Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Stjórn Strætó bs. og Hafnarfjarðarbær samþykktu í fyrra breytingar á leiðanetinu innan sveitarfélagsins sem munu taka gildi 14. júní. Um er að ræða fyrsta áfanga í hinu stóra Borgarlínuverkefni og spilar leið 1 þar stóran þátt, sem hefst og endar á Völlunum.
Bæjarblaðið Hafnfirðingur ræddi við Jóhannes Rúnarsson, framkvæmdastjóra Strætó bs.
„Þetta er fyrsta Borgarlínubreytingin og við erum mjög ánægð með hana. Sumar leiðir í Hafnarfirði hafa verið óreglulegar og mismunandi númer á vögnum fyrir og eftir hádegi. Við erum með þessu að rétta úr leiðum í takti við Borgarlínuverkefnið, gera þær beinni og stytta ferðatímann. Þetta eru hænuskref í átt að hágæðasamgöngum,“ segir Jóhannes. Stærsta leiðin, númer 1, komi úr Hafnarfirði sem sýni að Hafnfirðingar eru dyggir notendur strætó og Jóhannes segir það mjög ánægjulegt. „Því er vel við hæfi að byrja í Hafnarfirði.“
Nýja leiðakerfið. Nánar er hægt að sjá það hér: https://platform.remix.com/map/f7b20a1/line/7922a06?dir=0
Aðal breytingin verði úr þekjandi kerfi í þátttökukerfi. Með þekjandi kerfinu hafi vagnar lagt lykkju á leiðir sínar til þess að ná viðkomu í sem flestum hverfum. Þannig hafi þjónustan dreifst yfir stærra landsvæði, ferðatími aukist, tíðni minnkað og farþegar verið færri. „Þyngri áhersla verður lögð á þátttökukerfi. Í slíku neti eru leiðirnar skipulagðar þar sem byggð er þéttust. Leiðirnar eru beinni, með örari tíðni, styttri ferðatíma og fleiri farþega. Á móti gætu farþegar þurft að fara örlítið lengri vegalengdir á næstu biðstöð. Markmiðið með þessu er að verja fjármunum betur í að auka tíðni ferða, meiri forgangsakstur og slíkt,“ segir Jóhannes, en hugmyndafræðin kemur frá Jarrett Walker sem kom hingað til lands fyrir nokkrum árum með fyrirlestra. „Þetta er stórt verkefni og búið að taka á annað ár með samráði við fjölda þátttakenda og miklu skipulagi.“ Samkvæmt nýja leiðakerfinu mun þessi leið 19 leysa þessa leið, nr. 44, af. Mynd/OÞ
Með breytingunni verður ekið skv. 15 mínútna tíðni á annatímum og 30 mínútna tíðni utan annatíma. Tengingar við leiðir 1, 21 og 55 verða í Firði. Í stað þess að aka milli Fjarðar og Mjóddar verður ekið á milli Háholts og Mjóddar. „Það er eðlilegt að það muni taka tíma að venjast þessu. Við erum líka með í gangi í innleiðingu á nýju samgöngukerfi og að smíða nýtt app og einnig verða rauntímaskjáir í stafrænum biðskýlunum. Það er hluti af þessari framtíðarsýn. Þá er hægt að sjá hversu langt er í næsta vagn eins og margir þekkja erlendis frá. Það kemur í stað þess að hafa óskýrar tímatöflur. Reykjavíkurborg er með útboð á svona skýlum núna og einhver sveitarfélög hafa sýnt þeim áhuga og mögulega þá við sama aðila eða hvernig sem það fer. Við getum líka unnið með þeim í því að finna hentugan aðila í það ef þau vilja,“ segir Jóhannes að endingu.
Viðtal við Jóhannes var birt í Hafnfirðingi 4. júní 2020
Félagsskapur Karla í skúrnum hefur vaxið og dafnað allt frá því hann var stofnaður 2018 – fyrst hér í Hafnarfirði.…
Stór dagur var hjá Miðstöð vinnu og virkni í gær. Þórdís Rúriksdóttir, forstöðumaður Miðstöðvarinnar, segir að þótt dagurinn hafi verið…
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…
Allt er að smella hjá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem úthlutar á morgun mat og gjöfum til um 300 hafnfirskra einstæðinga og…