Stóru bílarnir burt af bílastæðinu á Tjarnarvöllum
Eigendur stórra flutningabíla, flutningavagna, rúta, númeralausra bílhræja og ferðavagna á bílastæðinu við Tjarnarvelli eru beðnir um að færa þá annað. Bærinn býður ykkur eigendunum að leggja bílunum að Óseyrarbraut 12-14.
Bílar frá Tjarnavöllum á Óseyrarbraut
Eigendur stórra flutningabíla, flutningavagna, rúta, númeralausra bílhræja og ferðavagna á bílastæðinu við Tjarnarvelli eru beðnir um að færa þá annað. Bílastæðið er eingöngu ætlað fólksbifreiðum.
En örvæntið ekki. Til að bregðast við stöðunni bíður bærinn upp á bráðabirgðalausn til eins árs. Rekstraraðilum gefst kostur á að leggja stærri ökutækjum að Óseyrarbraut 12-14. Það er tímabundið úrræði á meðan rekstraraðilar koma sér upp viðeigandi aðstöðu til að geyma þessi stóru farartæki.
En af hverju má ekki leggja þeim á Tjarnarvöllum? Samkvæmt lögreglusamþykkt Hafnarfjarðar er óheimilt að leggja bifreiðum sem eru 5 tonn að leyfðri heildarþyngd eða meira, sem og fólksflutningabifreiðum sem flytja mega 10 farþega eða fleiri, á götum eða almenningsbílastæðum. Þetta á einnig við um almenn bílastæði í íbúðarhverfum, nema þau séu sérstaklega ætluð slíkum ökutækjum.
Bærinn hvetur alla hlutaðeigandi til að virða gildandi reglur og nýta bráðabirgðaaðstöðuna sem nú verður í boði.
ATH – Fréttin hefur verið leiðrétt. Rétt staðsetning er Óseyrarbraut 12-14.

Óseyrarbraut 12-14. Nægt pláss er fyrir bílana þar.