Hafnarfjörður
  • Þjónusta
    Close sub menu button
    • Íþróttir og útivera

      Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.

      • Göngu- og hjólaleiðir
      • Íþróttafélög
      • Íþróttir og tómstundir
      • Leik- og boltavellir
      • Matjurtagarðar
      • Sumarnámskeið
      • Sundlaugar
    • Skóli og frístundastarf

      Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.

      • Dagforeldrar
      • Félagsmiðstöðvar
      • Frístundaheimili
      • Frístundastyrkur
      • Frístundaakstur
      • Grunnskólar
      • Heimgreiðslur
      • Leikskólar
      • Menntastefna
      • Tónlistarskólar
      • Ungmenni
    • Umhverfi og samgöngur

      Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.

      • Dýr
      • Hávaði
      • Hreinsun og umhirða
      • Nágranna­varsla
      • Sorphirða
      • Strætó
      • Veðrið í bænum
      • Veitur
      • Þjónustumiðstöð
    • Velferð

      Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.

      • Barnavernd
      • Eldra fólk
      • Fólk með fötlun
      • Félagsleg úrræði
      • Fjölmenning
    • Farsæld barna

      Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.

    • Þjónustuver

      Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.

  • Mannlíf
    Close sub menu button
    • Menning og listir

      Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.

      • Árlegir viðburðir
      • Bókasafn
      • Byggðasafn
      • Bæjarbíó
      • Bæjarlistamaður
      • Hafnarborg
      • Menningarstyrkir
      • Kórsjóður Hafnarfjarðar
    • Ferðaþjónusta

      Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.

      • Gististaðir
      • Tjaldsvæði
      • Upplýsingamiðstöð
    • Heilsubærinn

      Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.

      • Íþróttafólk ársins
      • Áhugaverðir staðir
      • Frístundastyrkir barna
      • Frístundastyrkir eldra fólks
      • Göngu- og hjólaleiðir
      • Íþróttafélög
      • Leik- og boltavellir
      • Sundlaugar
      • Sumarnámskeið
      • Veðrið í bænum
    • Viðburðir

      Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.

    • Menningararfur

      Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.

      • Álfa- og víkingabær
      • Brandarabærinn
      • Jólabærinn
      • Menningarbærinn
      • Saga Hafnarfjarðar
      • Vinabærinn
  • Framkvæmdir
    Close sub menu button
    • Byggingarmál

      Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.

      • Byggingarmál
      • Fyrirspurnir og viðtöl
      • Eyðublöð byggingarmála
      • Leiðbeiningar um rafræn skil gagna byggingarmála
      • Fasteignagjöld
    • Kort af bænum

      Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.

    • Lausar lóðir

      Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.

      • Atvinnuhúsnæði
      • Hesthús
      • Íbúðarhúsnæði
      • Lóðarleigusamningar
    • Skipulag

      Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.

      • Aðalskipulag
      • Framkvæmdir
      • Skipulag í kynningu
      • Uppbygging
      • Samgöngusáttmáli
      • Bílastæðasjóður Hafnarfjarðar
    • Afnotaleyfi

      Umhverfis- og skipulagssvið Hafnarfjarðar hefur eftirlit með öllum greftri og framkvæmdum í landi bæjarins.

  • Stjórnsýsla
    Close sub menu button
    • Atvinna og mannauður

      Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.

      • Laus störf
      • Símatími
      • Starfsfólk
      • Störf í leikskólum
      • Störf í tómstundamiðstöðvum
      • Vinnuskólinn
      • Starfsvottorð
    • Bæjarstjórn

      Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu. 

      • Bæjarstjóri
      • Bæjarstjórn
      • Fundur í beinni
      • Ráð og nefndir
    • Fundargerðir

      Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.

    • Rekstur og tölfræði

      Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.

      • Ársreikningar
      • Fjárhagsáætlanir
      • Húsnæðismál
      • Íbúakannanir
      • Opið bókhald
      • Umferð um vefinn
      • Vitinn hönnunarkerfi
    • Gjaldskrár

      Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.

    • Stjórnkerfi

      Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.

      • Barnvænt sveitarfélag
      • Hafðu áhrif
      • Heildarstefna Hafnarfjarðar
      • Neyðarnúmer
      • Neyðarstjórn
      • Persónuvernd
      • Ráð og nefndir
      • Stefnur og samþykktir
      • Skipurit
      • Styrkir
      • Útboð
    • Fréttir og skýrslur

      Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.

      • Fjölmiðlatorg
      • Fréttir og tilkynningar
      • Reglur um samfélagsmiðla
      • Skýrslur
      • Verkefnasögur
      • Útgefið efni
Mínar síður
IS
  • English
Toggle Mobile Menu
Leikskólar
  • Störf hjá Hafnarfjarðarbæ
  • Störf í leikskólum
  • Störf í tómstundamiðstöðvum
  • Mannauðsstefna
  • Jafnréttis- og mannréttindastefna
  • Hlunnindi
  • Nýtt starfsfólk hjá Hafnarfjarðarbæ

Leikskólar

Skoða öll störf
Leikskólar Collapse icon
Starfsheiti Umsóknarfrestur Frestur
Kennarar – Leikskólinn Hörðuvellir 27.08.2026
Kennarar – Leikskólinn Vesturkot 28.08.2026
Aðstoðarleikskólastjóri – Leikskólinn Hvammur 02.09.2026
Kennari – Leikskólinn Stekkjarás 03.09.2026
Ábendingagátt Aðstoð
  • Fundargerðir
  • Netspjall
  • Neyðarnúmer
Hafnarfjörður

Hafnarfjarðarbær

Strandgata 8–10

220 Hafnarfjörður

Kennitala: 590169-7579

  • facebook
  • instagram

Hafðu samband

Opið mán.–fimmtudaga: 08:00–16.00

Opið föstudaga: 08:00–14:00

585 5500

hafnarfjordur@hafnarfjordur.is

  • facebook
  • instagram

Flýtileiðir

  • Ábendingagátt
  • Laus störf
  • Betri Hafnarfjörður
  • Gjaldskrár
  • Starfsfólk
  • Neyðarnúmer

Baðvarsla stúlkna – Setbergsskóli

Umsóknarfrestur

21.08.2026
Sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 07.08.2026

Umsóknarfrestur til: 21.08.2026

Tengiliður: maria@setbergsskoli.is

Deila starfi

Skoða nánar

Setbergsskóli auglýsir eftir kvenkyns baðverði í íþróttahús – baðvarsla stúlkna.

Setbergsskóli óskar eftir að ráða kvenkyns starfsmann í 100% starfshlutfall í íþróttahús skólans.

Setbergsskóli var stofnaður árið 1989 og eru nemendur um 420 talsins. Góður starfsandi og jákvæð samskipti einkenna starfmannahópinn og er vellíðan nemenda og starfsfólks ávallt höfð að leiðarljósi. Við skólann er unnið metnaðarfullt starf með sérstakri áherslu á fjölbreytt námsumhverfi, læsi, sköpun, lýðræði og uppbyggjandi endurgjöf.

Skólinn er staðsettur í fallegu umhverfi sem býður upp á mikla möguleika til útiveru.

Einkunnarorð skólans eru virðing, víðsýni og vellíðan og grundvallast starf skólans á þeim gildum. Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni og samkvæmt hugmyndafræði Olweusar gegn einelti og andfélagslegri hegðun. Nánari upplýsingar um skólann og það öfluga starf sem þar er unnið er að finna á heimasíðu skólans, setbergsskoli.is.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Almenn baðvarsla og þrif í íþróttahúsi Setbergsskóla.
  • Aðstoða nemendur, huga að líðan þeirra og öryggi
  • Aðstoða og fylgjast með nemendum í búningsklefum
  • Almenn þrif eftir þar til gerðri áætlun, halda húsnæði snyrtilegu
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans í SMT skólafærni sem ætlað er að skapa jákvætt andrúmsloft í skólum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks
  • Vinna að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Hæfniskröfur:

  • Mikill áhugi á starfi með börnum 
  • Mikill sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Uppbyggjandi í samskiptum, ríkur sveigjanleiki og mikil samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi og efla sterka liðsheild
  • Stundvísi og samviskusemi

Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.

Ferilskrá og kynningarbréf fylgi umsókn.

Umsóknarfrestur er til og með 21. ágúst 2026.

Nánari upplýsingar um starfið veitir María Pálmadóttir, skólastjóri, í síma 5651011 eða í gegnum netfangið maria@setbergsskoli.is.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Forfallakennari – Hraunvallaskóli

Umsóknarfrestur

01.09.2026
Sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 18.08.2026

Umsóknarfrestur til: 01.09.2026

Tengiliður: lars@hraunvallaskoli.is

Deila starfi

Skoða nánar

Hraunvallaskóli auglýsir eftir kennara til að sinna tilfallandi og/eða fastri forfallakennslu á yngsta, mið- og unglingastigi og við sérdeildir skólans.

Hraunvallaskóli hefur þá sérstöðu að innan veggja hans er rekinn bæði leik- og grunnskóli. Skólinn starfar eftir hugmyndafræði opna skólans og er byggingin hönnuð með það í huga. Í kennsluskipulagi er lögð áhersla á skipulag sem byggir á hópavinnu, þemanámi, einstaklingsvinnu, þrautalausnum, gagnrýnni hugsun og færni nemenda til að afla sér þekkingar og nýta sér nýjustu upplýsinga- og samskiptatækni í því skyni. Kennarar vinna saman í teymum í kennslustundum og við skipulagningu og undirbúning kennslunnar. Nemendur í sama árgangi eru í sameiginlegum umsjónarhópum með sameiginlega umsjónarkennara á sínum heimasvæðum. Dyggðir Hraunvallaskóla eru vinátta, samvinna og ábyrgð.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast tilfallandi og/eða fastri forfallakennslu
  • Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagfólk skólans
  • Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
  • Vinnur eftir SMT skólafærni sem ætlað er að skapa gott andrúmsloft í skólum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks.
  • Skýr skuldbinding gagnvart stefnu og áherslum skólans
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Mennunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Reynsla af kennslu í grunnskóla æskileg
  • Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Góð íslenskukunnátta. Miðað er við hæfniviðmið C1 samkvæmt viðmiðum Evrópska tungumálarammans. 

Starfshlutfall er eftir samkomulagi. Óskað er eftir að starfsmaður hefji störf sem fyrst í tilfallandi forföll.

Nánari upplýsingar um starfið veita Lars Jóhann Imsland skólastjóri í síma 590 2800, lars@hraunvallaskoli.is og Aðalbjörg Sigurðardóttir aðstoðarskólastjóri adalbjorgs@hraunvallaskoli.is 

Umsóknarfrestur er til og með 1. september 2026.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.

Aðstoðarleikskólastjóri – Leikskólinn Hvammur

Umsóknarfrestur

02.09.2026
Sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 19.08.2026

Umsóknarfrestur til: 02.09.2026

Tengiliður: gudrunedda@hafnarfjordur.is

Deila starfi

Skoða nánar

Hvammur auglýsir starf aðstoðarleikskólastjóra

Leitað er eftir einstaklingi sem hefur góða hæfni í samskiptum og samstarfi, vilja til að þróa leikskólastarf, er skipulagður og umbótadrifinn og hefur metnað til að ná árangri í starfi. Mikilvægt er að viðkomandi sé faglegur leiðtogi, lausnamiðaður og jákvæður. Hafi metnað til að byggja upp góðan skólabrag og skapandi leikskólaskólastarf sem er í stöðugri þróun í samvinnu við alla aðila innan skólasamfélagsins. Um er að ræða 100% starfshlutfall en hlutfall stjórnunar aðstoðarleikskólastjóra er 50%. 

Hvammur er sex deilda leikskóli í suðurbæ Hafnarfjarðar. Gildi skólans eru jákvæð samskipti, jafnrétti og vinátta og endurspeglast þau í öllu starfi leikskólans. Í Hvammi er starfað í anda Hjallastefnunnar og deildar leikskólans eru aldurs- og kynjaskiptar. Í leikskólanum er unnið með opinn og skapandi efnivið sem er eins á öllum deildum en þannig er tryggt að öll börn hafi jafnan aðgang að rými og leikefni. Í Hvammi er unnið með uppbyggingarstefnuna Uppeldi til ábyrgðar þar sem ýtt er undir ábyrgðarkennd og sjálfsstjórn. Auk þess styrkir hugmyndafræðin starfsfólk í að samræma aðferðir í samskiptum og agamálumm og að efla vináttu.

Markmið mennta- og lýðheilsusviðs er að vera faglegt og framsækið forystuafl í mennta-, æskulýðs- og íþróttamálum og veita börnum og fjölskyldum í bænum heildstæða þjónustu og stuðla að samfellu í öllu starfi sem hefur velferð íbúa að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Vinnur að og ber ábyrgð á, ásamt leikskólastjóra, að unnið sé eftir aðalnámskrá leikskóla og skólanámskrá leikskólans, að áætlanir þar um séu gerðar og reglulegt mat fari fram
  • Er aðstoðarmaður leikskólastjóra og staðgengill hans
  • Sinnir, ásamt leikskólastjóra, skipulagi skólastarfsins dag frá degi
  • Leiðbeinir inn í fagstarf hverrar deildar og sinnir snemmbærum stuðningi við nemendur með ólíkan menningarlegan bakgrunn og tungumál
  • Sér um samskipti og samvinnu við foreldra í samráði við leikskólastjóra
  • Situr foreldrafundi, sem haldnir eru á vegum leikskólans
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Reynsla af starfi á leikskóla og leikskólakennslu skilyrði
  • Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar eða uppeldis- og/eða kennslufræða kostur
  • Stjórnunarreynsla kostur
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð samstarfs- og samskiptahæfni
  • Góð íslenskukunnátta, C1, skv, tungumálastaðall ETM Sjálfsmatsrammi
  • Góð tölvukunnátta

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Greinagóð ferilskrá, kynningarbréf og leyfisbréf fylgi umsókn.

Umsóknarfrestur er til og með 2. september 2026.

Nánari upplýsingar veitir Guðrún Edda Bjarnadóttir, leikskólastjóri gudrunedda@hafnarfjordur.is.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynja í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Kennarar – Leikskólinn Hörðuvellir

Umsóknarfrestur

27.08.2026
Sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 20.08.2026

Umsóknarfrestur til: 27.08.2026

Tengiliður: sverrirs@hafnarfjordur.is

Deila starfi

Skoða nánar

Leikskólinn Hörðuvellir auglýsir eftir leikskólakennurum í fullt starf

Við á Hörðuvöllum erum að leita að kraftmiklum og reynslumiklum leikskólakennara sem vill gera hvern dag að ævintýri fyrir börn!

Ef þú elskar leik, sköpun og samvinnu og vilt vinna í frábæru teymi þar sem gleði, virðing og fagmennska eru í fyrirrúmi, þá viljum við heyra frá þér. Við bjóðum upp á gott starfsumhverfi, tækifæri til starfsþróunar og stuðning í starfi – og auðvitað kaffi og hlátur alla daga.

Vertu hetjan sem börnin okkar bíða eftir!

Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk. Starfsfólk í Félagi leikskólakennara, hefur kosið fyrirkomulag sem felur í sér að starfsár þeirra er sambærilegt starfsári grunnskólakennara. Þessir starfsmenn taka því út vinnutímastyttingu í kringum jól og áramót, þegar vetrarfrí er í grunnskólum, í dymbilviku og með lengri fjarveru á sumrin.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna
  • Að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs
  • Að taka þátt í foreldrasamstarfi í samráði við deildarstjóra
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Starfsleyfi sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Góð færni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Mjög góð íslenskukunnátta, að lágmarki C1 samkvæmt Sjálsmatsrammi

Fríðindi í starfi:

  • Heilsuræktarstyrkur
  • 75% afsláttur af leikskólagjöldum
  • Forgangur á leikskóla
  • Bókasafnskort
  • Sundkort

Fáist ekki starfsmenn með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaða einstaklinga eða einstaklinga með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um.

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sverrir Jörstad Sverrisson leikskólastjóri, sverrirs@hafnarfjordur.is  eða í síma 555-0721

Umsóknarfrestur til og með 27. ágúst 2026

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ v/ Félags leikskólakennara.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Tómstundaleiðbeinandi – Verið – Hvaleyrarskóli

Umsóknarfrestur

27.08.2026
Sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 20.08.2026

Umsóknarfrestur til: 27.08.2026

Deila starfi

Skoða nánar

Hvaleyrarskóli óskar eftir að ráða tómstundaleiðbeinanda í félagsmiðstöðina Verið. Ráðið er í stöðuna sem allra fyrst.

Félagsmiðstöðin Verið býður börnum og unglingum í 5. – 10. bekk vettvang fyrir fjölbreytt og skemmtilegt tómstundastarf í húsnæði skólans eftir að hefðbundnum skóla lýkur. Starfið er unnið á grunni unglingalýðræðis og í anda forvarna. Verið er vettvangur fyrir opið félagsstarf, skipulagða dagskrá, hópastarf og ýmsa viðburði sem starfsfólk framkvæmir með unglingunum.

Starfið er ca. 25% og hentar vel fyrir skólafólk eða fyrir þá sem eru að leita sér að aukavinnu, vinnutíminn er utan hefðbundins vinnutíma.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Tekur þátt í að skipuleggja og móta fjölbreytta dagskrá
  • Mikil samskipti og samvinna við börn og unglinga
  • Skapa jákvætt andrúmsloft sem byggir á virðingu og lýðræðislegum vinnubrögðum
  • Stuðningur við frumkvæði barna og unglinga, tryggir öryggi þeirra og vellíðan
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Starfsþjálfun, námskeið og/eða nokkur starfsreynsla í tómstundarmálum
  • Reynsla af starfi með börnum og unglingum
  • Íslenskukunnátta
  • Stundvísi og skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Fjölbreytt áhugasvið sem nýtist í starfi félagsmiðstöðva
  • Almenn tölvukunnátta

Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Margrét Heiða Magnúsdóttir, deildarstjóri Tómstundamiðstöðvar, í síma 664-5778 eða í gegnum netfangið margretm@hvaleyrarskoli.is 

Umsóknarfrestur er til og með 27. ágúst 2026

Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Kennari – Leikskólinn Stekkjarás

Umsóknarfrestur

03.09.2026
Sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 20.08.2026

Umsóknarfrestur til: 03.09.2026

Deila starfi

Skoða nánar

Leikskólinn Stekkjarás auglýsir eftir kennara í 100% starf.

Leikskólinn Stekkjarás er átta deilda og er staðsettur í Áslandshverfinu. Leikskólinn starfar eftir aðferðum Reggio Emilia og einkunnarorð leikskólans eru „Hugmyndir barnsins – verkefni dagsins“

Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk. Starfsfólk í Félagi leikskólakennara og Þroskaþjálfafélaginu hefur kosið fyrirkomulag sem felur í sér að starfsár þeirra er sambærilegt starfsári grunnskólakennara. Þessir starfsmenn taka því út vinnutímastyttingu í kringum jól og áramót, þegar vetrarfrí er í grunnskólum, í dymbilviku og með lengri fjarveru á sumrin.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna
  • Að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs
  • Að taka þátt í foreldrasamstarfi í samráði við deildarstjóra
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Starfsleyfi sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum æskileg
  • Góð færni í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta er áskilin. Miðað er við hæfniviðmið C1 samkvæmt viðmuðum Evrópska tungumálarammans, Sjálsmatsrammi

Fríðindi í starfi:

  • Heilsuræktarstyrkur
  • 75% afsláttur af leikskólagjöldum
  • Forgangur á leikskóla
  • Bókasafnskort
  • Sundkort

Fáist ekki starfsmenn með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019.

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags leikskólakennara.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Harpa Kolbeinsdóttir leikskólastjóri, harpako@hafnarfjordur.is eða í síma 517-5920 og Michelle Sonia Horne, aðstoðarleikskólastjóri, michelleho@hafnarfjordur.is

Umsóknarfrestur er til og með 26. júní 2026

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.

Afleysingastörf í grunnskólum og tónlistarskóla

Umsóknarfrestur

31.12.2026
Sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 16.07.2026

Umsóknarfrestur til: 31.12.2026

Tengiliður: mannaudur@hafnarfjordur.is

Deila starfi

Skoða nánar

Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf innan grunnskóla eða tónlistarskóla, en við leitum reglulega að starfsfólki í mjög fjölbreytt afleysingastörf.

Oft er hægt að mæta óskum um ákveðið starfshlutfall, aðlaga vinnutíma t.d að annarri vinnu eða námi eða bjóða upp á tímavinnu. Vinsamlegast taktu fram ef þú ert að leita að ákveðnu starfshlutfalli eða tímavinnu í umsókn. Timabundin afleysingastörf eru ekki alltaf auglýst og þá leita stjórnendur eða mannauðsdeild í umsóknargrunni.

Hér er um að ræða afleysingastörf sem ekki er ætlað að standa lengur en til 12 mánaða samfellt, s.s. vegna orlofs, veikinda, barnburðarleyfis eða námsleyfis.

Umsóknir hér eru aðeins skoðaðar í tímabundin afleysingastörf og koma ekki til greina við úrvinnslu á störfum sem eru auglýst sérstaklega. Því hvetjum við þig til að fylgjast vel með öllum auglýstum störfum á vef Hafnarfjarðarbæjar og sækja sérstaklega um ef ákveðið starf vekur áhuga.

Hæfniskröfur:

  • Samskipta‐ og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Þjónustulund og áreiðanleiki
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
  • Hæfni til einstaklingsmiðaðra úrlausna
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Íslenskukunnáttu að lágmarki á stigi A2 samkvæmt samevrópska tungumálarammanum

Umsækjandi þarf að vera orðinn 18 ára. Gerð er krafa um hreint sakavottorð ásamt vammleysi, s.s. að vera

með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu

Umsókn þín um afleysingarstarf er virk í sex mánuði og verður óvirk eftir þann tíma. Hægt er að óska eftir að umsókn verði óvirkjuð innan þess tíma með því að senda póst á mannaudur@hafnarfjordur.is 

Umsóknum um tímabundin afleysingastörf er ekki svarað sérstaklega.

Umsóknin gildir ekki fyrir sumarstörf eða atvinnuátök.

Afleysingastörf í leikskólum

Umsóknarfrestur

31.12.2026
Sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 14.07.2026

Umsóknarfrestur til: 31.12.2026

Deila starfi

Skoða nánar

Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf í leikskólum Hafnarfjarðar, en við leitum reglulega að starfsfólki í mjög fjölbreytt afleysingastörf. Oft er hægt að mæta óskum um ákveðið starfshlutfall, aðlaga vinnutíma t.d að annarri vinnu eða námi eða bjóða upp á tímavinnu. Vinsamlegast taktu fram ef þú ert að leita að ákveðnu starfshlutfalli eða tímavinnu í umsókn.

Timabundin afleysingastörf eru ekki alltaf auglýst og þá leita stjórnendur í umsóknargrunni. Hér er um að ræða afleysingastörf sem ekki er ætlað að standa lengur en til 12 mánaða samfellt, s.s. vegna orlofs, veikinda, barnburðarleyfis eða námsleyfis.

Umsóknir hér eru aðeins skoðaðar í tímabundin afleysingastörf og koma ekki til greina við úrvinnslu á störfum sem eru auglýst sérstaklega. Því hvetjum við þig til að fylgjast vel með öllum auglýstum störfum á vef Hafnarfjarðarbæjar og sækja sérstaklega um ef ákveðið starf vekur áhuga.

Hæfniskröfur:

  • Samskipta‐ og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Þjónustulund og áreiðanleiki
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
  • Hæfni til einstaklingsmiðaðra úrlausna
  • Geta til að vinna undir álagi og aðlögunarhæfni
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Íslenskukunnáttu að lágmarki á stigi A2 samkvæmt samevrópska tungumálarammanum

Umsækjandi þarf að vera orðinn 18 ára. Gerð er krafa um hreint sakavottorð ásamt vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Umsókn þín um afleysingarstarf er virk í sex mánuði og verður óvirk eftir þann tíma. Hægt er að óska eftir að umsókn verði óvirkjuð innan þess tíma með því að senda póst á mannaudur@hafnarfjordur.is

Umsóknum um tímabundin afleysingastörf er ekki svarað sérstaklega.

Umsóknin gildir ekki fyrir sumarstörf eða atvinnuátök.

Önnur tímabundin afleysingastörf

Umsóknarfrestur

31.12.2026
Sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 14.07.2026

Umsóknarfrestur til: 31.12.2026

Tengiliður: mannaudur@hafnarfjordur.is

Deila starfi

Skoða nánar

Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf hjá Hafnarfjarðarbæ. Hér er um að ræða önnur afleysingarstörf en í leikskólum, grunnskólum, tónlistarskóla og á sviði málefna fatlaðra. Þau störf eru auglýst sér á ráðningarsíðu.

Við leitum reglulega að starfsfólki í fjölbreytt afleysingastörf. Timabundin afleysingastörf eru ekki alltaf auglýst og þá leita stjórnendur eða mannauðsdeild í umsóknargrunni. Hér er um að ræða afleysingastörf sem ekki er ætlað að standa lengur en til 12 mánaða samfellt, s.s. vegna orlofs, veikinda, barnburðarleyfis eða námsleyfis.

Umsóknir hér eru aðeins skoðaðar í tímabundin afleysingastörf og koma ekki til greina við úrvinnslu á störfum sem eru auglýst sérstaklega. Því hvetjum við þig til að fylgjast vel með öllum auglýstum störfum á vef Hafnarfjarðarbæjar og sækja sérstaklega um ef ákveðið starf vekur áhuga.

Hæfniskröfur:

  • Samskipta‐ og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Þjónustulund og áreiðanleiki
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
  • Hæfni til einstaklingsmiðaðra úrlausna
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Íslenskukunnáttu að lágmarki á stigi A2 samkvæmt samevrópska tungumálarammanum

Umsækjandi þarf að vera orðinn 18 ára. Gerð er krafa um hreint sakavottorð ásamt vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu

Umsókn þín um afleysingarstarf er virk í sex mánuði og verður óvirk eftir þann tíma. Hægt er að óska eftir að umsókn verði óvirkjuð innan þess tíma með því að senda póst á mannaudur@hafnarfjordur.is 

Umsóknum um tímabundin afleysingastörf er ekki svarað sérstaklega.

Umsóknin gildir ekki fyrir sumarstörf eða atvinnuátök.

Afleysingastörf – Málefni fatlaðra

Umsóknarfrestur

31.12.2026
Sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 14.07.2026

Umsóknarfrestur til: 31.12.2026

Tengiliður: mannaudur@hafnarfjordur.is

Deila starfi

Skoða nánar

Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf sem tengjast málefnum fatlaðra, en við leitum reglulega að starfsfólki í mjög fjölbreytt afleysingastörf.

Oft er hægt að mæta óskum um ákveðið starfshlutfall, aðlaga vinnutíma t.d að annarri vinnu eða námi eða bjóða upp á tímavinnu. Vinsamlegast taktu fram ef þú ert að leita að ákveðnu starfshlutfalli eða tímavinnu í umsókn.

Timabundin afleysingastörf eru ekki alltaf auglýst og þá leita stjórnendur í umsóknargrunni. Hér er um að ræða afleysingastörf sem ekki er ætlað að standa lengur en til 12 mánaða samfellt, s.s. vegna orlofs, veikinda, barnburðarleyfis eða námsleyfis.

Umsóknir hér eru aðeins skoðaðar í tímabundin afleysingastörf og koma ekki til greina við úrvinnslu á störfum sem eru auglýst sérstaklega. Því hvetjum við þig til að fylgjast vel með öllum auglýstum störfum á vef Hafnarfjarðarbæjar og sækja sérstaklega um ef ákveðið starf vekur áhuga.

Hæfniskröfur:

  • Samskipta‐ og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Þjónustulund og áreiðanleiki
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
  • Hæfni til einstaklingsmiðaðra úrlausna
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Íslenskukunnáttu að lágmarki á stigi A2 samkvæmt samevrópska tungumálarammanum

Umsækjandi þarf að vera orðinn 18 ára. Gerð er krafa um hreint sakavottorð ásamt vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Umsókn þín um afleysingarstarf er virk í sex mánuði og verður óvirk eftir þann tíma. Hægt er að óska eftir að umsókn verði óvirkjuð innan þess tíma með því að senda póst á mannaudur@hafnarfjordur.is 

Umsóknum um tímabundin afleysingastörf er ekki svarað sérstaklega.

Umsóknin gildir ekki fyrir sumarstörf eða atvinnuátök.

Kennarar – Leikskólinn Vesturkot

Umsóknarfrestur

28.08.2026
Sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 14.08.2026

Umsóknarfrestur til: 28.08.2026

Deila starfi

Skoða nánar

Leikskólinn Vesturkot óskar eftir að ráða kennara í fullt starf 

Leikskólinn Vesturkot er fjögra deilda, staðsettur á Holtinu þar sem stutt er í ósnortna náttúruna. Stefna leikskólans tekur mið af lærdómsamfélaginu þar sem áhersla er lögð á að allir séu virkir þátttakendur í að móta og þróa skólastarfið og því leggjum við mikla áherslu á teymisvinnu. Einkunnarorð leikskólans eru leikur, samvinna og virðing. Unnið er samkvæmt SMT skólafærni þar sem lögð er áhersla á að nálgast börn á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun meiri gaum og skapa jákvæð og uppbyggileg samskipti. Við erum Heilsueflandi vinnustaður, vináttuleikskóli Barnaheilla, vinnum að snemmtækri íhlutun í málþroska barna og umhverfismennt er hluti af okkar starfi. Góð samvinna allra, vellíðan og starfsáægja teljum við að þurfi að vera til staðar til að geta byggt upp metnarfullt og faglegt leikskólstarf þess vegna leggjum við áherslu á slíkt starfsumhverfi.

Starfið er laust nú þegar eða eftir samkomulagi.

Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk. Starfsfólk í Félagi leikskólakennara og Þroskaþjálfafélaginu hefur kosið fyrirkomulag sem felur í sér að starfsár þeirra er sambærilegt starfsári grunnskólakennara. Þessir starfsmenn taka því út vinnutímastyttingu í kringum jól og áramót, þegar vetrarfrí er í grunnskólum, í dymbilviku og með lengri fjarveru á sumrin. 

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna
  • Að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs
  • Að taka þátt í foreldrasamstarfi í samráði við deildarstjóra
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Starfsleyfi sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Reynsla af uppeldis og kennslustörfum æskileg
  • Góð færni í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Mjög góð íslenskukunnátta, C1 tungumálastaðall ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)

Fríðindi í starfi:

  • Heilsuræktarstyrkur
  • Samgöngustyrkur
  • 75% afsláttur af leikskólagjöldum 
  • Forgangur á leikskóla
  • Bókasafnskort
  • Sundkort

Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um.

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Inga Þóra Ásdísardóttir, leikskólastjóri og Hulda Þórarinsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri – vesturkot@hafnarfjordur.is

Ferilskrá og leyfisbréf kennara fylgi umsókn.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ.

Umsóknarfrestur er til 28. ágúst 2026.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Forfallakennari – Víðistaðaskóli

Umsóknarfrestur

27.08.2026
Sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 13.08.2026

Umsóknarfrestur til: 27.08.2026

Tengiliður: arnor@vidistadaskoli.is

Deila starfi

Skoða nánar

Víðistaðaskóli óskar eftir að ráða kennara í afleysingar 

Víðistaðaskóli var stofnaður árið 1970, skólinn er heildstæður skóli með 1. – 10. bekk og eru nemendur um 520. Leiðarljós skólans eru Ábyrgð – Virðing – Vinátta. Í Víðistaðaskóla fögnum við fjölbreytileikanum og er áhersla lögð á að hver nemandi fái kennslu við hæfi til að þroska hæfileika sína. Lögð er áhersla á líðan nemenda, fjölbreytta kennsluhætti og góðan námsárangur. Unnið er að þróun teymiskennslu og notkunar spjalda í skólastarfi. Í skólanum er metnaðarfullt starf sem byggir á skólaþróun og nemendalýðræði. Víðistaðaskóli er heilsueflandi grunnskóli og starfar í anda grænfánans þar sem lögð er áhersla á umhverfismennt og útikennslu. Í skólanum er unnið eftir SMT skólafærni þar sem lögð er áhersla á að styrkja og efla jákvæð samskipti milli nemenda sem annarra í skólasamfélaginu. Í Víðistaðaskóla er góður starfsandi og samheldni meðal allra sem í skólanum starfa.

Helstu verkefni: 

  • Annast kennslu á ýmsum stigum í afleysingu  
  • Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagaðila 
  • Vinnur samkvæmt stefnu skólans  
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu

Hæfniskröfur: 

  • Leyfisbréf til kennslu  
  • Haldgóð þekking á kennslufræði í íslensku
  • Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum. 
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni. 
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum. 
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi. 
  • Stundvísi og samviskusemi 
  • Góð íslenskukunnátta. Miðað er við hæfniviðmið C1 samkvæmt viðmiðum Evrópska tungumálarammans

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Arnór Heiðarsson, skólastjóri, arnor@vidistadaskoli.is eða Valgerður Júlíusdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma 6645891, valaj@vidistadaskoli.is 

Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni http://www.vidistadaskoli.is 

Umsóknarfrestur er til og með 27. ágúst 2026.

Greinargóð ferilsskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.  

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. 

Verkefnastjóri í félagsmiðstöð – Setbergsskóli – félagsmiðstöðin Setrið

Umsóknarfrestur

21.08.2026
Sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 07.08.2026

Umsóknarfrestur til: 21.08.2026

Tengiliður: maria@setbergsskoli.is

Deila starfi

Skoða nánar

Setbergsskóli óskar eftir að ráða í spennandi starf með börnum og unglingum í félagsmiðstöðina Setrið sem er hluti af tómstundamiðstöð skólans. Félagsmiðstöðin býður börnum og unglingum á aldrinum 10-16 ára vettvang fyrir fjölbreytt og skemmtilegt tómstundastarf eftir að hefðbundnum skóla lýkur.

Markmið starfsins er að gefa börnum og unglingum tækifæri til að stunda skapandi og þroskandi félagsstarf í heilbrigðu umhverfi á jafnréttisgrundvelli og að skapa vettvang þar sem börn og unglingar fá tækifæri til að efla sjálfstraust sitt og félagsfærni. Verkefnastjóri í félagsmiðstöð ber ábyrgð á að skipuleggja og móta fjölbreytta dagskrá í samstarfi við börn og unglinga sem tekur mið af áhugamálum þeirra hverju sinni.

Um er að ræða 50-100% starf. Vinnutími er að hluta til á kvöldin á virkum dögum og dagvinna að hluta. Fjölbreyttur vinnutími í boði.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Skipulagning á faglegu starfi félagsmiðstöðva
  • Sinna forvörnum með því að vera jákvæð fyrirmynd, fræða, fjalla um og hafa jákvæð áhrif á börn og unglingana með hin ýmsu málefni sem tengjast þeirra daglega lífi
  • Framkvæmd og skipulag starfsins í samvinnu við deildarstjóra,  starfsmenn og börn og unglinga
  • Stuðlar að góðu samstarfi og upplýsingaflæði milli ólíkra aðila
  • Er leiðbeinandi og veitir starfsmönnum leiðsögn og/eða tilsögn um framkvæmd vinnunnar
  • Vinnur að samstarfsverkefnum, situr í nefndum og starfshópum sem tengjast starfi tómstundamiðstöðvarinnar
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun (BA, B.Ed. eða BS gráða) á sviði tómstunda- og félagsmálafræði, uppeldis og menntunarfræða, grunnskólakennarafræða eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla og áhugi af starfi með börnum og ungmennum
  • Æskilegt er að viðkomandi hafi unnið í frístundaheimili eða félagsmiðstöð
  • Almenn tölvukunnátta
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Samskipta- og samstarfshæfni í mannlegum samskiptum

Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Umsóknarfrestur er til og með 21. ágúst 2026.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við BHM.

Nánari upplýsingar um starfið veitir María Pálmadóttir, skólastjóri maria@setbergsskoli.is og Birkir Sigurjónsson, deildarstjóri tómstundastarfs, birkirs@setbergsskoli.is

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Tómstundaleiðbeinandi – Setrið, Setbergsskóli

Umsóknarfrestur

21.08.2026
Sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 07.08.2026

Umsóknarfrestur til: 21.08.2026

Deila starfi

Skoða nánar

Félagsmiðstöðin Setrið býður börnum og unglingum í 5. -10.bekk vettvang fyrir fjölbreytt og skemmtilegt tómstundastarf í húsnæði skólans eftir að hefðbundnum skóla lýkur. Starfið er unnið á grunni unglingalýðræðis og anda forvarna. Setrið er vettvangur fyrir opið félagsstarf og skipulagða dagskrá, hópastarf og ýmsa viðburði sem starfsfólk framkvæmir með unglingum.

Starfið er ca. 25% og hentar vel fyrir skólafólk eða fyrir þá sem eru að leita sér að aukavinnu, vinnutíminn er utan hefðbundins vinnutíma.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Tekur þátt í skipuleggja og móta fjölbreytta dagskrá
  • Mikil samskipti og samvinna við börn og unglinga
  • Skapa jákvætt andrúmsloft sem byggir á virðingu og lýðræðislegum vinnubrögðum
  • Stuðningu við frumkvæði barna og unglinga, tryggir öryggi þeirra og vellíðan
  • Önnur verkefni skv. Starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Starfsþjálfun, námskeið og/eða nokkur starfsreynsla nægir til að öðlast þá þekkingu sem krafist er
  • Reynsla af starfi með börnum og unglingum
  • Íslenskukunnátta
  • Stundvísi og skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Fjölbreytt áhugasvið sem nýtist í starfi félagsmiðstöðva
  • Almenn tölvukunnátta

Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð

Nánari upplýsingar um starfið veitir Birkir Sigurjónsson, deildarstjóri tómstundamiðstöðvar, í gegnum netfangið birkirs@setbergsskoli.is.

Umsóknarfrestur er til og með 21. ágúst 2026.

Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk- Smárahvammur

Umsóknarfrestur

24.08.2026
Sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 10.08.2026

Umsóknarfrestur til: 24.08.2026

Tengiliður: ingibjorgo@hafnarfjordur.is

Deila starfi

Skoða nánar

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öflugan starfsmann í lærdómsríkt starf við þjónustu á heimili fatlaðs fólks. Unnið er eftir hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar, með áherslu á að íbúum líði sem best.

Spennandi og skemmtilegt starf, með fjölbreyttum verkefnum í vaktavinnu. Um er að ræða 40%- 90% starf og þarf viðkomandi að geta unnið morgun-, kvöld-, nætur og helgarvaktir.  

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Veita þjónustunotendum stuðning við athafnir daglegs lífs
  • Fylgja þjónustuáætlunum og verklagsreglum
  • Virkja íbúa til þátttöku í samfélaginu og tómstundum
  • Hafa gaman í vinnunni og vera öðrum fyrirmynd
  • Sinna heimilisstörfum
  • Samskipti við ýmsa þjónustuaðila
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegu starfi æskileg
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
  • Íslenskukunnátta A2 samkvæmt samevrópsku tungumálaramma
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Ágætis tölvukunnátta 
  • Ökuréttindi skilyrði  
  • Aðgengi að ökutæki skilyrði
  • Sjálfstæð vinnubrögð og sveigjanleiki í starfi
  • Líkamleg geta til þess að sinna verkefnum á vinnustað 

Æskilegt er að hafa náð 20 ára aldri, en skilyrði er að hafa hreint sakavottorð.

Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá.  

Frekari upplýsingar um starfið veitir Ingibjörg Ólafsdóttir, forstöðuþroskaþjálfi á netfangið ingibjorgo@hafnarfjordur.is eða í síma 585-5765.

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Umsóknarfrestur er til og með 24. ágúst 2026.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins

Tómstundaleiðbeinendur í Mosann – Hraunvallaskóli

Umsóknarfrestur

23.08.2026
Sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 10.08.2026

Umsóknarfrestur til: 23.08.2026

Tengiliður: arnbjorga@hraunvallaskoli.is

Deila starfi

Skoða nánar

Hraunvallaskóli óskar eftir að ráða tómstundaleiðbeinendur í Mosann sem er tómstundamiðstöð skólans. Í tómstundamiðstöðinni er félagsmiðstöð fyrir 10-16 ára börn.

Um er að ræða c.a 25% starfshlutfall þar sem unnið er frá kl.16:55 til 22:05 virka daga. Starfið hentar vel fyrir skólafólk, eða fyrir þá sem eru að leita sér að aukavinnu, vinnutíminn er utan hefðbundins vinnutíma.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Tekur þátt í að skipuleggja og móta fjölbreytta dagskrá
  • Mikil samskipti og samvinna við börn og unglinga
  • Skapa jákvætt andrúmsloft sem byggir á virðingu og lýðræðislegum vinnubrögðum
  • Stuðningur við frumkvæði barna og unglinga, tryggir öryggi þeirra og vellíðan
  • Vinnur að upplýsingaflæði til barna, foreldra og samstarfsaðila
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Starfsþjálfun, námskeið og/eða nokkur starfsreynsla nægir til að öðlast þá þekkingu sem krafist er
  • Reynsla af starfi með börnum og unglingum
  • Mjög góð íslenskukunnátta, að lágmarki C1 samkvæmt ETM Sjálfsmatsramma (coe.int)
  • Stundvísi og skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Fjölbreytt áhugasvið sem nýtist í starfi félagsmiðstöðva
  • Almenn tölvukunnátta

Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Arnbjörg Mist Ásgeirsdóttir deildarstjóri Tómstundamiðstöðvar, arnbjorga@hraunvallaskoli.is eða Lars Jóhann Imsland Hilmarsson skólastjóri, lars@hraunvallaskoli.is og í síma 590 2800.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Umsóknarfrestur er til og með 23. ágúst 2026

Greinargóð ferilskrá skal fylgja umsókn.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Skóla- og frístundaliði í Hraunsel – Hraunvallaskóli

Umsóknarfrestur

23.08.2026
Sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 10.08.2026

Umsóknarfrestur til: 23.08.2026

Tengiliður: arnbjorga@hraunvallaskoli.is

Deila starfi

Skoða nánar

Hraunvallaskóli óskar eftir að ráða skóla- og frístundaliða í 30- 48% starf fyrir skólaárið 2026-2027 í frístundaheimilið Hraunsel.

Um er að ræða starf sem felur í sér stuðning og aðstoð við nemendur í frístundaheimilinu Hraunseli eftir hádegi alla virka daga. Hraunsel býður upp á fjölbreytt tómstundastarf frá kl. 13:20 til kl. 16:30 alla virka daga, óháð getu, þroska eða fötlun barna. Sérstök áhersla er lögð á að koma til móts við alla hópa. Möguleiki er á að auka starfshlutfall með því að sækja líka um starf skóla- og frístundaliða í Hraunvallaskóla.

Hraunvallaskóli hefur þá sérstöðu að innan veggja hans er rekinn bæði leik- og grunnskóli. Skólinn starfar eftir hugmyndafræði opna skólans og er byggingin hönnuð með það í huga. Kennarar vinna saman í teymum í kennslustundum og við skipulagningu og undirbúning kennslunnar. Nemendur í sama árgangi eru í sameiginlegum umsjónarhópum með sameiginlega umsjónarkennara á sínum heimasvæðum. Dyggðir Hraunvallaskóla eru vinátta, samvinna og ábyrgð.

Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni www.hraunvallaskoli.is

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Aðstoðar við faglegt starf með nemendum
  • Starfar samkvæmt leiðsögn frá næsta yfirmanni
  • Stuðlar að góðum aga og jákvæðum samskiptum
  • Fylgist með og aðstoðar nemendur í leik og starfi
  • Leitast við að virkja sem flesta óháð getu eða þroska í fjölbreytt verkefni og taka fullan þátt í þeim verkefnum og viðburðum sem eru skipulögð
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af starfi með börnum er æskileg
  • Mjög góð íslenskukunnátta, að lágmarki C1 samkvæmt ETM Sjálfsmatsramma (coe.int)
  • Almenn tölvukunnátta
  • Mikill áhugi og metnaður til að starfa með börnum
  • Uppbyggjandi í samskiptum, sveigjanleiki og mikil samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Stundvísi og samviskusemi

Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð

Nánari upplýsingar um starfið veitir Arnbjörg Mist Ásgeirsdóttir deildarstjóri Tómstundamiðstöðvar, arnbjorga@hraunvallaskoli.is, Aðalbjörg Sigurðardóttir aðstoðarskólastjóri, adalbjorgs@hraunvallaskoli.is og Lars Jóhann Imsland skólastjóri, lars@hraunvallaskoli.is, eða í síma 590 2800.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Umsóknarfrestur er til og með 23. ágúst 2026.  

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika

Tómstundaleiðbeinandi í félagsmiðstöðina Ásinn – Áslandsskóli

Umsóknarfrestur

24.08.2026
Sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 10.08.2026

Umsóknarfrestur til: 24.08.2026

Tengiliður: evabjork@aslandsskoli.is

Deila starfi

Skoða nánar

Félagsmiðstöðin Ásinn býr börnum og unglingum í 5. – 10. bekk vettvang fyrir fjölbreytt og skemmtilegt tómstundastarf í húsnæði skólans eftir að hefðbundnum skóla lýkur. Starfið er unnið á grunni unglingalýðræðis og í anda forvarna. Ásinn er vettvangur fyrir opið félagsstarf, skipulagða dagskrá, hópastarf og ýmsa viðburði sem starfsfólk framkvæmir með unglingunum.

 Starfið hentar vel fyrir skólafólk, eða fyrir þá sem eru að leita sér að aukavinnu, vinnutíminn er utan hefðbundins vinnutíma. Tímabil ráðningar er frá 25.08.2026-10.06.2026

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Tekur þátt í að skipuleggja og móta fjölbreytta dagskrá
  • Mikil samskipti og samvinna við börn og unglinga
  • Skapa jákvætt andrúmsloft sem byggir á virðingu og lýðræðislegum vinnubrögðum
  • Stuðningur við frumkvæði barna og unglinga, tryggir öryggi þeirra og vellíðan
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Starfsþjálfun, námskeið og/eða nokkur starfsreynsla nægir til að öðlast þá þekkingu sem krafist er
  • Reynsla af starfi með börnum og unglingum
  • Íslenskukunnátta
  • Stundvísi og skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Fjölbreytt áhugasvið sem nýtist í starfi félagsmiðstöðva
  • Almenn tölvukunnátta

Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Eva Björk Jónsdóttir, deildarstjóri Tómstundamiðstöðvar, í síma 664-5785 eða í gegnum netfangið evabjork@aslandsskoli.is

Umsóknarfrestur er til og með 24. ágúst 2026.

Ferilskrá fylgi umsókn.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Tómstundaleiðbeinandi í félagsmiðstöðina Hraunið – Víðistaðaskóli

Umsóknarfrestur

25.08.2026
Sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 11.08.2026

Umsóknarfrestur til: 25.08.2026

Tengiliður: margretr@vidistadaskoli.is

Deila starfi

Skoða nánar

Víðistaðaskóli óskar eftir tómstundaleiðbeinendum í félagsmiðstöðina Hraunið. Starfið er um 25% og hentar vel fyrir skólafólk eða fyrir þá sem eru að leita sér að aukavinnu, vinnutíminn er utan hefðbundins vinnutíma.

Félagsmiðstöðin Hraunið býður börnum og unglingum í 5. – 10. bekk vettvang fyrir fjölbreytt og skemmtilegt tómstundastarf í húsnæði skólans eftir að hefðbundnum skóla lýkur. Starfið er unnið á grunni unglingalýðræðis og í anda forvarna. Hraunið er vettvangur fyrir opið félagsstarf, skipulagða dagskrá, hópastarf og ýmsa viðburði sem starfsfólk framkvæmir með unglingunum.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Tekur þátt í að skipuleggja og móta fjölbreytta dagskrá
  • Mikil samskipti og samvinna við börn og unglinga
  • Skapa jákvætt andrúmsloft sem byggir á virðingu og lýðræðislegum vinnubrögðum
  • Stuðningur við frumkvæði barna og unglinga, tryggir öryggi þeirra og vellíðan
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Starfsþjálfun, námskeið og/eða nokkur starfsreynsla nægir til að öðlast þá þekkingu sem krafist er
  • Reynsla af starfi með börnum og unglingum
  • Mjög góð íslenskukunnátta, að lágmarki C1 samkvæmt ETM Sjálfsmatsramma (coe.int)
  • Stundvísi og skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Fjölbreytt áhugasvið sem nýtist í starfi félagsmiðstöðva
  • Almenn tölvukunnátta

Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Margrét Rebekka Valgarðsdóttir deildarstjóri tómstundamiðstöðvar Víðistaðaskóla, í síma 664-5876 eða í gegnum netfangið margretr@vidistadaskoli.is

Umsóknarfrestur er til og með 25. ágúst 2026.

Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Sérkennari – Hraunvallaskóli

Umsóknarfrestur

25.08.2026
Sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 11.08.2026

Umsóknarfrestur til: 25.08.2026

Tengiliður: lars@hraunvallaskoli.is;adalbjorgs@hraunvallaskoli.is

Deila starfi

Skoða nánar

Hraunvallaskóli auglýsir eftir sérkennara til að sinna sérkennslu skólaárið 2026-2027

Skólinn hefur þá sérstöðu að innan veggja hans er rekinn bæði leik- og grunnskóli. Segja má að nemendur hefji skólagöngu sína átján mánaða í Hraunvallaskóla og ljúki henni við sextán ára aldur. Hraunvallaskóli starfar eftir hugmyndafræði opna skólans og er byggingin hönnuð með það í huga. Kennsla er miðuð við að mæta ólíkum þörfum einstaklinga sem læra að skipuleggja nám sitt sjálfir og meta árangur sinn. Í kennsluskipulagi er lögð áhersla á skipulag sem byggir á hópavinnu, þemanámi, einstaklingsvinnu, þrautalausnum, gagnrýnni hugsun og færni nemenda til að afla sér þekkingar og nýta sér nýjustu upplýsinga- og samskiptatækni í því skyni. Kennarar vinna saman í teymum í kennslustundum og við skipulagningu og undirbúning kennslunnar. Nemendur í sama árgangi eru í sameiginlegum umsjónarhópum með sameiginlega umsjónarkennara á sínum heimasvæðum. Dyggðir Hraunvallaskóla eru vinátta – samvinna – ábyrgð.

Sérkennari er hluti af sérkennsluteymi skólans og vinnur í nánu samstarfi við umsjónarkennara að námi barna með sérþarfir.  

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast sérkennslu í skólanum.
  •  Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
  •  Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Vinnur samkvæmt stefnu skólans í SMT skólafærni sem ætlað er að skapa gott andrúmsloft í skólum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks.
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Reynsla af kennslu í grunnskóla æskileg
  • Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Góð íslenskukunnátta. Miðað er við hæfniviðmið C1 samkvæmt viðmiðum Evrópska tungumálarammans. 

Nánari upplýsingar um starfið veitir Lars Jóhann Imsland skólastjóri, lars@hraunvallaskoli.is og Aðalbjörg Sigurðardóttir, adalbjorgs@hraunvallaskoli.is, í síma 590 2800

Umsóknarfrestur er til og með 25. ágúst 2026. Um er að ræða 50-100% starf

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Umsjónarkennari á miðstigi – Öldutúnsskóli

Umsóknarfrestur

26.08.2026
Sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 12.08.2026

Umsóknarfrestur til: 26.08.2026

Deila starfi

Skoða nánar

Öldutúnsskóli auglýsir eftir umsjónarkennara á miðstigi

Í Öldutúnsskóla eru um 590 nemendur í 1. – 10. bekk.

Í Öldutúnsskóla er lögð áhersla á skapandi og gefandi námsumhverfi þar sem allir aðilar leitast við að gera námið í senn áhugavert og skemmtilegt. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda og fjölbreytta kennsluhætti. Rík áherslu er lögð á teymisvinnu og teymiskennslu. 

Einkunnarorð skólans eru virðing, virkni og vellíðan og grundvallast starf skólans af þeim gildum. Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni og samkvæmt hugmyndafræði Olweusar gegn einelti og andfélagslegri hegðun. Skólinn leggur einnig ríka áherslu á umhverfismál.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast almenna kennslu og umsjón á miðstigi
  • Taka þátt í uppbyggingu og mótun á skólastarfi
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk skólans
  • Vinna að þróun skólastarfs í samráði við stjórnendur og samstarfsfólk
  • Vinnur samkvæmt stefnu skólans
  • Vinna að því að skapa gott andrúmsloft í skólanum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfnikröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf skal fylgja umsókn)
  • Reynsla af kennslu í grunnskóla æskileg
  • Haldgóð þekking á kennslufræði námsgreina á miðstigi æskilegt
  • Áhugi og/eða reynsla af umsjónarkennslu
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Góð íslenskukunnátta. Miðað er við hæfniviðmið C1 samkvæmt viðmiðum Evrópska tungumálarammans

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar veita Margrét Sverrisdóttir skólastjóri, í síma 664-5894, margret.sverrisdottir@oldutunsskoli.is og Áslaug Hreiðarsdóttir aðstoðarskólastjóri; aslaughr@oldutunsskoli.is. 

Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni http:www.oldutunsskoli.is

Umsóknarfrestur er til og með 6. ágúst 2026

Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ. 

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Starfsmaður í einstaklingsstuðningi – tímavinna

Umsóknarfrestur

31.08.2026
Sækja um starf
image description

Umsóknarfrestur frá: 14.07.2026

Umsóknarfrestur til: 31.08.2026

Deila starfi

Skoða nánar

Hér getur þú lagt inn umsókn um starf í tímavinnu sem starfsmaður í einstaklingsstuðningi hjá Fjölskyldu- og barnamálasviði. Um er að ræða sveigjanlegan vinnutíma eftir að hefðbundnum vinnutíma lýkur. Umsækjandi þarf að vera orðinn 18 ára. 

Meginmarkmið með einstaklingsstuðningi er að veita persónulegan stuðning og aðstoð sem einkum miðar að því að rjúfa félagslega einangrun í og efla viðkomandi til sjálfsbjargar og sjálfræðis.

Hæfniskröfur:

  • Samskipta‐ og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Þjónustulund og áreiðanleiki
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
  • Hæfni til einstaklingsmiðaðra úrlausna
  • Geta til að vinna undir álagi og aðlögunarhæfni
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Íslenskukunnátta að lágmarki á stigi A2 samkvæmt samevrópska tungumálarammanum
  • Góð enskukunnátta 

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð. Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Hér er um að ræða umsóknargrunn sem er unnið úr ef tækifæri opnast og því er umsóknum ekki svarað sérstaklega nema til ráðningar komi. Athugið að ekki er ráðið í einungis sumarstarf. 

Upplýsingar veitir Erna Aradóttir ernaar@hafnarfjordur.is eða í síma 585-5500. 

Umsóknir eru gildar í 6 mánuði og geymdar samkvæmt lögum um Þjóðskjalasafn Íslands.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.