Gögn til kynningar, ss. uppdrátt sem sýnir fyrirhugaðar breytingar, má nálgast í gegnum skipulagsgátt Skipulagsstofnunar. Athugasemdir eða ábendingar skulu berast með rafrænum hætti í gegnum skipulagsgátt, á netfangið skipulag@hafnarfjordur.is eða skriflega á:

Umhverfis- og skipulagssvið Hafnarfjarðarbæjar
Norðurhella 2
221 Hafnarfjörður

Auglýsing sveitarstjórnar um niðurstöðu

Breyting á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013 – 2025 færsla á Hamraneslínu 1 og 2

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum þann 8. nóvember 2023 tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025. Tillagan var auglýst með athugasemdarfresti til 25. október 2023, athugasemdir gáfu ekki tilefni til breytingar á tillögunni og hún hefur verið send Skipulagsstofnunnar til staðfestingar.  Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til skipulagsfulltrúa Hafnarfjarðar.

Skipulagsfulltrúinn í Hafnarfirði

Ábendingagátt