Fjölmiðlatorg
Hér getur þú nálgast byggðarmerki Hafnarfjarðar, hönnunarkerfi, myndabanka og myndir af bæjarstjórn og sviðstjórum. Einnig eru upplýsingar um samskiptastjóra sem er tengiliðill bæjarins við fjölmiðla.
Hönnunarkerfi
-
Merki
Merkið var hannað fyrir 50 ára afmæli Hafnarfjarðar árið 1958 og er rótgróið í hjarta bæjarbúa. Vitinn og sjávaröldurnar vísa til sjósóknar og hafnarinnar sem er lífæð bæjarins og hann dregur nafn sitt af. Hönnuðir eru Friðþjófur Sigurðsson og Ásgeir Júlíusson. Merkið má finna í Vitanum, hönnunarkerfi Hafnarfjarðar.
Merki Hafnarfjarðar -
Vitinn hönnunarkerfi
Vitinn er leiðarljós í hönnun fyrir Hafnarfjarðarbæ. Kerfið einfaldar alla hönnunar- og textavinnu starfsfólks og þeirra sem koma að hönnun fyrir bæjarfélagið hvort sem það er fyrir prent, skjái eða stafræna miðla. Þar má finna meðal annars upplýsingar um stíla í hönnun og rödd og tón bæjarins.
Hönnunarkerfi Hafnarfjarðar -
Myndabanki
Myndir sem fjölmiðlar og aðrir geta notað í umfjöllun sinni um bæinn. Um er að ræða myndir sem Hafnarfjarðarbær hefur látið taka fyrir sig bæði úr starfseminni og af viðburðum og mannlífi í fallega bænum okkar.
Myndabanki Hafnarfjarðar
Miðlun upplýsinga
-
Vertu með á nótunum
Lestu um allt það sem er að frétta í bænum! Við færum íbúum og öðrum áhugasömum fréttir úr starfsemi bæjarins. Fréttir af nýjum og spennandi verkefnum, þróunarverkefnum, samstarfsverkefnum, viðburðum og ákvörðunum bæjaryfirvalda. Svo fátt eitt sé nefnt.
Fréttir og tilkynningar -
Viðburðir
Á vef Hafnarfjarðarbæjar er að finna yfirlit yfir alla viðburði í bænum á vegum sveitarfélagsins og stofnana þess. Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru framundan í bænum og taktu virkan þátt. Þannig blómstrar menningin.
Viðburðir -
Tilkynningar
Lestu um framkvæmdir, götulokanir, viðhald og viðgerðir í bænum! Auglýsingar um skipulagsmál, útboð og styrkumsóknir auk tilkynninga um aðkallandi málefni eins og bilanir og framkvæmdir.
-
Auglýsingar
Yfirlit yfir auglýsingar á vegum sveitarfélagsins. Auglýsingar um skipulagsmál, útboð og styrkumsóknir auk annarra tilfallandi auglýsinga.
Vefir og samfélagsmiðlar
-
Vefurinn – opinber gátt bæjarins
Vefurinn hafnarfjordur.is er opinber gátt bæjarins. Á vefnum eru allar helstu upplýsingar um starfsemi og þjónustu. Hafnarfjarðarbær leggur áherslu á vandaða meðferð og miðlun upplýsinga, á sýnileika og gegnsæi og er framsækinn og leiðandi í miðlun efnis.
Vefur Hafnarfjarðar -
Lifandi vefmælingar
Hafnarfjörður byggir sína vefþróun á öflugum en einföldum vefmælingum. Framsetning á vefnum byggir á upplýsingum um notkun og hegðun þeirra sem heimsækja vefinn til að gera hann aðgengilegri og áhugaverðari.
Lifandi vefmælingar -
Reglur á samfélagsmiðlum
Allir samfélagsmiðlar sem starfræktir eru undir nafni eða merki Hafnrfjarðarbæjar skulu leitast við að veita skýrar og greinargóðar upplýsingar, deila uppbyggjandi og eftir því sem við á, jákvæðu efni sem á erindi við íbúa og aðra sem láta sig málefni bæjarins varða.
Nánar um samfélagsmiðla
Stjórnsýsla
-
Bæjarstjóri
Valdimar Víðisson er bæjarstjóri í Hafnarfirði en hann er oddviti Framsóknar. Valdimar var kjörinn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar í sveitarstjórnarkosningunum 14. maí 2022 og hefur síðan þá verið formaður bæjarráðs. Bæjarstjóraskiptin eru í samræmi við samkomulag Sjálfstæðisflokks og Framsóknar eftir sveitarstjórnarkosningar í maí 2022 um að oddviti Sjálfstæðisflokks myndi sitja í stóli bæjarstjóra til 1. janúar 2025 þegar oddviti Framsóknar myndi taka við.
Bæjarstjóri Hafnarfjarðar -
Bæjarstjórn
Í bæjarstjórn Hafnarfjarðar eru 11 bæjarfulltrúar og jafnmargir til vara. Fulltrúarnir eru kosnir af íbúum Hafnarfjarðar til fjögurra ára í senn í lýðræðislegum kosningum.
Bæjarstjórn -
Skipurit
Skipurit Hafnarfjarðarbæjar sýnir hvernig stjórnkerfi sveitarfélagsins er uppbyggt.
Skipurit -
Gagnsæi í gögnum
Gögn og upplýsingar um málefni bæjarins eru aðgengileg í samræmi við upplýsingalög. Bæjarstjórnarfundir eru aðgengilegir í beinni á netinu og hægt er að skoða allar fundargerðir ráða, nefnda og stjórna á vegum bæjarins. Bókhald bæjarins er opið og aðgengilegt.
Bókhald Hafnarfjarðar
Tengiliðir
Vegna samskipta við fjölmiðla er velkomið að hafa samband við samskipti@hafnarfjordur.is og við komun beiðninni í réttan farveg.