
Hafnarfjarðarbær styrkir starfsfólk sitt sem hefur starfað í a.m.k. 3 mánuði til að stunda heilsurækt – líkamlega eða andlega. Starfsfólk í 50-100% starfshlutfalli fá fullan styrk að fjárhæð kr. 18.000.- á ári. Starfsfólk í lægra starfshlutfalli en 50%, fá helming þeirrar fjárhæðar, eða kr. 9.000.- á ári. Þessu til viðbótar getur starfsfólk sem kýs vistvænan samgöngumáta til og fá vinnu sótt um sérstakan samgöngustyrk að upphæð kr. 6.000.- mánaðarlega (viðmiðið er 50-100% starfshlutfall). Með vistvænum samgöngum er átt við allan ferðamáta annan en að ferðast með einkabíl eða vélknúnum farartækjum skv. skilgreiningu umferðarlaga, svo sem að ganga, hjóla, notkun rafmagnhjóls, rafmagnshlaupahjóls eða notkun almenningssamgangna.
Vertu með! Ég vil sækja um starf
Val um ólíkar leiðir til heilsueflingar
Starfsfólk hefur svigrúm til að velja ólíkar leiðir til að rækta heilsu sína og nýta sér ýmiskonar þjónustu en styrkirnir eru ekki einskorðaðir við líkamsrækt í hinum hefðbundnu líkamsræktarstöðvum. Þannig getur til dæmis verið um að ræða líkamsrækt, jóga, hugleiðslu, hugræna atferlismeðferð, kvíðameðferð, dans, söng- og leiklistarnámskeið, golfnámskeið eða karate svo nokkur dæmi séu nefnd. Viðmiðið er að um sé að ræða viðurkennda fagaðila hvort sem um ræðir andlega- eða líkamlega heilsu. Styrkurinn er hugsaður til að standa straum af kostnaði við að stunda heilsurækt en ekki til kaupa á íþróttavörum, tækjum eða búnaði. Starfsfólk í fæðingarorlofi geta sótt um styrkinn.
Hafnarfjarðarbær er heilsueflandi vinnustaður
Hafnarfjarðarbær leggur aukna áherslu á heilsu og velferð starfsfólksins síns með markvissri innleiðingu á verkefninu Heilsueflandi vinnustaður, á vegum Embættis Landlæknis. Heilsueflandi vinnustaður er heildræn nálgun sem hefur það að markmiði að stuðla að bættri heilsu og vellíðan starfsfólks á vinnustöðum. Virk þátttaka vinnuveitenda, starfsfólks og samfélagsins er mikilvægur þáttur í verkferlinu og í sameiningu mótar hver starfstöð sér heilsustefnu með virkri tímasettri aðgerðaáætlun sem er/verður aðgengileg og kunnug öllum þeim sem starfa á viðkomandi starfsstöð.