Frístundaheimili
Börn í 1.–4. bekk geta stundað fjölbreytt tómstundastarf á frístundaheimilum við sinn skóla frá því að skóladegi lýkur til klukkan 16:30.
Frístundagjöld
Frístundagjöld eru innheimt samkvæmt gjaldskrá. Þú getur reiknað út kostnað við frístundadvölina með reiknivél hér fyrir neðan.
Þú getur valið hversu marga daga barnið á að dvelja á frístundarheimilinu. Greitt er fyrir daginn. Innifalið í gjaldinu er síðdegishressing, vistun og lengd viðvera á dögum þegar opið er allan daginn.
Systkinaafsláttur
Börn í frístund sem eiga annað systkini í frístund eða systkini samtímis í leikskóla eða hjá dagforeldri geta fengið systkinaafslátt. Afslátturinn af frístund reiknast af dvalargjaldi, fyrir hvert barn umfram eitt. Fyrir yngsta systkini er greitt fullt gjald, en afsláttur er veittur:
- fyrir annað systkini: 75%
- fyrir þriðja systkini: 100%
- fyrir fjórða systkini: 100%
Afslátturinn reiknast sjálfkrafa. Ekki þarf að sækja um nema þegar börn:
- eiga systkini sem hafa ekki sama lögheimili
- eru í frístund eða leikskóla utan Hafnarfjarðar
Reiknaðu dæmið
Hvað kostar að vera með barn í
frístund í daga á viku?
| Dvalargjald | kr. |
|---|---|
| Fæðisgjald | kr. |
| Samtals | kr./mán. |
Fyrirvari:
Eingöngu er um áætlun að ræða miðað við þá forsendur sem slegnar eru inn.