Veldu Hafnarfjarðarleiðina og komdu að starfa í leikskólunum okkar!

Við viljum fylla skólana okkar af faglegu og öflugu starfsfólki. Allar aðgerðir Hafnarfjarðarbæjar hafa það að markmiði að ýta undir áhuga faglærðra og heilla þá í fjölbreytt og lifandi störf á leikskólum Hafnarfjarðar.

Vertu með! Ég vil sækja um starf

Starfsár leik- og grunnskólakennara hefur verið samræmt í Hafnarfirði

Starfsár starfsfólks í Félagi leikskólakennara og annars háskólamenntaðs starfsfólks innan leikskóla Hafnarfjarðarbæjar er sambærilegt starfsári kennara í grunnskólum. Samhliða er unnið að endurskipulagningu á starfsári leikskólanna með það fyrir augum að færa það nær skólaári grunnskóla með virku og faglegu námi stóran hluta þess auk faglegs tómstunda- og frístundastarfs með öðrum áherslum þar fyrir utan.

36 stunda vinnuvika jafngildir 23 uppsöfnuðum frídögum

Full vinnutímastytting (36 vinnustundir í stað 40 vinnustunda) hefur verið innleidd í öllum leikskólum Hafnarfjarðarbæjar og nær til alls starfsfólks. Unnið er eftir útfærslum sem henta starfseminni á hverjum stað sem skerða hvorki þjónustu né gæði leikskólastarfsins. Starfsfólk í Félagi leikskólakennara og annað háskólamenntað starfsfólk innan leikskóla Hafnarfjarðarbæjar hefur val um að vinna 40 stunda vinnuviku og safna upp styttingu (36 stunda vinnuvika jafngildir 23 uppsöfnuðum frídögum) sem tekin er út í betri vinnutíma á eftirfarandi tímabilum:

• Tveir dagar í október þegar vetrarfrí er í grunnskólum Hafnarfjarðar
• Frá og með 21. desember fram til 2. janúar
• Tveir dagar í febrúar þegar vetrarfrí er í grunnskólum Hafnarfjarðar
• Þrír dagar í dymbilviku fyrir páska
• Á orlofstímabili frá 15. maí – 15. september til viðbótar við orlofsrétt

Heilsueflandi styrkir og stuðningur

Áhersla er lögð á markvissa vinnuvernd og heilsueflingu starfsfólks Hafnarfjarðarbæjar. Liður í því er að bjóða starfsfólki árlegan styrk til heilsuræktar og frítt í sund. Auk þess er boðið upp á frítt bókasafnsskírteini á Bókasafni Hafnarfjarðar. Þessu til viðbótar ákvað Hafnarfjarðarbær á vormánuðum 2022 að gerist heilsueflandi vinnustaður og leggja þannig enn meiri áherslu á heilsu og vellíðan starfsfólks. Hafnarfjörður hefur verið heilsueflandi samfélag síðan 2015 og nú vill sveitarfélagið fjárfesta enn betur í mannauðnum. Innleiðing heilsueflingar er aðlöguð að hverjum starfsstað bæjarins og unnin í samstarfi alls starfsfólks.

Stuðningur til aukinnar fagmenntunar

Frá árinu 2015 hefur starfsfólk í leikskólum Hafnarfjarðarbæjar fengið námsstyrki frá sveitarfélaginu til þess að stunda nám í leikskólakennarafræðum. Framtakið hefur það markmið að auka hlutfall fagmenntaðra í leikskólum bæjarins og þar með í hópi leikskólakennara auk þess að ýta undir frekari fagmenntun faglærðra. Sérstakir námsstyrkir eru veittir árlega og eru þeir í formi launaðs námsleyfis þannig að nemendur geti stundað nám með vinnu í leikskóla en einnig vegna greiðslu á skráningargjöldum og námsgagna. Styrkirnir eru veittir í mislangan tíma og fer það eftir þeirri námsleið sem valin er. Þeir sem stunda nám til B.Ed gráðu í leikskólakennarafræðum fá styrk til tveggja ára en þeir sem eru að fara í fullt M.Ed nám fá styrki til fimm ára. Einnig eru veittir styrkir til þeirra sem stunda nám við leikskólabrú Borgarholtsskóla.

Hafnarfjarðarleiðin hlaut Orðsporið 2023

Hafnarfjarðarbær hlaut í upphafi árs Orðsporið 2023 sem er fagleg viðurkenning Félags leikskólakennara og Félag stjórnenda leikskóla. Sveitarfélagið fékk Orðsporið fyrir að samræma starfstíma í leikskólum og grunnskólum bæjarins og gera þannig skólaárið á þessum tveimur skólastigum sambærilegt. Hafnarfjörður er fyrsta sveitarfélagið til að stíga þetta skref. Einnig fyrir að auka stjórnunarhlutfall aðstoðarleikskólastjóra til muna, til þess að sinna faglegri leiðsögn og efla móttöku og þjálfun nýliða – og stuðla þannig enn frekar að því að styrkja innra starf leikskólanna.

Tilkynning um Orðsporið 2023

Tímamótaskref í eflingu og þróun á leikskólastarfi til framtíðar

Í upphafi árs 2023 steig Hafnarfjarðarbær tímamótaskref í eflingu og þróun á leikskólastarfi til framtíðar með það að markmiði að fjölga fagfólki í leikskólum bæjarins, auka sveigjanleika og skapa raunveruleg og raunhæf tækifæri til faglegs starfs. Aðgerðirnar fólu meðal annars í sér aukið samræmi á milli fyrstu skólastiganna og mótun á leikskólaumhverfi sem svarar betur þörfum og þróun nútíma skólasamfélags.

Ábendingagátt