Viðburða- og verkefnastyrkir
Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna og viðburða á sviði menningar og lista í Hafnarfirði. Umsóknum skal skila inn með rafrænum hætti fyrir 1. mars 2016.
Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna og viðburða á sviði menningar og lista í Hafnarfirði. Umsóknum skal skila inn með rafrænum hætti fyrir 1. mars 2016.
Einu sinni á ári auglýsir menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar eftir styrkjum til menningarstarfsemi til eflingar á hafnfirsku menningarlífi. Markmiðið er að styðja við menningarstarfsemi í samræmi við menningarstefnu bæjarins og styrkja einstaklinga og félagasamtök til lista- og menningarsköpunar. Listamenn, félagasamtök, stofnanir eða menningarviðburðir verða að tengjast Hafnarfirði á einhvern hátt. Með fastri búsetu, með því að viðburðurinn fari fram í Hafnarfirði eða feli í sér kynningu á menningarstarfsemi Hafnarfjarðar. Ekki er styrkt til náms og rekstrar. Í umsókn þarf eftirfarandi að koma fram:
- Markmið, lýsing og tilefni umsóknar
- Styrkupphæð
- Tíma- og verkáætlun
- Önnur fjármögnun
- Kostnaðaráætlun
Menningar- og ferðamálanefnd metur umsóknir eftir markmiðum verkefna og hvernig þau nýtast til að efla fjölbreytt menningarlíf bæjarbúum og hafnfirskum listamönnum til góðs. Tekið er mið af raunhæfni verkefna, kostnaðaráætlun auk tíma- og verkáætlunar. Styrkhöfum ber að skila stuttri greinargerð um ráðstöfun styrkfjár eigi síðar en ári eftir úthlutun.
Umsóknum skal skila með rafrænum hætti í gegnum Mínar síður á heimasíðu Hafnarfjarðarbæjar: www.hafnarfjordur.is Athugið að til þess að sækja um þarf að skrá sig inn á Mínar síður. Aðstoð við skráningu er hægt að fá hjá Þjónustuveri Hafnarfjarðar í síma: 585-5500 | netfang: hafnarfjordur@hafnarfjordur.is
Skilafrestur er til 1. mars 2016.