Leikskólinn Hlíðarendi

Frá opnun Hlíðarenda hefur verið lagt mikið upp úr því að ganga vel um náttúruna og umhverfið og skapa aðstæður til þess að börnin fái notið þess frábæra nærumhverfis sem umlykur skólann. Það er lögð áhersla á hreyfingu, lífsleikni og umhverfismennt.

Frá árinu 2008 hefur skólinn verið Grænfánaskóli og dró nýjan Grænfána að húni í sjöunda sinn í maí 2024. Hreyfing fléttast inn í allt okkar starf í samverustundum, hópastarfi og frjálsum leik inni og úti. Með því að fullnægja hreyfiþörf barna stuðlum við að andlegri og likamlegri vellíðan. En Hlíðarendi leggur áherslu á vináttu og lífleikni til að efla alhliða þroska barnsins, samskipti, tjáningu og bera virðingu fyrir umhverfi sínu.

Leiðarljós Hlíðarenda er hreyfing, lífsleikni og umhverfismennt

Í Hlíðarenda er grundvöllur uppeldisstarfsins kenndur við hugmyndafræði uppeldisfrömuðarins John Dewey sem lagði megináherslu á að virkja athafnaþörf barnsins og vekja áhuga þess. Helstu áhersluþættir í Hlíðarenda eru hreyfing, lífsleikni og umhverfismennt og fléttast þessir þættir allir saman við grunnþætti menntunar.

Hreyfing: Markmið með hreyfingu er að efla hreyfiþroska, sjálfstraust og skynjun barnsins á líkama sínum.  Að fullnægja hreyfiþörf barnanna og stuðla að andlegri og líkamlegri vellíðan. Einnig að auka skilning á mikilvægi hreyfingar í daglegu lífi. Hreyfing fléttast inn í allt okkar starf, í samverstundum, hópastarfi og frjálsum leik inni og úti. Skipulagðar hreyfistundir eru í sal leikskólans vikulega.  Staðsetning leikskólans er þannig að stutt er í ósnortna náttúru og þar gefst einstakt tækifæri til fjölbreyttrar og krefjandi hreyfingar eins og að klifra, hoppa, hlaupa, gera jafnvægisæfingar og æfa sig að ganga í móa og í hrauni.

Lífsleikni: Lífsleikni fléttast inn í allt okkar starf með það að markmiði að: · Efla og stuðla að jafnvægi milli hinna ýmsu þroskaþátta barnsins þar sem siðgæðistilfinninga – og félagsþroski gegna lykilhlutverki. · Byggja upp sjálfsmynd einstaklingsins. · Efla hæfileikann til að tjá hugsanir sínar og skoðanir og þar með vera við stjórnvölinn í eigin lífi. · Efla hæfileikann til að taka ábyrgð á gerðum sínum og umhverfi. · Efla hæfileikann til að skilja og bregðast við á málefnalegan (lýðræðislegan) hátt, með því að taka þátt í margvíslegum samskiptum og ákvörðunum. · Efla hæfileikann til að geta sett sig í spor annarra, bera virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum, virða reglur samfélagsins og sýna tillitsemi.

Umhverfismennt: Markmið umhverfismenntar í leikskólanum er að börnin læri að bera virðingu fyrir náttúrunni og tileinki sér góða umgengi við hana. Til þess að svo verði þarf að vekja áhuga barnanna á umhverfinu og náttúrunni. Starfsmenn nýta sér nánasta umhverfi leikskólans eins mikið og hægt er til að fara með nemendur í náms – og kynnisferðir. Leikskólinn býr að einstakri staðsetningu í útjaðri byggðar og mikilli nálægð við náttúrulegt umhverfi. Því eru fjölbreytt verkefni úti í náttúrunni hluti af upplifun barnanna á Hlíðarenda. Verkefni svo sem að sulla í læknum, fara út í skóg, tína ber, brölta í móum og hrauni, heimsækja hesta og svona mætti lengi telja.  Endurvinnsla og flokkun eru mikilvægir þættir í umhverfismennt og í leikskólanum er lögð áhersla á að börnin kynnist þessum þáttum. Allt sorp sem til fellur innan leikskólans er flokkað. Lífrænn úrgangur fer í jarðvinnslugám til moltugerðar sem nýtt er sem næring fyrir gróður leikskólans. Notaður pappír sem til fellur í leikskólanum er endurunnin og er pappírsgerð einn af föstum liðum í leikskólastarfinu. Pappír og plast sem ekki nýtist í leikskólanum fer í endurvinnslu.

Birkilundur

Yngstu börnin

Furulundur

2-6 ára börn

Grenilundur

2-6 ára börn

Reynilundur

2-6 ára börn

Stjórnendur

Bryndís Guðlaugsdóttir – Leikskólastjóri
Fjóla Kristjánsdóttir – Aðstoðarleikskólastjóri
Ásrún Sigrid Steindórsdóttir – Sérkennslustjóri og tengiliður farsældar
Bryndís Ævarsdóttir – Deildarstjóri, Grenilundi
Þórelfur Bragadóttir – Deildarstjóri, Reynilundi
Sigrún Inga Reynisdóttir – Deildarstjóri, Furulundi

Kristín Grétarsdóttir – Deildarstjóri, Birkilundur

Foreldraráð 2022-2023

Ólína K.A. Kristjánsdóttir

Aníta Ómarsdóttir

Ábendingagátt