti maður Íslands – Kraftakeppni við hafnarsvæðið frá kl. 13:00 til 16:00.
- Skemmtisigling – Sigling í boði Hafnarfjarðarhafnar frá Óseyrarbryggju kl. 13:00–16:30.
- Bátasmiðja – Smíðaðu þinn eigin bát við Íshús Hafnarfjarðar.
- Fiskasýning Hafró – Skoðaðu fjölbreytt lífríki sjávar við Háabakka.
- Siglingaklúbburinn Þytur – Opið hús hjá klúbbnum við Strandgötu 88.
- Kaffihlaðborð Kænunnar – Njóttu veitinga í Kænunni við höfnina.
- Björgúlfur kallar – Kaffi, kökur og koddaslagur við Flensborgarhöfn.
- „Viltu koma í sjómann?“ – Kraftakeppni við minnismerkið um veru Þjóðverja í Hafnarfirði.
- Herjólfsgufan við Langeyrarmalir – Gufa og sjór í fullkomnu jafnvægi frá kl. 10:00 til 13:00.
Sýningar og menning
- „Sjómannalíf – Júlí GK 21“ – Sýning heimildarmyndar um veiðar með nýsköpunartogaranum Júlí GK 21 í fundarsal Hafrannsóknastofnunar frá kl. 13:00 til 16:00.
- Sýningar í Hafnarborg – „Í tíma og óótíma“ og „Kassíópeia“ í aðalsal og Sverrisal.
Gestir eru hvattir til að leggja bílum löglega í bílastæði nálægt viðburðasvæðinu eða í miðbænum og ganga eða taka strætó, því hafnarsvæðið er lokað fyrir bílaumferð á meðan á hátíðarhöldum stendur.
Nánari upplýsingar má finna á vef Hafnarfjarðarbæjar: hafnarfjordur.is
Komdu og njóttu dagsins með fjölskyldu og vinum við höfnina í Hafnarfirði!