Sumarnámskeið

Hér er hægt að skoða námskeið og sumartómstund á vegum Hafnarfjarðarbæjar auk upplýsinga um Vinnuskóla Hafnarfjarðar. Skipulagt starf sem ætlað er börnum og ungmennum á aldrinum 6-16 ára.

Eftirfarandi er í boði

Opið fyrir skráningar frá og með 3. maí 2024. Skráning á námskeið og í sumarfrístund á vegum Hafnarfjarðarbæjar

Ítarlegar upplýsingar um námskeiðin

Sumarfrístund fyrir útskriftarhópa leikskólanna

Dagana 7. – 22. ágúst, þar til starf grunnskólanna hefst með formlegum hætti, er boðið uppá fjölbreytta og uppbyggilega sumarfrístund á öllum frístundaheimilum í Hafnarfirði fyrir 6 ára útskriftarhópa leikskólanna eða þau börn sem eru að hefja grunnskólagöngu frá hausti. Námskeiðin eru líkt og hefðbundin sumarnámskeið en mikil áhersla er lögð á útiveru, hreyfingu, hollustu og er sérstaklega lagt upp með að fara í fjölbreytta leiki. Börnin fá tækifæri til að kynnast sínu frístundaheimili og nærumhverfi skólans með það að leiðarljósi að auka öryggi þeirra og vellíðan við upphaf skólagöngu.

  • Foreldrar/forráðamenn velja þann tíma sem hentar
  • Skráning þarf að fara fram fyrir miðnætti á fimmtudegi eigi barn að byrja á mánudegi
  • Í boði samvera (vistun) frá kl. 8-9 og 12-13 skráða daga, foreldrum og forráðamönnum að kostnaðarlausu
  • Börnin koma með hádegismat að heiman og nesti fyrir morgun- og síðdegishressingu
  • Þátttökugjaldi er stillt í hóf. Hver vika, hálfur dagur (frá kl. 9– 12 eða 13– 16) kr. 3.502.- og 2). Hver vika, allur dagurinn (frá kl. 9 – 16) kr. 7.904.-

Námskeiðin eru þrískipt – hægt er að velja á milli eftirfarandi:

  • kl. 9-12
  • kl. 13-16
  • kl. 9-16

Sumarfrístund fyrir 7–9 ára

Í Hafnarfirði eru sumarnámskeið starfrækt í öllum frístundaheimilum fyrir börn í 1. – 3. bekk (7-9 ára). Sumarfrístund inniheldur fjölbreytta dagskrá sem samanstendur af skapandi verkefnum, leikjum, hreyfingu, spennandi ferðum, sundferðum og sameiginlegum viðburðum. Dagskrá getur verið breytileg eftir hvaða frístundaheimili er valið. Skráning þarf að fara fram fyrir miðnætti á fimmtudegi eigi barn að byrja á mánudegi. Námskeiðin, sem ætluð eru 7-9 ára hefjast 10. júní og standa flest yfir til 28. júní. Miðlæg námskeið eru í boði í júlí og ágúst en lokað á öllum stöðum frá 22. júlí til 6. ágúst. Frá 1. – 19. júlí verður sameiginleg sumarfrístund í Hraunvallaskóla og Öldutúnsskóla. Frá 7.- 22. ágúst verður sameiginleg sumarfrístund í Skarðshlíðarskóla og Setbergsskóla.

  • Skráning þarf að fara fram fyrir miðnætti á fimmtudögum eigi barn að byrja á mánudeginum á eftir. Hægt að greiða með kreditkorti og debetkorti
  • Foreldrar/forráðamenn velja þann tíma sem hentar
  • Hópur á námskeiði sá sami á hverjum stað óháð lengd námskeiðstíma á degi hverjum
  • Í boði samvera (vistun) frá kl. 8-9 og 12-13 skráða daga, foreldrum og forráðamönnum að kostnaðarlausu en láta þarf vita hvort barn nýti sér þann tíma
  • Börnin koma með hádegismat að heiman og nesti fyrir morgun- og síðdegishressingu
  • Þátttökugjaldi er stillt í hóf og er minnst hægt að greiða viku í senn. Veittur er 50% systkinaafsláttur þegar systkini eru á sama námskeiði sömu vikuna. Hver vika, hálfur dagur (frá kl. 9 – 12 eða 13 – 16) kr. 5.283 -. Hver vika, allur dagurinn (frá kl. 9 – 16) kr.10.626. –

Námskeiðin eru þrískipt – hægt er að kaupa vistun eftir því sem hentar:

  • kl. 9-12
  • kl. 13-16
  • kl. 9-16:30

Sumarkletturinn fyrir 10–13 ára

SumarKletturinn er tómstundaúrræði fyrir börn í 4 til 7 bekk með sértæka stuðningsþörf. Sumarkletturinn leggur áherslu á að bjóða uppá faglega þjónustu með uppeldisgildi frítímastarfs að leiðarljósi. Reynt er að vinna með styrkleika hvers og eins og komið til móts við ólíkar þarfir. Skráning fer fram hér

Tómstund fyrir 10–13 ára

Tómstund heldur úti námskeiðum á sumrin fyrir börn sem voru að ljúka 4. – 7. bekk. Helstu markmið Tómstundar eru að virkja börn í sumarfríinu, gefa þeim tækifæri á að hitta önnur börn, kynnast áhugaverðum viðfangsefnum og endurvekja gömul áhugamál. Tómstund verður starfrækt í Víðistaðaskóla og Hvaleyrarskóla. Ítarlegar upplýsingar um starf og dagskrá námskeiða má nálgast á Facebook síðu námskeiðanna. Skráning fer fram hér

Myndlistarnámskeið í Hafnarborg fyrir 6-12 ára

Hafnarborg býður upp á myndlistar- og tónlistarnámskeið fyrir börn á aldrinum 6-12 ára. Undirstöðuatriði myndlistar verða kynnt í gegnum rannsóknir á umhverfinu, sýningar í safninu og skapandi vinnu. Verkefnin verða unnin í fjölbreytta miðla -teiknað, málað og mótað – með það að markmiði að þjálfa sjónræna athygli, örva skapandi hugsun og persónulega tjáningu þátttakenda.

Allar nánari upplýsingar má finna á vef Hafnarborgar

Sumarlestur fyrir alla krakka

Á Bókasafni Hafnarfjarðar er boðið upp á sumarlestur frá 1. júní til 31. ágúst. Allir krakkar sem farnir eru að lesa sjálfir geta komið við á bókasafninu til að skrá sig og fengið afhenta lestrardagbók.

Vinnuskóli Hafnarfjarðar

Starfsemi Vinnuskóla Hafnarfjarðar er fjölbreytt og er ungmennum bæjarins boðið upp á skemmtilega og lærdómsríka sumarvinnu. Þannig skiptast 14-16 ára ungmenni í umhverfishóp, listahóp, jafningjafræðslu og leikskóla. Samhliða er starfsmönnum boðið upp á ýmsa fræðslu og fróðleik. Allir unglingar á 14. aldursári og eru búsettir í Hafnarfirði er boðin vinna öll sumur til 17. ára aldurs. Nánari upplýsingar um vinnuskólann

Tómstund.is

Á vefnum www.tomstund.is er hægt að skoða framboð á íþrótta- og tómstundastarfi í Hafnarfirði. Framboð á vef stýrist af skráningum félaganna sjálfra en öllum er opið að skrá upplýsingar um námskeið og tómstundir á vefinn. Með einföldum hætti er hægt að leita eftir aldri, tímabilum og áhugasviði.

Frístund.is

Á vefnum www.fristund.is er hægt að skoða framboð á íþrótta- og tómstundastarfi á höfuðborgarsvæðinu í heild sinni.